Ætlaði að koma mér út fyrir dyrnar SNEMMA í dag, en það varð einhvernveginn allt annað í forgangi... hjólaði meira að segja út í Bónus og verslaði inn fyrir helgina... Var svo heppin að rekast á brodda hjá þeim og líst svona hrikalega vel á þá... og ekki sakar verðið tæpar 800 kr... mörgu sinnum ódýrara en fyrsta koma á slysadeild.
Ég var sennilega fyrsta manneskjan sem ákvað að hlaupa á broddum og var hlegið að mér í denn, því broddar voru bara fyrir gamlingja ;) ... en svo hljóp ég fram úr öllum.
ég drattaðist síðan út seinni partinn og hljóp þá hringinn um Ástjörn og Vallarhverfið... veðrið var gott og konan bara í ágætu stuði og hringurinn hefði mátt vera lengri :)
7,3 km í dag og mikið að gera :)
Íþróttir | 18.1.2013 | 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fór ekki út fyrr en frostið var farið og ís-skánin bráðnuð á gangstéttunum. Ég var ein og veðrið ekki að leika við mig. Fyrst fór að rigna en síðan að hvessa. Ég hljóp út á Krísuvíkurveg og fyrst niður að Reykjanesbraut en síðan í áttina til Krísuvíkur. Fyrst skildi ég ekkert í hvað kílómetrarnir voru lengi að halast inn en svo áttaði ég mig á að úrið var enn stillt á mílur... smáatriðin alltaf að stríða manni.
Niðurrignd og vindbarin fór ég 11,5 km :D
Íþróttir | 16.1.2013 | 19:30 (breytt kl. 19:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ú... það var kalt en sem betur fer var ekki vindur. Við Vala hittumst við Sjúkraþjálfarann og skokkuðum okkar Hrafnistuhring. Það eru smá viðbrigði eftir að hafa verið úti í 3 vikur í sæmilegum hita að fara út í kuldann hérna. Ég var á broddum - ekki veitti af... við fundum báðar fyrir hálkunni.
Hrafnistan jafn löng og á liðnu ári, 12,5 km.
Íþróttir | 14.1.2013 | 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mississippi Blues Marathon & Half-Marathon, Relay Jackson, MS USA, 5.jan 2013

Klukkan var stillt á 4:30 en Lúlli var vaknaður áður og kominn á stjá. Lobbýið opnaði ekki fyrr en kl 5:30 svo ég drakk vatn með brauðinu. Veðurspáin var ágæt, spáði frekar "köldu" svo ég var heppin að hafa keypt mér langerma Danskin bol á 6 USD í Walmart. Ég var í honum undir Stolt-bolnum mínum.

Við vorum mætt mátulega snemma fyrir myndatökuna hjá Marathon Maniacs á tröppunum á Old Capitol. Ég hitti marga Maniaca sem ég er FB-vinur en hef ekki hitt persónulega fyrr.

Klósettröðin var svo löng að ég komst að eina mínútu fyrir þjóðsönginn.
Lúlli sá Steve Boone í miðri þvögunni og við óvirtum þjóðsönginn með því að troða okkur til hans.
Maraþonið var ræst kl 7. Það eina sem ég mundi frá maraþoninu 2009 var hvað göturnar voru slæmar - þær voru ekki skárri núna og ég veit um tvo sem fóru illa á hausinn.
Ég er bara ánægð með mig, var ekki í þjálfun fyrir EITT maraþon og var að fara FJÓRÐA í þessari ferð... og ÞRÍR dagar á milli núna.
Maraþonbrautin var frekar hæðótt - ups and downs... ég gekk oft upp en reyndi að halda dampi niður og á sléttu.
Lúlli hitti mig þegar ég var búin að hlaupa 21,5 mílur og beið svo í markinu eftir mér. Verðlaunapeningurinn var flottur gítar með gítarnögl hangandi í keðju.
Ummm hvað það var gott að fá loksins að borða því það var ekki boðið upp á matarbita á leiðinni.
Þetta maraþon er nr 153 í röðinni.
Garmin mældi það 26,34 mílur og
tímann 5:52:55
Íþróttir | 5.1.2013 | 21:29 (breytt kl. 22:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Ég tékkaði á maraþon skránni hjá mér, hljóp hér síðast 2009... með því fáa sem ég man úr því hlaupi var hvað göturnar eru slæmar hérna.
Við sóttum gögnin í The Convention Center eh og vorum snögg að því... expoið var mjög lítið.
Ég verð nr 885.
Síðan dúlluðum við okkur bara, skruppum í útivistarbúð fyrir Emil og eitthvað fleira, áður en við fengum okkur að borða.

Maraþonið verður ræst kl 7 í fyrramálið, Maniac-myndataka kl 6:30 og svo framvegis... Þetta er náttúrulega allt saman EIN STÓR BILUN - er þaggi???
Kom við í Hobby Lobby til að kaupa mér strau-stafi á nýja 50 fylkja bolinn minn :)
Nú er bara að gera sig klára fyrir morgundaginn...
og stilla klukkuna á einhvern ókristilegan tíma :/
Íþróttir | 4.1.2013 | 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Metal Sawing Technology Texas Marathon
Kingwood, TX USA 1.jan. 2013
http://www.50statesmarathonclub.com/texas.html

Klukkan hringdi kl 5 en við vorum vöknuð áður. Fengum okkur morgunmat, ég teypaði tærnar, við pössuðum að fara örugglega með allt með okkur, númerið, úrið, derið, myndavélina og fl. og drifum okkur af stað um hálf 7. Maraþonið er á göngustígum í íbúðarhverfi og bílastæðin eru á götunum í kring. Við vildum vera viss um að fá stæði eins nálægt og hægt var.

Steve og Paula vita nákvæmlega hvernig á að gera hlaupara ánægða. Allt í kringum maraþonið var fagmennska fram í fingurgóma og allt ómælt. Auðvitað var hópmyndataka hjá Marathon Manics fyrir hlaupið og fyrir tilviljun stóð ég við hliðina á David Holmen sem ég hitti í Reykjavik 2011.

Maraþonið var ræst kl 8 en hálfa 15 mín seinna. Hlaupnir voru fjórir hringir, það er að segja að fyrstu tvær og tvær síðustu mílurnar í hringnum voru sama leið en farið kringum vatn áður en maður snéri til baka. Lúlli var aðstoðarmaður í markinu á meðan ég hljóp... Allir voru svo ánægðir að hann þurfti bara að segja: "YES"
Fyrstu þrjár ferðirnar liðu fljótt en í fjórðu ferðinni fannst mér hringurinn í kringum vatnið aldrei ætla að taka enda - þá voru orðnir færri í brautinni og ég farin að ganga á milli. Brautin var annars ágæt, það rigndi aðeins á leiðinni og hafði rignt um nóttina þannig að maður tiplaði framhjá nokkrum pollum og svo gátu laufblöðin verið hál.

Þegar ég kom í mark fékk ég þann stærsta verðlaunapening sem ég hef á ævinni séð. Hann hefur útlínur USA og útlínur Texas í miðjunni og vegur 1,5 kg. Paula og Steve eru aldrei með flokkaverðlaun - allir eru jafnir og fá allir "dýr" hlaupsins sem var rotta í ár með númeri, ég var nr 185 í mark í heilu.
Texas Marathon er nr 152 í röðinni hjá mér. Fimmta maraþonið sem ég hleyp í Texas... og maraþonið var hlaupið til heiðurs lang-ömmu-krúttinu mínu, Emilíu Líf sem er eins árs í dag.
Garmin mældi leiðina hárrétta eða 26,2 mílur
og tímann 5:54:46
Íþróttir | 1.1.2013 | 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)

Árið byrjar vel - með maraþoni í Texas.
Við sóttum númerið fyrir Texas Marathon í dag... en maraþonið er alltaf á nýjársdag.
LOKSINS hafði ég tækifæri til að kaupa mér 50 States Marathon Club FINISHER shirt :D
Hvílíkt þrekvirki hjá þessum hjónum, Steve og Paulu Boone að skipuleggja og sjá um alla framkvæmd á þremur stórum maraþonum og risa-jólaboði á 10 dögum... enda held ég að þau séu úrvinda.

Ég hljóp þetta maraþon 2006... að hugsa sér - fyrir 7 árum, mér finnst svo stutt síðan. Verðlaunapeningurinn er leyndarmál en Lúlli reyndi að kíkja í pappakassana... peningarnir eru svo stórir og þungir að það eru bara 10 stk í hverjum kassa.
Maraþonið verður ræst kl 8 og veðurspáin er ágæt, samt einhver möguleiki á rigningu.
Nú er bara að stilla klukkuna og hvíla sig :D
Íþróttir | 31.12.2012 | 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Ég hef alltaf setið heima og skrifað annál ársins en nú er ég stödd í Texas. Í fyrra náði ég þeim ótrúlega áfanga að hlaupa maraþon í fimmtugasta og síðasta fylkinu og hljóp alls 13 maraþon á því ári.
Í ár fór öll orkan fyrri hluta ársins í að útskrifast úr guðfræðideildinni og einhvernveginn fór allur vindur úr mér eftir það - tveim stórum áföngum var lokið - nú var tími til að halla sér aftur á bak.
Árið byrjaði á því að ég hljóp HÁLFT maraþon í Orlando - HVAÐ ER AÐ GERAST ???... nei, nei ég hljóp GUFFA. Hálft maraþon fyrri daginn og heilt daginn eftir. Það kostar lifur og lungu að taka þátt í Guffa en ég lét mig hafa það til að fagna hinum stóru áföngum. Síðan flugum við til Arizona því stefnan þetta árið var að hlaupa nokkur Rock´N´Roll maraþon á sama árinu og fá flott auka-BLING fyrir það.
Í upphafi ársins þorði ég ekki að vonast eftir mörgum, þetta eru svo dýr maraþon og dreifð að það er ómögulegt fyrir mig að hlaupa mörg í ferð - en í árslok eru þau orðin FIMM.
Phoenix Arizona........ 15.jan.
Nashville Tennessee. 28.apr.
San Diego.................... 3.júní
Denver....................... 22.sept.
Las Vegas.................... 2.des.
Heima hljóp ég bæði vor-og haust-maraþonin og í Reykjavík heilt maraþon 16.árið í röð.
Síðustu fjögur ár hef ég hlaupið 1x tvö maraþon á einni helgi. Ég var skráð í svona samloku í júní þegar ég fór í annað sinn á Reunion hjá Marathon Maniacs en varð að hætta við það.

Það var síðan fyrir algeran klíkuskap að ég komst inn í hrikalega spennandi samloku-hlaup... End of the World Marathon og Day After the End of the World Marathon, 21 og 22.des. en 21.des endaði dagatal Mayanna. Hvor verðlaunapeningur fyrir þessi hlaup er rúmlega hálft kíló og þeir sem hlupu bæði maraþonin fengu gull-auka-pening sem hafði báðar hliðar hinna peninganna.
End of the World Marathon var 150.maraþonið mitt.
Það voru vinir mínir Paula og Steve Boone í 50 States Marathon Club sem héldu maraþonin og kreistu mig inn... og svo vildi til að með stuttum fyrirvara fann Bíðari nr.1 flugfar á viðunnandi verði... og nú bíðum við eftir Texas Maraþoni sem þau halda 1.jan ár hvert.
Samtals hljóp ég 12 maraþon á þessu ári...
3 heima og 9 í sex ferðum til USA.
Ég hef ekki tekið saman hlaupna kílómetra á árinu. Ég skráði áður hlaupin í hlaupadagbókinni en eftir að hún hrundi nenni ég ekki að standa í svoleiðis. Ég held utanum hlaupin mín sjálf á bloggsíðunni og í exel skjali, bara fyrir mig :) en maraþonin eru alls orðin 151 talsins.
Ég er með sérstakan færsluflokk MARAÞON til hliðar þar sem ég safna saman maraþonfærslunum og albúm með fylkjunum. Þar sést hvaða maraþon ég hef hlaupið í hverju fylki fyrir sig.
Gleðilegt nýtt hlaupa-ár
Íþróttir | 31.12.2012 | 00:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Day after the End of the World Marathon
Humble, TX USA 22.des. 2012
http://www.50statesmarathonclub.com/afterworld.html

Ég vissi nákvæmlega hvað beið mín í dag... sama leið og í gær, 4x fram og til baka með krókaleiðum kringum vatnið... Við vöknuðum á sama tíma (kl 5) og fórum á svipuðum tíma af stað um kl 7.
Ég var með tvennan hlaupagalla til að hlaupa í þessa helgi - nema skó.. þeir voru þeir sömu og í gær. Ég hef 4x áður hlaupið 2 maraþon á einni helgi en alltaf verið með tvenna skó. Ég var ekki einu sinni með NIKE trail skó sem ég hleyp venjulega í allt árið því ég er með slæmt tábergssig og þarf loftpúða undir tábergið.
Hlaupið var ræst kl 8 eftir myndatöku hjá Marathon Maniacs og þjóðsöngnum - sem ég kann orðið betur og heyri oftar en þann íslenska.
Fyrst var ég nokkuð brött en síðan varð ég ofboðslega fótsár á hægra táberginu, en það kom ekkert annað til greina en að klára. Veðrið var frábært og lá við að ég sólbrynni á höndunum. Ég þorði ekki annað en að hlaupa í síðum buxum út af sárunum á hægra fæti - glerhart og ójafnt undirlagið hefði getað verið fjötur um fót þegar maður er þreyttur í ofanálag.
Ég var ein alla leiðina núna - hljóp með Róberti ,,vinkonu" í gær ;D... Hann sagði að Carol Maniac kallaði sig ,,girl friend" af því að hann talaði svo mikið.Margir sem hlupu í gær hlupu aftur í dag, því að er rosalega flottur peningur auka fyrir það. Þessi peningur er minni en hefur báðar hliðar stóru peninganna.
Ég var orðin gersamlega uppgefin á táberginu þegar ég kom í mark og komin með upp í kok af Gatorate. Ég fékk mér pizzu sneið og síðan fórum við á hótelið.
Þetta maraþon er nr 151
Garmin mældi það 27,11 mílur...
og tímann skelfilega langan... 7:10:04 :/
Íþróttir | 23.12.2012 | 01:08 (breytt 29.12.2012 kl. 22:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
End of the World Marathon & Half Marathon
Humble, TX USA 21.des. 2012
http://www.50statesmarathonclub.com/endworld.html

Þetta er stresslausasta maraþon sem ég hef tekið þátt í. Klukkan hringdi kl 5 en við erum bara 3 mílur frá starti og marki. Eftir að hafa snúist í hringi við þetta venjulega þá keyrðum við af stað rétt fyrir kl 7...
Þetta maraþon tók aðeins 1000 þátttakendur samtals í heilu og hálfu. Fyrir hlaupið var sameiginleg myndataka Marathon Maniacs og 50 State Marathon Club.

Hitinn var rétt yfir frostmark í byrjun en það hitnaði fljótt og var um 15°c.
Ég þorði ekki annað en að hlaupa í síðum buxum, ef ég skyldi detta og rífa upp sárin á fætinum og svo var ég í flíspeysu fyrsta hringinn af fjórum.
Brautin var ójöfn, leyndar kanínuholur, rætur og sig í jarðvegi fyrir utan drullupytti og ,,kviksyndi" og endalausar krókaleiðir í hverjum hring. Á hverri drykkjarstöð var fólk á snakki enda sagði í lýsingu fyrir hlaupið - There´s no need to hurry to the end of the world... hehe.. ég fékk líka nóg af samræðum á leiðinni og margir sem heilsuðu mér og sögðu mér í hvaða maraþonum við höfðum hist. Enginn var í stressi og nóg tekið af myndum :D
Maraþonið mældist alltof langt - enda miðað við Maya-mílur ;) hehe... en medalían er sú glæsilegasta sem ég hef fengið - og á ég safn af hrikalega flottum verðlaunapeningum.
Þetta er 150. maraþonið mitt
Garmin mældi vegalengdina 27,91 (Maya)-mílur og tímann 6:46:49
Tóm snilld :D
Íþróttir | 21.12.2012 | 23:06 (breytt 22.12.2012 kl. 02:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)