Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Það sama og venjulega

Skellti mér út fyrir hádegið, frábært veður þó mótvindurinn hafi verið mættur á Álftanesveginum... en það var bara hressandi Wink

Hrafnistan mælist alltaf það sama... 12,5 km


Langt og gott hlaup

Veðrið var frábært í dag, ég svitnaði ekkert smá á meðan ég skokkaði stóra Garðabæjarhringinn sem er 20 km.

Það var flautað á mig ;)

Ég skrölti út úr dyrunum í morgun ákveðin að ná að hlaupa fyrir hádegi. veðrið var dásamlegt, aðeins skýjað og gola... Þegar ég var komin á Lækjargötuna var flautað á mig og Þóra Hrönn veifaði til mín... HEPPIN ÉG að fá hlaupafélaga. Ég kynnti hana fyrir Hrafnistuhringnum góða en í lokin beygðum við upp Linnetstíginn og inn Austurgötuna og enduðum heima hjá henni. Við hlupum 7.1 km saman en hringurinn varð 12,8 hjá mér.


Komin aftur á götuna

Ég sleit vöðvafestu í mjöðminni í fyrradag... það er ekki eins slæmt og þegar það gerist í bakinu... en maður er 3 daga að jafna sig... Ég var ekkert að bíða lengur, ákvað að fara Hrafnistuhringinn - veðrið var dásamlegt, aðeins rigningardropar á seinni helmingnum.

12,5 km í dag.


Með Soffíu

Við Soffía skröltum Áslandsbrekkurnar... veðrið var yndislegt, hlýtt þó það væri rigningarúði. Brekkuhringurinn var 7,3 km og 6 km fram og til baka að Lækjarskóla fyrir mig, svo ég fór 13,3 km í dag.

Það sama og venjulega ;)

Ég varð að fara fyrr út en venjulega, ætla í bíó með Hörpu og strákunum kl 5 og stundum hleðst allt á sömu dagana. Veðrið var gott, aðeins vindur en ekki svo kaldur að ég fór úr jakkanum. Fór Hrafnistuhringinn og hitti Soffíu á tröppunum við Suðurbæjarlaugina í bakaleiðinni og við mæltum okkur mót við Lækjarskóla í fyrramálið.

12,5 km í dag Cool 


Garðabær hinn meiri

Það er alltaf erfiðara að koma sér út ef það dregst fram yfir hádegið. Mér tókst því að gera ,,hið nærri ómögulega" Veðrið var rosalega gott, hlýtt, skýjað og gola.

Ég var ein eins og undanfarið og hljóp stærri Garðabæjarhringinn... en í honum fer ég aðeins inn í Kópavog...
Mesta lífið var í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem Víkingahátíðin stendur yfir.
Hringurinn var sléttir 20 km.


Kælikerfi himnanna nýtt í dag

Það blés og rigndi þegar ég hljóp í morgun... ekkert alvarlega en samt var hlýtt. Ég var ein í þungum þönkum, fegin að hafa farið fyrir hádegi... börn og barnabörn koma síðar í dag, það verður humarveisla.

Hrafnistuhringurinn var 12,5 km Whistling


Nuddsár undir hendi í hitanum

Hvílík himinsins blíða... ég skellti mér Hrafnistuhringinn um hádegið... Tók fram styttri buxur og hlýrabol til að vera samkvæmt dagatalinu. Golan á þónokkurri hraðferð á völdum köflum ss á Álftanesveginum. Ég var í svitabaði alla leiðina og komin með nuddsár undir aðra hendina á miðri leið... Það háði mér aðeins... annars var frábært að hafa komið sér út að hlaupa.

12,5 km í dag Cool


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband