Færsluflokkur: Ferðalög
Portland Marathon OR,
4.okt. 2015
http://www.portlandmarathon.org
Það er 7 tíma munur hér og heima og þetta er ÖRSTUTT ferð.
Ég sótti númerið í Expo-ið, sem var mjög flott. Ég er nr 6793 og ætla aldrei þessu vant að byrja í mínum bás enda 8 tíma takmörk. Ég gisti nokkrar mílur í burtu og þarf að mæta snemma svo það verði ekki búið að loka götunum næst starti og marki... og þá kemst maður auðvitað ekki í bílastæðahúsin þar.
Það tekur því ekki að snúa neinum tíma. Þess vegna var ég ekki í neinum vandræðum að fara snemma að sofa. Klukkan var stillt á 3am og kl 5 var ég búin að fá stæði í húsi á besta stað... ég lagði mig í hálftíma en fór þá á Hilton hótelið - skemmtilegri klósett :)
Þar hitti ég Cindy "Maniac" jafnöldru mína sem býr 2 tíma í burtu héðan... við vorum svo öðru hverju samferða í hlaupinu.
Hlaupið var ræst kl 7 en minn bás fór um 20 mín seinna af stað. Það var skítkalt í upphafi... en strax eftir 2 tíma var orðin steik... mælarnir sýndu 80F eða um 30C
Leiðin var ágæt, amk gleymdi ég mér við að heilsa fólki sem ég hef hitt í öðrum hlaupum. Það voru nokkrar erfiðar brekkur, hitinn og æfingaleysið sem héldu mér niðri... en ég virðist vera búin að ná mér í ökklanum... Guði sé lof :)
Garmurinn mældi tímann 6:28:07 og vegalengdina 26.62 mílur.
Þetta maraþon er nr 193 og nú eru 6 fylki eftir í annarri umferð um USA.
Ferðalög | 5.10.2015 | 01:31 (breytt 10.10.2015 kl. 19:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Akron Marathon & Half Marathon, Team Relay Akron, OH USA
26.sept. 2015
http://www.akronmarathon.org
Ég sótti gögnin í gær og sá að þetta er miklu stærra maraþon en ég hélt. Expo-ið var ágætt en ég var ekki inní bílastæðamálunum svo ég átti í mestu vandræðum með að finna stæði... og start og mark eru hér rétt hjá. Númerið mitt er 3597.
Ég var búin að versla um morguninn og fór því á hótelið að slappa af... fór að sofa um kl 6 enda á kolvitlausu róli. Klukkan var stillt á 3am og ég átti ekki í neinum vandræðum með að sofna.
Ég var rétt vöknuð þegar brunakerfið fór af stað... alls þrisvar... aðrir gestir hafa örugglega ekki verið glaðir yfir þessari vekjaraklukku. Eftir að hafa borðað, klætt mig, smurt með vasilini og teypað tær, lagði ég af stað 5:45... það eru um 7 mílur á staðinn og þegar fólk þarf að berjast um bílastæðin þurfa ókunnugir að vera fyrstir. Þegar ég beygði út úr innkeyrslunni frá hótelinu, mætti ég slökkviliðinu... ekki skemmtileg tilfinning.
Ég var ljónheppin með stæði án þess að vita það strax, þegar ég nálgaðist staðinn sem ég var búin að sigta út, ég skellti mér inn í næsta bílastæðahús sem var merkt "event parking"
Startið var fyrir utan bílastæðahúsið og markið í næstu götu fyrir neðan... Þetta smellpassaði fyrir mig... ég lagði mig í bílnum... svo var það næst-síðasta og síðasta piss og hlaupið var ræst kl 7am. Það var heitt, heimamenn sögðu óvenjulega heitt... og óþarfi að byrja í langerma bol.
Fyrri helmingurinn var ágætur... en um leið og leið hálfs-og heils-maraþons skildu fengum við að reyna brekkurnar. Þjónustan á leiðinni var frábær, nóg að drekka, gel og ávextir... og klósett á flestum drykkjarstöðvum... eins gott því ég þurfti að nota það tvisvar. Hlaupaleiðin var vel merkt, mílu-merking, tímaklukka og fáni á hverri mílu og blá lína máluð í götuna alla leiðina.
Hitinn óx eftir því sem leið á hlaupið og var sennilega milli 28 og 30 þegar ég kom í mark.
Þetta maraþon er nr 192, garmin mældi leiðina 26,65 mílur og tímann 6:18:22
Ohio er fylki nr 43 í annarri umferð um USA - 7 eftir
Ferðalög | 26.9.2015 | 19:40 (breytt 5.10.2015 kl. 13:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mayor´s Midnight Sun Marathon, Anchorage Alaska
20.júní 2015
Við lentum í Alaska um hádegið og byrjuðum á að sækja númerið mitt. Ég mátti velja mér númer en þau voru öll frekar há... valdi nr 1000
Við keyrðum þangað sem markið er og skoðuðum aðstæður, ég ætla að geyma bílinn þar og taka skólabílinn á startið... svo keyrðum við á hótelið og komum okkur fyrir og fórum snemma að sofa. Við gistum í Eagle River, 16 mílur frá markinu... og eins og alltaf þarf að mæta snemma til að fá stæði.
Klukkan var stillt á 3:30 og ég gerði ráð fyrir tveimur tímum í undirbúning og koma sér af stað. Lúlli ætlar að bíða í markinu. Ég svaf mjög skringilega, nýr staður og frekar bjart. Eftir að hafa fengið mér að borða, teypað tærnar, smurt mig með vasilíni og sólarvörn og sett annað dót í poka, þá lögðum við af stað. Ég þarf að spreyja mig með skordýrafælu áður en ég fer í skólabílinn.
Ég fór með skólabílnum á startið og hitti þar Tim og fleiri þekkt andlit. Það var svo þungt yfir og rigningarlegt að ég fékk plastpoka til að hlaupa í.
Maraþonið var ræst kl 7:30 og fyrstu mílurnar var smá rigningarúði... Ég mundi bara eftir fyrstu mílunum á leiðinni... ekkert skrítið því það var búið að breyta leiðinni frá því fyrir 6 árum.
Þetta maraþon var erfitt fyrir mig, við vorum á sveitavegum ýmist malbikuðum eða möl og vegurinn fylgdi landslaginu, ss miklar brekkur. Það var hvergi lifandi verur að sjá nema þá sem voru í hlaupinu eða störfuðu við það. Þar sem ég er orðin svo léleg - þá varð fljótt mjög einmannalegt... leiðin var ekkert sérstök, bara götur og tré svo ég var stundum að drepast úr leiðindum.
Það kom mér verulega á óvart hvað vatnið og orkudrykkurinn á drykkjarstöðvunum var bragðvont, varla drekkandi... boðið var upp á appelsínubita og salt-kringlu-snakk... en allt gekk upp að lokum og ég komst í mark. Fóturinn hélt nokkuð vel en æfingaleysið er bara orðinn brandari ársins... þetta gengur ekki lengur ;)
Garmin mældi leiðina 26,7 mílur og tímann 7:01:02
Þetta maraþon er nr 190 og 8 eftir í öðrum hring um USA
..................................................
Þegar ég var að leita mér upplýsinga um hlaupið rakst ég á þetta...
http://www.americantrails.org/resources/wildlife/WildBearDeerEncntr.html
Ferðalög | 21.6.2015 | 02:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rock´N´Roll Seattle Marathon & Half Marathon
Seattle, WA USA, 13.júní 2015
http://runrocknroll.competitor.com/seattle
Við flugum til Seattle í gær, tékkuðum okkur inn á hótelið, sóttum gögnin og keyptum okkur morgunmat... allt annað er á "hold" þar til eftir maraþonið. Þetta er fjórða R´N´R maraþonið mitt á þessu ári... og ég er skráð í eitt í viðbót í haust.
Ég stillti klukkuna á 3am og bað um wake-up-call að auki. Ég svaf mjög illa í nótt... veit ekki af hverju... ég var ekki viss um að ég hafi sofið en Lúlli sagði að ég hefði amk dottað eitthvað.
Við lögðum af stað 4:30 og vorum komin í bílastæðahúsið kl 5. Bílastæðið var við hliðina á markinu og kl 6 átti að loka götunum í kring... Ég hallaði sætinu aftur í klst en ég gat ekki sofnað... svo var það klósettröðin og troða sér í áttina að elítunni fyrir startið.
Startið var aðeins frá markinu og var ræst kl 7am og ég náði að komast af stað eftir 4 mín. Það átti að vera skýjað en sólin skein allan tímann. Það var milli 25 og 30°c stiga götuhiti. Leiðin var ágæt, fáar brekkur en margra-mílna-langar götur og 4x fórum við í löng undirgöng svo 2 mílur vantaði á Garmin. Þjónustan á leiðinni var mjög góð - ég var farin að halda á klaka-glasi á milli drykkjarstöðva vegna hitans - 2x var gel í boði en enginn matur.
Ég fór eins hratt og fóturinn og æfingaleysið leyfði. Síðustu 3 mílurnar gekk ég með MAY (maniac) frá Toronto í Candada en við hittumst fyrst í Space Coast FL og erum báðar búnar að kaupa okkur inn í haust... báðar fegnar að fá einhvern til að kjafta við.
Þetta maraþon er nr 189
Garmin mældi það 25,2 mílur (+2 sem vantaði) og tímann 6:59:43
Þetta er 3ja maraþonið mitt í Seattle svo enn eru eftir 9 fylki í öðrum hring um USA.
Þetta maraþon er tileinkað minningu Joe´s sem lést úr hjartaáfalli í Las Vegas í gær.
Ferðalög | 14.6.2015 | 02:47 (breytt kl. 02:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dodge Rock´N´Roll Marathon & Half Marathon, Marathon Relay
San Diego, CA USA 31.maí 2015
http://san-diego.competitor.com
Ég held ég hafi aldrei verið í eins miklu stressi og tímahraki í neinu hlaupi eins og núna... Vélin lenti á réttum tíma í San Diego en bílaleigan lét okkur bíða í óratíma, þá tók við umferðarteppa við Convention Center þegar ég var að ná í númerið... ég hljóp inn rétt fyrir lokun, fékk númerið, keypti bílastæði og rútumiða og út aftur án þess að skoða neitt.
.........
Ég pantaði wake-up kl 3am og var með mitt úr stillt á 2:45. Þá tók þetta venjulega við, taka saman hlaupadótið og reyna að fara snemma að sofa... Ekki hélt netið vöku fyrir okkur því það var alltaf að detta út og ég hætti að reyna að blogga.
Ég svaf ágætlega þessa klukkutíma sem voru í boði... í svona stórum hlaupum sem eru með allt umfangið í þröngri miðborginni er nauðsynlegt að vera snemma á ferðinni. Ég þurfti að hafa allt dótið í bílnum því Lúlli beið á hótelinu og þurfti að tékka okkur út kl 11 og bíða einhversstaðar á meðan.
Þetta er í 4 sinn sem ég hleyp R´N´R San Diego. En í þetta sinn hafa þeir breytt fyrirkomulaginu, þeir eru hættir að nota flugvöllinn fyrir bílastæði og hafa ókeypis skólabíl á startið. Núna þarf maður að leggja í bílastæðahúsi í miðbænum.
Ég lagði af stað kl 4am og Garmin fór fyrst með mig í Walmart... kannski er greyjið að bilast á mér.
Ég fékk ágætis stæði í Convention Center og slappaði af í nokkrar mínútur. Ég hélt að við ættum að taka Trolley hinu megin við götuna en eftir mílu langa röð sá ég að þetta voru rútur... og tíminn var að hlaupa frá mér...
Loksins var kallað að heilu-maraþonarnir ættu að fara framfyrir... ég kom á-síðustu-stundu á startið, gat svindlað mér á klósett fyrir fatlaða (engin röð) og hljóp að marklínunni... heyrði þjóðsönginn á hlaupunum en náði ekki einu sinni mínum bás áður en hlaupið var ræst... hvílíkt stress og hvað maður eyðir mikilli orku í það. Maraþonið var ræst 6:15 og hálfa maraþonið var ræst 30 mín síðar.
Það var skýjað en heitt og ég var að vona að það héldist en sólin læddist fram eftir 2-3 tíma. Ég mundi eftir einhverju af leiðinni þó hún væri breytt, hún var nokkuð slétt á fyrri hlutanum en sá síðari var með manndrápsbrekkum. Ég sá/hitti engan sem ég þekkti... Alltaf er gott að klára... sérstaklega þegar ég er enn ekki orðin góð í ökklanum, æfingalaus og varð að ganga mikið á milli.
Ég var í enn hjá markinu þegar (samkv mbl.is) elsta kona í heimi sem hefur hlaupið maraþon kom í mark.
Garmin mældi leiðina 26,65 mílur og tímann 6:55:28
Þetta maraþon er nr 188 og enn eru 9 eftir í öðrum hring.
Ferðalög | 1.6.2015 | 15:03 (breytt 10.6.2015 kl. 18:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kentucky Derby Festival Marathon
25. apríl 2015
http://www.derbyfestivalmarathon.com
Expoið var ágætlega stórt í gær, en við vorum eiginlega á hraðferð, þreytt eftir 2 flug og lítinn svefn síðustu nótt og búin að keyra suður frá Indianapolis til Louisville. Númerið mitt er 12467. það sem ég hafði mestan áhuga á var að fá upplýsingar um gott bílastæði
Við fórum MJÖG snemma að sofa í gærkvöldi enda þreytt eftir flugið, keyrsuna og lítinn svefn síðustu nótt.
Klukkan var stillt á 3:30 í nótt og vegna þreytu svaf ég eins og steinn. Það var grenjandi rigning þegar við vöknuðum og ég hafði ekki gert ráð fyrir rigningu. Lúlli ákvað að bíða á hótelinu enda lítið spennandi að hanga í bílnum í grenjandi rigningu. ég sníkti plastpoka í lobbýinu að nota fyrir regnkápu.
Ég lagði af stað um kl 5 og náði bílastæði á besta stað.
Ég var með vekjaraúrið með mér og lagði mig, það var hægt að halla framsætinu í nær lárétta stöðu. Startið var beint fyrir framan bílinn.
Maraþonið var ræst 7:30 í rigningu og það rigndi megnið af tímanum. Leiðin var frekar slétt, það kom smá brekku-kafli frá mílu 11-15 og svo ein og ein en miðað við síðasta maraþon þá var það ekkert mál.
Hlaupaleiðin lá inn á hina frægu Derby-veðreiðar-braut, gaman að sjá þetta. Ég hitti Nick Karem á seinni hlutanum, hef ekki séð hann lengi, við fylgdumst að hluta af leiðinni, hann er eins og ég að vinna sig út úr meiðslum og hann barðist við krampa.
Ég verð að segja að mér gekk ágætlega miðað við allar aðstæður og algjört æfingaleysi.
Garmin mældi leiðina 26,79 mílur og tímann 6:31:27
Þetta maraþon er nr 187 og nú eru 9 eftir í öðrum hring.
Ferðalög | 26.4.2015 | 03:01 (breytt 4.5.2015 kl. 11:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rock'N'Roll Raleigh Marathon, Raleigh NC
12.apríl 2015
http://runrocknroll.competitor.com/raleigh
Ég svaf ágætlega og var vakin með "wake-up call" hótelsins og svo hringdi Bíðarinn frá Íslandi. ég var með sub í ísskápnum sem ég át, teypaði tærnar og kom mér af stað rétt fyrir kl 5am. Ég var búin að ákveða að fá stæði í bílastæðahúsinu sem var 200 metra frá marki og starti... og ég fékk frábært stæði.
ég hallaði mér svo bara aftur í hálftíma... nennti ekki að athuga með Maniac-myndatöku eða standa við startið í tæpa 2 tíma... en maður þarf allaf að fara í klósettröðina... TVISVAR.
Startið var kl 7am og ég laumaði mér á eftir elítunni... Bryndís og Keníamennirnir hehe...
Veðrið var frábært, glampandi sól og stundum of heitt en stöku sinnum kom smá kæling í vindinum.
Hvernig gekk...hummm... Stjórnendum hlaupsins fannst ástæða að nefna brekkurnar fyrir startið... og svo var skilti á leiðinni... "I eat hills for breakfast" og við vorum í stanslausum morgunmat eftir það.
Leiðin átti ekki að vera eins "brutal" og í fyrra því þeir breyttu leiðinni aðeins og fækkuðu um 3 brekkur... Leiðin var ein BREKKA... held ég hafi ekki lent í öðru eins í borgarhlaupi. Auðvitað komu þessar brekkur niður á mér...
Fóturinn hélt nokkuð vel, kannski af því að ég þorði ekki annað en að vera í ökkla-strekksokknum og svo var ég með ICY-HOT 8 tíma verkjaplástur á bakinu... bakið fór korter í sunnudagaskóla á Páskadag og ég var ekki orðin nógu góð.
Garmurinn mældi vegalengdina 42,87 km og tímann 7:17:11
Þetta marathon er nr 186 og mig minnir að ég eigi eftir 10 fylki í annarri umferð um USA.
Ferðalög | 12.4.2015 | 21:16 (breytt 14.6.2015 kl. 17:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Big Island International Marathon, Hilo, HI USA
15.mars 2015
http://www.hilomarathon.org
þetta verður mjög ófullkomið blogg... Klukkan...var stillt á 3 en ég var vöknuð kl 1:30
Ég hellti á kaffi, fékk mér að borða .... teypaði tærnar, smurði mig með vasilíni og sólarvörn, gekk frá dótinu, bar það út í bíl og tékkaði mig út af hótelinu... en fékk að koma til baka í sturtu ef ég kæmi fyrir kl 14... sem mér tókst.
Ég fór um 4:30, vildi vera snemma í því til að fá bílastæði nálægt startinu... og fékk frábært stæði. það var hægt að velja um 2 staði og hinn var hálfa mílu í burtu.
Hlaupið var ræst kl 6 í myrkri... fyrri hluti leiðarinnar, fyrstu 16 mílurnar voru mjög fallegar á köflum en ekkert nema brekkur.
Seinni hlutinn var hins vegar leiðinda kafli meðfram veginum, en slétt og þá fór sólin að hita verulega. Í bæði skiptin fórum við fram og til baka nær sömu leið.
Ég var með strekksokk um ökklann og fann lítið til en æfingaleysið var algert...
Ég set meira inn þegar ég kemst í fartölvuna mína.
Þá er það að uppfæra upplýsingarnar.
Ég gekk og skokkaði til skiptis fyrstu 16 mílurnar en seinni hlutann gekk ég alveg. Þá var farið að hitna verulega. þó ég færi hægt voru allan tímann einhverjir á eftir mér... Ég var bara fegin að klára og vera enn þolanleg í fætinum (enda ekki langt í næsta maraþon).
Þetta maraþon er nr 185
Vegalengdin var samkvæmt garminum 26,85 mílur og tímann 7:32:25
Þá eru 11 eftir í öðrum hring.
Ferðalög | 16.3.2015 | 00:42 (breytt 2.4.2015 kl. 16:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
New Orleans Mardi Gras Marathon & Half Marathon, 2-Person Relay New Orleans, LA USA
25.jan. 2015
http://runrocknroll.competitor.com/new-orleans
Við byrjuðum á því að sækja gögnin í gær þegar við keyrðum frá Baton Rouge... Expo-ið var ágætt - margir að sýna, kynna vörur og selja. Ég hitti hvorki Maniaca eða 50 state-vini sem ég þekkti. Síðan tékkuðum við okkur inn á hótelið. Herbergið okkar er í blind-horni og við erum netlaus.
Síðan var þessi hefðbundni undirbúningur, taka saman hlaupadótið og fara snemma að sofa... en það var nú ekki hægt, þetta er partý hótel... þunnir veggir og nokkur umgangur. Ég held samt að ég hafi sofið eitthvað.
Klukkan var stillt á 3:30... því ég hélt að startið væri kl 7am en það var hálftíma seinna.
Við ákváðum að það væri best að Lúlli biði á hótelinu... svo ég lagði af stað um kl 5am til að fá gott stæði við startið. Ég náði stæði á götunni um hálfa mílu frá.
Ég hitti Maniaca og við ákváðum myndatöku... Það var skítakuldi úti og ég var alveg orðin frosin á að bíða einn og hálfan tíma eftir startinu. Þegar hlaupinu var síðan startað laumaði ég mér af stað með elítunni... Bryndis og Kenýamennirnir voru fyrstaf stað ;)
Ég var skráð í Double-down, aukapening fyrir að fara bæði LA-hlaupin... og svo er ég búin að skrá mig í tvö önnur Rock´N´Roll maraþon á árinu... svo ég varð eiginlega að þræla mér í gegnum þetta hlaup...
Fóturinn var ekki nógu góður, ég stoppaði oft til að nudda kálfann, bera á hann krem og svo lét ég teypa kálfann á leiðinni og reyndi að fara vel með mig og nota bara allan tímann sem var í boði.
Reglan var: 7 tíma-takmörk eftir að síðasti maður fór yfir startlínuna - þess vegna fór ég með elítunni... og mér veitti ekkert af tímanum.
Ég sit í lobbýinu og blogga og er ekki með símann með myndunum eða úrið svo ég man ekki alveg tölurnar... ég verð að bæta úr því seinna.
UPPFÆRT... Þetta maraþon er nr 184, Garmurinn mældi vegalengdina 26,89 mílur og tímann 7:43:09
Ferðalög | 26.1.2015 | 01:31 (breytt 6.5.2015 kl. 22:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Louisiana Marathon Baton Rouge, LA USA
18.1.2015
http://www.thelouisianamarathon.com
Við fórum snemma að sofa í gær, og klukkan var stillt á 4 am. Ég svaf ágætlega. Allt gekk sinn vanalega gang og við lögðum snemma af stað til að ná bílastæði á góðum stað. Lúlli fór með og beið allan tímann eftir mér. Þess vegna skipti máli að fá stæði nálægt. Við vorum ljón-heppin þar... náðum stæði nokkrum skrefum frá starti og marki.
Ég náði Maniac-a myndatökunni kl 6:30. Hlaupið var síðan ræst kl 7 am. Ég vissi að þeir væru með hörð 7-tíma-takmörk... Þá verður markinu lokað.
Það var kalt í upphafi en hitnaði þegar á leið. Mér leið ágætlega fyrstu 9 mílurnar en þá gerðist eitthvað í hásin á vinstra fæti og ég haltraði eiginlega afganginn í mark... Við vorum tvær sem renndum okkur í markið á síðustu stundu og því var lokað á eftir okkur, hin var að drepast í hnénu.
Þjónustan og gæslan á leiðinni var til fyrirmyndar... Ekkert sem klikkaði og þeir pössuðu að hafa sömu þjónustu fyrir þann fyrsta og þann síðasta.
Þetta maraþon er nr 183.
Garmurinn mældi tímann 6:58:13 og vegalengdina 26,68 mílur.
Nú þegar Louisiana er búið eru 12 fylki eftir.
Ferðalög | 19.1.2015 | 01:08 (breytt 21.1.2015 kl. 19:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)