Færsluflokkur: Íþróttir

Reykjavíkurmaraþon, 23.ág. 2008

Það leit ekkert sérlega vel út með veður, en Bylturnar eru svo blessaðar... það hélst nær þurrt fyrstu klukkutímana. Startið var kl 8:40... fínt að byrja snemma. 
Reykjavíkurmaraþon 23.8.2008Ég fór aðeins of hratt af stað en hélt það út þar til ég lenti í mótvindi síðustu 7 kílómetrana á Nesinu.... svo bættist við úði og síðan rigning... en það var ekkert miðað við spána. 

Gullið, Bíðari nr 1, beið á 32 km. blettinum og hjólaði með mér síðustu 10 km. Hvílíkur munur að geta farið úr jakkanum, fengið almennilegan orkudrykk hjá honum og félagsskap....  ég er hvorki fyrir Gatorade eða Powerade... svo var þessi elska með súkkulaði og auðvitað myndavélina. 

Síðasta km hjólaði hann á undan til að ná mynd í markinu.  Ég er hæst ánægð með tímann minn, 5:03:48.... sem ég náði þrátt fyrir mikið æfingaleysi.

4 úr Byltuhópnum hlupu hálft maraþon, Magga og Þórdís hlupu í fyrra en Þóra Hrönn og Ingileif voru að hlaupa vegalengdina í fyrsta sinn... og þetta var glæsilegt hjá þeim öllum.

Til hamingju með hlaupið stelpur    Kissing 

Margrét Halldórsdóttir   2:05:30
Þórdís Bjarnadóttir        2:21:17
Þóra Hrönn Njálsdóttir  2:21:24
Ingileif Malmberg          2:22:02


Gögnin sótt - pastaveisla


Þá er dagurinn að renna upp  Tounge

Ég ætla að kíkja í Afreksvörur áður en ég sæki gögnin fyrir Reykjavíkurmaraþon, það er ábyggilega útsala þar eins og í fyrra.
Það er hentugast, svo maður sé ekki að fara tvær ferðir...  að sækja gögnin kl 4 og taka pastaveisluna um leið. Smile

Svo tekur maður það rólega og fer snemma að sofa. Sleeping


Ástjörnin að hverfa !

Það hentaði Ingileif og Þórdísi að hlaupa kl. 5 og það var í lagi mín vegna... en þær ætluðu að hlaupa á einhverju vissu hraðatempói... sem hentaði mér ekki.

Þess vegna hljóp ég út úr dyrunum heima á sama tíma og þær og ætlaði bara að fara stutt, fara hring um Holtið og Ástjörn. Ég var komin upp á Holt þegar Áslaug vinkona hringdi í mig, ég snéri við, hljóp heim til hennar og við fórum hring um Ástjörnina.  Mér brá nú heldur í brún, tjörnin er orðin að smá polli, ég hef aldrei séð svona lítið vatn í henni.

Hringurinn í dag sem átti að vera stuttur, varð 9 km.... og nú ætla ég bara að taka það rólega fram á laugardag.  Cool


Enn og aftur ein á ferð

Ég mætti samviskusamlega við Lækjarskóla kl. 17:30, en konan mætti ein... ja-jú nema Guð,  hann mætir alltaf... á hvaða tíma sem er... er aldrei of upptekinn.

Ég ákvað að byrja á Setbergshringnum, en þar sem hann var ekki nógu langur fyrir mig (þar sem ég kom á bíl) ákvað ég að hlaupa inn í gamla Víðistaðahringinn sem ég hljóp svo oft um árið með Snorra vini mínum. En það var heldur ekki nógu langt svo ég lengdi með því að fara meðfram sjónum... þessi leið er bara orðin of stutt, ég verð að búa til einhverja góða lengingarslaufu á hana Wink
þegar ég kom að bílnum var ég aðeins búin að hlaupa 8 km. en hafði ætlað að hlaupa 8-10 í dag. En ég lét slag standa.

Ég er ekki viss hvort ég hleyp á morgun eða miðvikudag, en það verður síðasti spretturinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið á laugardag.


Hljóp ein...


Þórdís var ekki viss hvort hún færi út úr bænum, ef hún færi ekki myndi hún hlaupa með mér.  En það kom sms -hleyp ekki í dag- svo ég fór ein. 

Einmitt þegar ég ætlaði út úr dyrunum kom hellidemba.... svo ég beið í nokkrar mínútur og hljóp svo af stað. Garðabæjarhringurinn er í uppáhaldi hjá mér núna og ég var heppin, það var svolítið hvasst á köflum.... gott að vera loksins búin að staðsetja þessa kafla sem veðurfræðingar tala alltaf um, þeir eru í bryggjuhverfinu í Garðabæ, á Álftanesveginum og við Sundhöll Hafnarfjarðar... en það var að mestu leyti þurrt á meðan.

Þar sem ég hljóp að heiman, Garðabæjarhringinn og heim... fór ég 15,5 km. í dag Tounge 


Það kemur ekki fyrir aftur...

Við vorum 5 sem hlupum Áslandsbrekkurnar í dag.
Veðrið var gott, ég sá á mælinum í bílnum á leiðinni niður eftir að það var 15 °c hiti.  Efst í brekkunum kom hellidemba.... eins og við værum í sturtu. Svei mér, og ég var að hlaupa í fyrsta sinn í sumar derhúfulaus. Stelpur, það kemur ekki fyrir aftur. 

Það eru tveir hringir orðnir í uppáhaldi hjá mér, Áslandið og Garðabær. Áslandshringurinn eins og hann var upphaflega er 7 km. Virkilega góður hringur sem er hægt að lengja með því að fara kringum Ástjörn eða allt Vallarhverfið.

Þóra Hrönn fer til útlanda á morgun, Ingileif í frí, Þórdís er ekki viss hvort hún hleypur á laugardag og Soffía kemur næst á mánudag..... en ég stefni á að hlaupa Garðabæjarhring á laugardaginn kl.10


Hlaupagellur


Eins og undanfarið hefur veðrið leikið við okkur, það dropaði aðeins þegar ég hljóp út úr dyrunum heima, en það var ekki neitt neitt.

Ég hitti Ingileif og Þóru Hrönn við Lækjarskóla og það er svo mikill stórhugur í þeim og þær eru orðnar svo miklar hlaupagellur að ég á fullt í fangi að fylgja þeim. Þær ætla báðar að skella sér í hálfa maraþonið í Reykjavík.... Smile frábært hjá þeim.

Nú reima þær stöllur ekki á sig skóna nema til að hlaupa amk í annað bæjarfélag. Við fórum Garðabæinn... sem er ekkert nema skemmtilegt... í þriðja sinn í röð.  
Núna tókum við upphaflega hringinn okkar sem er um 10 km og þar sem ég hljóp að heiman og heim, náði ég 16 km...Cool

Síðan er búið að ákveða Setbergshring á morgun kl. 17:30


Rútínan skiptir máli

Gullið mitt hélt einu sinni að mér fyndist eitthvað voðalega leiðinlegt að hlaupa alltaf sömu hringina. Þetta var á þeim árum sem ég átti mældar leiðir út um allan bæ en hélt mest upp á Hrafnistuhringinn, sem bauð upp á ótal lengingarmöguleika.

Þegar ég vopnaðist GPS úrinu, þá varð ég frjáls.... nú veit ég alltaf hvað ég er að hlaupa langt.... þá kemur óvænt upp á borðið að það er samt sem áður rútínan sem gildir.
Það skiptir máli að vita hvert á að fara... það skiptir máli, þegar maður hleypur með öðrum, að hlaupa á ákveðnum tíma og ákveðinn hring á ákveðnum degi. 

Kl 10 í morgun hittumst við 3 við Lækjarskóla, ég, Ingileif og Þóra Hrönn.  Þóra Hrönn vissi að Magga ætlaði að hitta okkur í Garðabæ, en engin átti von á Þórdísi við Kaplakrikaundirgöngin. Þannig að það var ekki bara tíminn sem þurfti að passa, heldur hringurinn líka. 

Mér finnst þessi rúntur um Garðabæ alveg sérlega skemmtilegur og kósí.
Við fórum hring um bæinn að Arnarnesinu meðtöldu. Það var heitt og ég drakk ekki nóg á leiðinni. Síðan brann ég undan svitanum undir höndunum og stytti þá leiðina eitthvað með því að koma við heima hjá Þórdísi og fá vaselín.

Þar sem ég hljóp að heiman og heim, náði ég sléttum 21 km.


Góður hringur

Smile

Það leit út fyrir að það myndi hellirigna... 
en þegar ég hljóp út úr dyrunum heima, þá stytti upp. Ég hljóp niður að Lækjarskóla og hitti þar Ingileif, Evu vinkonu hennar og Hlín dóttur hennar og við fjórar hlupum Áslandsbrekkurnar í þessu fína veðri.  Síðan hljóp ég heim svo ég fékk 13 km. út úr þessu.
Hringurinn var æðislegur og ég finn að ég er að koma til baka.... Ég hef ekkert tekið á fram að þessu, hef bara tekið þetta rólega...

Þetta var hreint út sagt frábært  Cool


Eftir verslunarmannahelgi...

Cool     Ég náði ekki að hlaupa í gær... Við komum ekki heim fyrr en um kvöldmatarleytið. Við vorum með dætrunum og fjölskyldum þeirra á Snæfellsnesi frá föstudegi til mánudags... nánar til tekið á Arnarstapa.
Helgin og öll samveran heppnaðist einstaklega vel... Gengið var til Hellna og til baka og Stapafellið var klifið ásamt öðrum skemmtilegheitum.

Veðrið var dásamlegt... og ekki ætlar sólinni að linna, þess vegna var dásamlegt að fara út í dag og hlaupa. Við vorum 3..... Magga, Þóra Hrönn og ég. Við fórum 11,6 km samkvæmt mínu úri... skemmtilegan Garðabæjarhring.

Þóra HrönnNákvæmlega á 5 km punktinum... fór Þóra Hrönn á hausinn... varð formlega BYLTA. Hún hruflaðist á hné og lófum en vildi halda áfram með hringinn.
Það er alltaf jafn óþægilegt að detta og sérstaklega á steypu eða grófu malbiki.... en Þóra Hrönn, þú jafnar þig í veiðinni og kemur stálslegin til baka á laugardag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband