Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Stutt og laggott

Soffía bað mig á facebook að hlaupa með sér kl 10 í morgun, ég beið í 10 mín við Lækjarskóla en hélt svo áfram. Vaninn hefur verið Garðabær hinn meiri þ.e. 20 km... en vegna hins ótrúlega http://bryndissvavars.blog.is/blog/bryndissvavars/entry/1059742/ þá fór ég bara stutt í dag.

Þetta var bara snilld, ég fann ekkert til, mér fannst samt ekki borga sig að vera með einhverja stæla og taka séns á Garðabænum.

Áslandsbrekkurnar mældust 9 km án Holtsins.


Langt í blíðskaparveðri

Ég skellti mér frekar seint út að hlaupa... veðrið var æðislegt, 13-15°c hiti, sól og þægileg gola. Ég hljóp Garðabæ hinn meiri... Þá liggur leiðin um Garðabæ, aðeins inn í Kópvog, niður veginn að Arnarnesinu og með ströndinni inn á Álftanesveginn. 
Þetta var hreint frábært - ég er með vissa staði þar sem ég drekk 1 sopa úr flöskunni og þá passar að fylla á hana á vatnshananum hjá Arnarnesinu.
Golan var þægileg, kældi aðeins... hreinasta snilld.

Hringurinn mældist 20 km


STÓRI brekkuhringurinn

Ég var svo myndarlega að baka smákökur fyrir hádegi... sem var bara snilld. Hringdi svo í Soffíu en þá var hún að hlaupa Áslandsbrekkurnar. Ég skellti mér út eftir hádegið og tók stóra brekkuhringinn minn... fyrst hring um Holtið, svo Áslandsbrekkurnar og kringum Ástjörnina.
Þetta mælist 10,7 km. Rigningin mældist ekki en er alltaf jafn leiðinleg W00t

Hrafnistuhringur í rigningarúða

Var snemma í því... Vala var í togi í sjúkraþjálfaranum svo ég fór Hrafnistuhringinn ein. Það var hlýtt, en rigningarúði.

Hringurinn var 12,5 km Wink hvorki styttri né lengri


Langt í dag

Veðrið var frábært, eiginlega of gott. Ég setti stefnuna á Garðabæinn og á örlagapunkti ákvað ég að fara lengri hringinn... Sólin skein, það var þægileg gola... bara nice, og ég lengdi í lokin til að slétta kílómetratöluna. 

Hringurinn varð 20 km í dag Cool


BREKKUhringurinn

Hitti Soffíu kl 11 við Lækjarskólann og við skelltum okkur í Áslandsbrekkurnar. Veðrið var ágætt, sólin komst ekki gegnum skýin og það var kælingarþjónusta (hægur vindur) allan hringinn. Við skildum síðan heima hjá henni.

hringurinn var 13,2 km hjá mér.


Dásamlegt veður

Hitti Soffíu, hún var þá bæði búin að vera í leikfimi og hjóla heim úr vinnunni... Við hlupum saman Norðurbæjarhringinn okkar í þessu líka frábæra veðri.

7 km voru fram og til baka og 5,2 km með Soffíu... samtals 12,2 hjá mér.


Þung í dag

Veðrið var dásamlega gott, ég hélt það væri kaldara. Drattaðist áfram - frekar þung á mér, komst alla leið heim aftur eins og alltaf. Það var Hrafnistuhringurinn sem var sleginn í dag, 12,5 km


Flugleiðahlaupið

Þó ég sé farin að hvíla í viku eftir maraþon , þá braut ég þá reglu fyrir Flugleiðahlaupið. Ég hefði betur sleppt því... Það kostaði 1000 kr, engir vildarpunktar fyrir þáttöku og þegar ég kom í mark voru verðlaunin ,,buff" Shocking  þ.e. auglýsing fyrir Icelandair. 
Verðlaun hafa algerlega verið klippt út, flokkaverðlaun voru, þ.e. verðlaunapeningur aðeins fyrir þann fyrsta í hverjum aldursflokki. Útdráttarverðlaunum hafði fækkað stórlega.

Öll umgjörð um hlaupið, skráningin og brautarvarslan var til fyrirmyndar en nægir það til að halda þátttakendafjölda uppi - ég held ekki... Bæði fullorðnir og börn vilja fá sinn verðlaunapening og engar refjar.


Cox Sports Providence Marathon 2.maí 2010

Cox Sports Providence Marathon & Half Marathon and 5K
Providence, RI USA, 2.maí 2010 http://www.rhoderaces.com

Cox Providence 2.maí 2010Klukkan var stillt á 4:30 en ég var vöknuð áður. Allt dótið varð að vera pakkað til brottfarar því ég flýg heim á eftir. Ég gat troðið því öllu í skottið, það er ekki gott að láta sjást í töskur í bílnum. Ég tékkaði mig út um 6:30 og keyrði til Providence. Ég var hvílíkt heppin að ná mælastæði í miðbænum, en það er frítt á sunnudögum og þar að leiðandi engin tímamörk.

Cox Providence 2.maí 2010Það var svolítið asnalegt system á geymslu-dótinu, það var tékkað inn á 3. hæð á Westin, svolítið frá startinu. Þar var ég með mynda-vélina, bíllyklana og það sem ég var í þar til rétt fyrir start. Það var því smá vesen að láta mynda sig fyrir og eftir hlaupið og ég nennti ekki að fara aftur á startið í öfuga átt við bílinn... fyrir eina mynd.

Hlaupið var ræst kl 8. Veðrið var hlýtt og ég of mikið klædd, í síðum hlaupabuxum. í fyrstu var skýjað og þægileg gola í fangið. Mér gekk rosa vel að 16.mílu. þá fór að síga í mig þó ég hellti yfir mig vatni svo fötin væru blaut og kældu aðeins. Frá ca 20.mílu var sólin farin að hita verulega... þá fór ég að ganga meira á milli...

Tími og vegalengd mældust 5:32:08 og 27,02 mílur (43,49 km.) á mínu Garmin.

Cox Providence Marathonið er 121 maraþonið mitt
Rhode Island er 46. fylkið mitt

Bara 4 fylki eftir… Cool


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband