Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Rigningarsprettur


Sendi sms til Þóru Hrannar... ertu til að haupa núna? og það stóð ekki á svari... Svo ég hljóp heim til hennar sem eru tæpir 3km. og við hlupum öfugan Norðurbæjarhring sem reiknaðist 6,2 km. og svo hljóp ég heim, tók smá slaufu aukalega svo vegalengdin endaði í 12,2 km.
Það rigndi allan tímann og ég var eins og hundur af sundi þegar ég kom heim....

Næst er það sennilega morgunsprettur með Þóru Hrönn á fimmtudag.... Smile

Allt í rugli...


Það er allt í hers höndum hér, bíllinn bilaði, lak olíu og þvottavélin vildi fyrst ekki dæla af sér vatninu og byrjaði síðan að leka....
Bíll og þvottavél eru mikilvægustu tækin á heimilinu... bæði byrja að leka ???

Bíllinn hefur verið á verkstæði í allan dag... þess vegna engin leið að fara neitt með þvottavélina svo það er allt á rúi og stúi hérna núna.... engin hurð á klósettinu, þurrkarinn frammi á gangi og þvottavélin á miðju baðgólfi....  og heimasætan nýkomin frá Portúgal með haug af þvotti...

Á síðustu stundu varð ég að hætta við að hitta Þóru Hrönn við Lækjarskóla.... sendi henni sms-skilaboð, hleyp á morgun í staðinn Smile  í dag verð ég að láta mér nægja að hlaupa upp til handa og fóta út af þessu ástandi...


Ljósanótt & hálfmaraþon

Jæja, það byrjaði að rigna á leiðinni suðureftir, en síðan stytti upp. Það blés og var kalt og þá er mér alltaf hætt við að klæða mig of mikið.  Hlaupið var ræst kl 10:30´

Fyrst var kalt og vindur en svo lægði, og fór að rigna, svo það voru allar gerðir af veðri. Það sprettu allir úr spori og eins og venjulega... og í litlum hlaupum....  þegar það eru fáir, þá er tilhneigingin að fara of hratt af stað.
Ætlunin var að hafa þetta ,,æfingarhlaup" sem þýðir ,,hægt og langt"  GetLost

Ég ætti fyrir löngu að vera hætt að selja mér svona hugmyndir.... En svo hægði ég á mér svo ég dæi ekki í miðju hlaupi og fór vegalengdina á 2:24:00

Ætli það sé ekki mánudagur næst kl. 17:30   Errm


Suðurnesjamaraþon

Það lítur helst út fyrir að ég hlaupi suður í Kefl..... Reykjanesbæ á ljósanóttardag.....
Wink   Gaman gaman...

Hlaupið er ræst kl 10 fh.... svo dinglar maður sér eitthvað í bænum, fer í sund, grilla um kvöldið með krökkunum og horfi á þegar ljósin verða kveikt í klettunum.


Brekkur... :0)

Það hentaði okkur þrem, mér, Soffíu og Þóru Hrönn að hlaupa í dag kl. 10 fh.  Veðrið var yndislegt og það er alltaf svo gott að geta hlaupið á morgnana... eiga daginn eftir. 
Við hlupum Áslandsbrekkurnar, þessi hringur er frábær... Smile og enda svo að fara meðfram sjónum á Strandgötu og Fjarðargötu. 
Við Þóra Hrönn skiluðum Soffíu heim og skildum svo á Hverfisgötu við gamla Bókasafnið... þetta voru 7,7 km hjá mér.... Tounge ég hafði skilið bílinn eftir við Lækjargötu.


Handfarangur

Í minni fyrstu ferð í maraþonhlaup, hitti ég annan og reyndari hlaupara á flugvellinum úti á meðan ég beið eftir töskunni minni.
Hann átti ekki orð yfir kæruleysi mitt að ,,tékka inn" hlaupadótið.... því ef það skilar sér ekki - er ferðin ónýt.

Mikið rétt.... eftir þetta samanstendur handfarangur minn af hlaupaskóm, hlaupagalla og þar til 9/11 vesenið byrjaði, þá hafði ég vaselín, orkugel, naglaklippur og fl. sem er bráðnauðsynlegt að hafa með sér... allt í handfarangri.

Margar ferðirnar hafa verið farnar síðan og nokkrum sinnum hefur farangurinn ekki skilað sér... en það hefur ekki komið að sök, ég hef komist í hlaupin.


mbl.is „Töskurnar eru á leiðinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minni lungu...

Ég reykti einu sinni 1 og 1/2 pakka á dag.
Ég hefði sennilega aldrei viðurkennt það eða áttað mig á því hvað ég reykti raunverulega mikið, ef ég hefði ekki alltaf keypt karton... það dugði aldrei nema viku.  Það þýddi því ekki að reyna að blekkja sig á þessu pakkadæmi sem allir eru í...
Nú er alltaf verið að gera alls konar kynjabundnar rannsóknir.... þegar þær eru verri fyrir kvenfólk taka konur ekki mark á þeim og öfugt...

En ég verð að viðurkenna að mér finnst mjög líklegt að reykingar fari verr með konur en karla... því þær eru með minni lungu... en sama sogkraft til að soga óþverrann ofan í sig.


mbl.is Áhrif reykinga verri á konur en karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta smellpassar...

Veðrið hefur verið himneskt í dag og í gær.... 
þrátt fyrir hið góða veður var .... konan....hmmmm... svo sjálfsöguð við ritgerðarsmíð, að hún klæddi sig ekki fyrr en tími var til að fara í hlaupadressið...

Ég vissi að Soffía og Þóra Hrönn ætluðu að mæta.... en Þóra Hrönn sagðist verða aðeins of sein, var með barnabarn... Eins og undanfarið hljóp ég að heiman, var aðeins of snemma við Lækjarskóla, svo ég hljóp heim til Soffíu, við tókum einhverja smá slaufu á leiðinni til Þóru.

Þar kjöftuðum við í ca 15 mín, en eigandi barnsins lét ekki sjá sig, svo við Soffía fórum, hlupum Norðurbæjarhringinn.... Ég hljóp heim og hafði þá hlaupið 13,5 km... í þessari líka blíðu.

Á fimmtudaginn hentar það okkur þrem að hlaupa kl 10 fh.
Ég ætla að heimsækja dóttir og barnabörn í Keflavík, vera við opnun sýningar Eddu systir á Ljósanótt seinnipartinn og sækja heimasætuna á flugvöllinn... Þetta smellpassar allt.


Hitasveifla :o)


Það var sannkölluð hitabylgja... ég snattaði fyrir hádegi, fór í berjamó og hljóp svo...

Ég vissi ekki um neina sem ætlaði að hlaupa og hljóp því að heiman... var samt sem áður kl. 17:30 á Lækjarskóla, en engin mætti... Soffía keyrði fram hjá.
Ákvað að hlaupa strætó-hringinn í Setberginu, sömu leið til baka og svo heim aftur, ná þannig ca 10 km.
Það var hvílíkur hiti... logn, sól ... eins og um mitt sumar. Ég mætti Eið í Setberginu og hann snéri við og hljóp með mér nokkra kílómetra.
Hringurinn endaði í 9,6 km og það er spáð svipuðu veðri á morgun.... svo maður mætir kl. 17:30 á sama stað.


Hlaup í dag

Já, já..... september kominn.... maður verður að sætta sig við það...
dagurinn er pakkaður, það á að gera svo mikið, en samt sem áður er planið að hlaupa frá Lækjarskóla kl 17:30  Smile

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband