Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2010

Áslandsbrekkur með Soffíu

Veðrið var frábært, við hittumst kl 10. Frábært að vera búin að hlaupa fyrir hádegi. Áslandsbrekkurnar eru fastur liður á fimmtudögum... gott að hafa ólíkar vegalengdir og ólíkt álag á hlaupadögunum. 

Brekkuhringurinn var 13,1 km
Á eftir brekkunum fór ratleikurinn í gang...
Svavar fann tvö spjöld og Tinna eitt...  Joyful 


Mér var bjargað...

...frá því að hlaupa ein í morgun. Þóra Hrönn sendi mér sms... og ég var mætt til hennar kl 11 í morgun. Við fórum Hrafnistuhringinn í yndælis veðri. Þetta var bara snilld - ég hélt að ég yrði ein í dag. 

12,5 km í dag 


Ein í Garðabæ

Það vildi þannig til að hvorki Soffía né Þóra Hrönn gátu hlaupið með mér í morgun. Þar sem dagurinn var ,,pakkaður" hélt ég áætlun og hljóp út úr dyrunum rúmlega hálf tíu... og var heppin með veðrið. Ég hljóp minni Garðabæjarhringinn eins og vaninn hefur verið síðustu mánudaga.

16,2 km í dag... bara ágætt Wink


Áslandsbrekkur á fimmtudögum

Allt eftir formúlunni... við hittumst þrjár við Lækjarskóla, ég, Soffía og Þóra Hrönn. Brekkurnar voru á dagskrá. Það var skýjað, gola en hélst að mestu þurrt, amk þangað til ég hafði skilað þeim af mér. Eftir að hafa skilað Soffíu heim lengdum við Þóra Hrönn, fórum upp Reykjavíkurveginn, Arnarhraunið og Tjarnarbrautina heim til hennar. 

Hringurinn varð 14,1 km í allt fyrir mig. 


Ein á ferð

Veðrið leikur við okkur, yndislegt að hlaupa um bæinn. Allt er svo líflegt í svona blíðu. Ég var ein að þessu sinni og skellti mér Hrafnistuhringinn. Munur að vera búin með skammtinn fyrir hádegi Wink

12,5 km í dag 


Í blíðskaparveðri

Þóra Hrönn bættist óvænt í hópinn við Lækjarskólann... og við fórum minni Garðabæjarhringinn. Veðrið var dásamlegt sól, hiti og dásamlegur norðan svali. 

Ég skilaði Soffíu fyrst heim og síðan Þóru Hrönn, svo hringurinn varð 17,2 km 


Brekkurhringur

Við Soffía hittumst við Lækjarskóla og fórum Áslandsbrekkuhringinn í þessu líka frábært veðri... Mallorca-bongo-blíða...

Hringurinn var 13,2 km hjá mér. 


Með Völu

Ég ætlaði ekki að hlaupa í dag, en Vala kom í heimsókn og við ákváðum að taka einn hring, en það er hrikalega langt síðan við höfum hlaupið saman. Við skelltum okkur Hrafnistuhringinn í nettri rigningu ogtókum varla eftir því. 
Hrafnistuhringurinn er 12,5 km

Eftir kvöldmat tókum við Svavar skyndiákvörðun að tékka á einu spjaldi í ratleiknum... og eftir þó nokkrar pælingar um staðsetningu og spígsporun fram og til baka... þá fann Svavar spjaldið. Ég reikna með 4 km í göngu fyrir þetta spjald. 


Garðabær ,,hinn minni"

Hitti Soffíu kl 10 við Lækjarskóla og við skokkuðum saman ,,Garðabæ hinn minni" í þægilegum kælivindi. Það var hlýtt og fallegt veður. Skemmtilegar setningarnar sem hafa verið málaðar á göngustíginn við sjóinn. Það skildu síðan leiðir hjá okkur við endann á Fjarðargötunni.

Garðabær hinn minni mældist 16,2 km í dag. 


Góður dagur

Ég skellti mér Hrafnistuhringinn f.h. í frábæru veðri ALLAN hringinn... í þægilegri norðan-golu. Kom aðeins við við Ásvallalaugina þar sem hálfi-járnkarlinn var í gangi. Hetjur runnu í gegnum markið en leiðin er nokkrir hringir.

Hrafnistuhringurinn er 12,5 km
Eftir fataskipti tókum við Svavar 3 spjöld í ratleiknum... gengum ca 8 km.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband