Færsluflokkur: Ferðalög
Medtronic Twin Cities Marathon & 10 Mile, 5K, Minneapolis/St.Paul, MN USA, 5.okt 2008
http://www.mtcmarathon.org/
Hótelið okkar er mitt á milli start og finish. ca 7 mílur að keyra á startið.
Ég lét klukkuna hringja kl 5. Svaf sæmilega á köflum... þ.e.a.s. ég fór snemma að sofa, en vaknaði við sennilega drykkjulæti í herberginu fyrir ofan okkur... ótrúlegt plamp og dynkir í 2-3 tíma... en svo gat ég sofnað aftur. Ég er svo sem vön að vera þreytt, þar sem ég hef aðeins einu sinni á allri minni ævi vaknað óþreytt.
Lúlli keyrði mig á startið, við vorum komin þangað um sjö. Lentum í vandræðum með gjaldmælirinn en bílastæðið var á besta hugsanlega staðnum, hinum megin við gatnamótin þar sem hlaupið byrjaði, ég þurfti bara að ganga ca 100 metra.
Hlaupið var ræst kl 8 og á annarri mílu byrjaði að rigna eins og spáin sagði. Þvílíkt úrhelli, ég hefði ekki verið blautari þó ég hefði hent mér í ána. Þeir gorta af því í bæklingnum um maraþonið að hlaupaleiðin sé sú fallegasta í Usa... ég segi nú bara - þeir hafa ekki farið í önnur hlaup og ég man nú ekki mikið frá hlaupinu hérna fyrir 8 árum, annað en að mér fannst hlaupið ,,ekkert sérstakt" og nú hefur það enn lækkað í áliti. Þjónustan á leiðinni var mjög léleg.
Eftir 9 mílur hafði ég einungis farið í gegnum 2 drykkjarstöðvar en svo voru þær á ca 2ja mílna fresti. Áhorfendur eiga allan heiður skilið eftir daginn... að hafa komið að hvetja þrátt fyrir úrhellið í dag... Það stytti upp þegar hlaupið var u.þ.b. hálfnað.
Ég kláraði þetta hlaup á 5:30:19 á mína klukku og var þá orðið nákvæmlega sama á hvað tíma ég kæmi. Ég hafði fengið í bakið á leiðinni... sennilega verið of bogin í rigningunni.
Matartjöldin sem ganga undir heitinu Míla 27... var bara svipur hjá sjón miðað við fyrir 8 árum... það var allt skammtað ofan í mann og ég hefði gjarnan viljað meira.
Ljósmyndari: Bíðari nr 1 og birting mynda með góðfúslegu leyfi hans
Ferðalög | 6.10.2008 | 00:06 (breytt 29.11.2008 kl. 18:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Omaha Marathon & Half-Marathon, 10K, Omaha, NE USA, 28.sept. 2008
http://www.omahamarathon.com/
Klukkan var stillt á kl 5 AM, en það var óþarfi að stilla hana. Hótelið fylltist í gær af unglingum sem skemmtu sér, þangað til ég átti að vakna svo það var lítið um svefn. Við vorum mætt á startið á hárréttum tíma... þ.e. þegar klósettröðin var enn tiltölulega stutt.
Hlaupið var ræst 2 mín fyrir kl. 7 AM. Fyrri helmingurinn var ekkert nema brekkur... OMG og ég fór allt of hratt af stað og eyddi síðan allt of mikilli orku í brekkurnar. Leiðin var frekar leiðinleg, 3svar var hlaupið fram og til baka eftir beinum og leiðinlegum götum, engir áhorfendur og eftir að 10k og hálfmaraþonið var síað úr, var frekar einmannalegt á leiðinni. Fólkið á drykkjarstöðvunum gerði sitt besta til að skapa stemningu og var frábært í alla staði.
Nóg var að drekka á leiðinni af vatni og Gatorade... og einu sinni var gel, milli 18 og 19 mílu. Um leið og hlaupið var ræst birti og síðan smá hitnaði... og fljótlega var hitinn rétt undir 30°c... og ég sem var að vona í gær að það yrði aðeins skýjað.
Seinni helminginn af hlaupinu, var því allt of heitt fyrir mig, örsjaldan aðeins andvari til að kæla og allan tímann var steikjandi sól. Ég var því alveg búin að fá nóg þegar ég loksins kom í mark.
Maraþonið mældist 41,56 km, en það er ekki alveg að marka því gps-úrið datt út undir hraðbrautunum... tíminn hjá mér mældist 5:16:25 og var ég 4. í mínum aldursflokki
Ferðalög | 28.9.2008 | 20:22 (breytt 29.11.2008 kl. 18:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
http://www.ndroughridermarathon.com/
Kroll's Diner ND RoughRider Marathon (formerly Bismarck Marathon) & Half Marathon, Marathon Relay, Bismarck, ND USA , 20 Sept. 2008
Ég fór snemma að sofa og svaf ágætlega ... píndi þar með Bíðara nr. 1 til að sofna líka, þó hann hafi sofið mest allan daginn af því hann var svo slappur.
Klukkan var stillt að vekja okkur kl 5 en við vorum vöknuð korteri fyrr. Maraþonið var sama leið fram og til baka, byrjaði og endaði á sama stað, sem er ágætt. Vegna þess að það eru engin bílastæði við rásmarkið voru rútur frá bílastæði háskólans. Við vorum mætt í síðustu rútu kl. 6:45.
Það var svo skítkalt úti... Hlaupið var ræst á réttum tíma kl. 7:30 en þá var orðið bjart. Fljótlega kom sólin og hitaði heldur mikið... það er ýmist of eða van. Þjónustan á leiðinni var mjög góð en fáir áhorfendur, enda var leiðin eiginlega á skógarstígum og lá út í sveit.
Ég var slétta 5:10:00 að hlaupa þetta maraþon sem var nr. 90 hjá mér og 26. fylkið mitt.
Ég var 4. í mínum aldursflokki
Ferðalög | 20.9.2008 | 20:33 (breytt 29.11.2008 kl. 18:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rexburg Teton DAM Marathon & Half-Marathon, Marathon Relay, 10K, 5K, Fun Run
Rexburg, ID USA, June 14, 2008 ..... http://www.dammarathon.com
Klukkan hringdi kl 4:15, og ég hafði eina ferðina enn sofið illa. Lúlli ákvað að keyra mig alla leið upp að stíflu..... réttara sagt leifunum af henni, því stíflan var ekki endurbyggð. Við eltum því rúturnar uppeftir. Hann fór svo á hótelið í sturtu og morgunmat og tékkaði okkur út fyrir kl 11.
Ég hljóp af stað með hinum kl. 6:30.... fann strax fyrir lofthæðinni... átti erfitt með að anda. Vildi samt ekki gefast strax upp og fara að ganga. Leiðin var erfið, margar langar brekkur og 8 mílur af leiðinni var á malarvegi.
Ég varð fljótt ein.... og nákvæmlega ekkert að sjá á leiðinni. Þau eru oft svona þessi litlu hlaup... í litlum bæjunum.
Svo varð kominn 25 stig hiti um kl 8. Ég hætti að reyna að hlaupa fljótlega, og stóð oft á öndinni við að reyna að ganga hratt. Ca helminginn af leiðinni fékk ég heitan vindinn í fangið.
Kom í mark á 6:00:59 á mína klukku....
Idaho var 25. fylkið og þar með er helmingurinn að þeim búinn... og vonandi er ég þá búin með öll fjallafylkin..... Bíðarinn verður að fara að velja borgarhlaup fyrir mig
Strax eftir hlaupið keyrðum við til Salt Lake City (ca 4 tíma keyrsla)
Ferðalög | 15.6.2008 | 02:21 (breytt 29.11.2008 kl. 18:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
...
Montana Governor's Cup Marathon Helena, MT USA , June 7, 2008 http://www.govcup.bcbsmt.com/
Ég svaf ekkert sérstaklega vel... var alltaf að bylta mér, en klukkan hringdi kl 5 og um 6 keyrðum við á startið.
Á leiðinni í hlaupið keyrðum við framhjá 3 dádýrum á beit í húsagarði.... inni í miðjum bænum. Við áttuðum okkur ekki á að stoppa og taka mynd... og þau voru farin þegar Lúlli keyrði framhjá í bakaleiðinni.
Það var skítakuldi, en ekki lengi. Hlaupið var ræst kl. 6:30. Keppendur frekar fáir, sem fara heilt maraþon. Ég sem skráði mig í fyrradag var nr. 99. Leiðin var ekki spennandi, hlaupið langar beinar götur út úr bænum, stundum á malarvegi.
Það var búið að spá þrumuveðri í gær og skúrum í dag, en það rættist sem betur fer ekki. Við fengum sterkan mótvind eftir að við snérum við, þ.e. síðustu 11 mílurnar, síðan var nokkuð um brekkur á fyrstu og síðustu mílunum.
Á milli 14 og 15 mílu var snúið við og að hluta til farin sama leið til baka. Síðustu 10 mílurnar var ég samferða annarri konu og síðan bættist vinkona hennar í hópinn og gerðist þjálfari okkar. Hún var ekki í maraþoninu en hljóp með okkur síðustu 7-8 mílurnar.
Ég er nokkuð ánægð með minn tíma, 5:46:30 á mína klukku.
(myndir birtar með góðfúslegu leyfi Bíðara nr.1)
Ferðalög | 7.6.2008 | 19:43 (breytt 29.11.2008 kl. 18:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rock 'n' Roll Marathon - San Diego, California, Sunday, jun 1 2008, kl 6:30 |
Ferðalög | 1.6.2008 | 23:01 (breytt 16.12.2008 kl. 13:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
KeyBank Vermont City Marathon & Relay Burlington, VT USA May 25, 2008 http://www.runvermont.org
Ég vaknaði klukkan 2:30 í nótt með dúndrandi höfuðverk og ógleði.... en var samt glöð. Hafði smá áhyggjur af því að hafa enga lyst fyrir hlaupið, sem byrjaði kl. 8:05.
Ekki var ég komin í langar vegalengdir fyrir hlaupið, svo ég reyndi að hlaupa ekki of mikið og ganga eins hratt og ég gat á milli. Þetta er sannkallað brekkufylki.
Það voru sko MARGAR brekkur á leiðinni, en allt gekk vel.
Ég var 6:08:25.... á mína klukku og verð að vera hæst ánægð með það.
Það var 25 stiga steikjandi sól. Svolítið of mikið.
Þjónustan á leiðinni og skipulagning var frábær og bæjarbúar hvöttu hlauparana stanslaust.
Burlington er mjög fallegur bær og sá snyrtilegast sem við höfum séð, hvergi rusl eða drasl.
Við fljúgum héðan kl. 6 í fyrramálið.
Ferðalög | 25.5.2008 | 20:52 (breytt 29.11.2008 kl. 18:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sótti gögnin á föstudag (hlaupársdag) og tók því rólega í gær, laugardag. Í fyrsta sinn hafði ég skráð mig sem WALKER en hafði ekki hugmynd um hvaða kröfur voru settar á mig við það.
Þeir sem þurfa meira en 6 klst verða að fara af stað kl 6.... en hinir fara kl 8. Markinu er lokað kl. 2.
Skráð sem Walker, mátti ég ekki hlaupa neitt, því ég var nú skráð í annan keppnisflokk og ég mátti ekki koma í mark undir 6 tímum. Þannig voru þeir að varna því fólk nýtti sér að fara snemma af stað.
2. mars 2008
Við vöknuðum kl. 4 í nótt. Vorum mætt við startlínuna korter yfir 5 og ennþá myrkur. Veðrið var nokkuð gott. Lögreglan fór fremst og hélt niðri hraðanum þar til kl.8 þegar allar götur hlaupsins voru lokaðar fyrir umferð. Leiðin var ágæt, miklu meiri brekkur en í New Orleans, einhvernveginn samt léttara og í alla staði mjög góð þjónusta á leiðinni.
Mér gekk betur en síðast, hæst ánægð með tímann en ég kom í mark á tímanum 6:24:58.
Síðustu mílurnar hafði ég þjáðst af blöðrusári á vinstra hæl, það er einhvernveginn allt annað álag á fótunum þegar maður gengur, en það gleymdist allt þegar ég sá verðlaunapeninginn...... VÁááááááááá....... hvílíkur hlunkur.
Meðan ég var í maraþoninu, tékkaði Lúlli okkur okkur út af hótelinu og beið með allt draslið í bílnum. Við brenndum út úr bænum, keyrðum 450 mílur suður til New Orleans. Stoppuðum einu sinni á leiðinni og keyptum eitthvað að borða. Klukkan var orðin hálf níu þegar við komum þangað, tókum sexu, kláruðum að pakka, ég komst loksins í sturtu.
Við áttum flug kl. 8:35 til Atlanta, svo við þurftum að vakna kl 5. Flugið til Atlanta var stutt, 1 klst og 2ja tíma munur. Þaðan flugum við til New York, komin þangað kl 2 og svo heim til Íslands kl.8 um kvöldið. Endasprettirnir taka aðeins á...... hlaup, keyrsla og flug. Pabbi og mamma sóttu okkur á völlinn kl 7.
Það er hundleiðinlegt veður, grenjandi rigning ofan í snjóinn. Ég tók upp úr töskunum og var mætt í skólann kl 10. Alveg frábært, kom við í Bónus á leiðinni heim. Þá tekur þvotturinn og lærdómurinn við....... það er ekkert gefið eftir........ svo maður komist í næstu ferð...
Ferðalög | 4.3.2008 | 14:15 (breytt 29.11.2008 kl. 18:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nei, þetta er ekki hass-maraþon.....
Gleymdi að spyrja hvernig nafnið væri komið til.
En hvað um það, maraþon var afgreitt í dag, 24 febr.2008, maraþon sem mældist 43 km samkvæmt Garmin-úrinu.
það var frekar heitt og rakt, sem tók sinn toll af gömlu.
Fyrri hlutinn gekk mjög vel var 3 tíma með hann, en þá duttu út hálfmaraþonarnir og bæði leiðin varð langar einmanalegar götur þar sem varla sála á ferð og svo hitnaði verulega í sólinni.
Ég reyndi að halda dampinum en tókst illa, var 3;45 með seinni hlutann.... slakari tími en í Phoenix í janúar, en það er auðvitað ekki hægt að jafna þessu maraþoni við musik-maraþon.
Louisiana er afgreitt, sem 21. fylkið.
það er ekki eftir það sem er búið.......
Ferðalög | 24.2.2008 | 21:45 (breytt 29.11.2008 kl. 18:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudaginn 13.jan. steinlá eitt maraþonið enn, nr. 82
Eins og sést hefur á blogginu, hef ég ekkert æft í nærri 4 mán og þess vegna var ég búin að afskrifa þetta hlaup.
En vegna þess að ég skráði mig í hlaupið um mitt síðasta sumar og ferðin var keypt og miðuð við hlaupið, stílað upp á að skila bílaleigubílnum í Phoenix og fljúga heim þaðan, þá vorum við á staðnum.
Freistingin var mikil því músik-maraþonin eru svo skemmtileg hlaup.
Ég hljóp þetta hlaup þegar það var í fyrsta sinn og var þá búin að hlaupa Grand Canyon.... þannig að fylkið er afgreitt fyrir löngu.
Hvað um það.... ég ákvað það bara nokkrum dögum fyrir hlaupið að láta mig hafa það. Ganga það í kraftgöngu upp á að hætta ef ég versnaði í hásininni....
en það gekk svo glimrandi vel að ég kláraði á 6:34:53 og finnst mér það ágætt, því eina hreyfingin sem ég hef fengið undanfarið en út í bíl og inn í búð, fyrir utan smá skokk á ströndinni í Redondo.
Mission accomplished - ég er komin heim
Ferðalög | 15.1.2008 | 13:30 (breytt 29.11.2008 kl. 18:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)