Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010
Soffía bað mig á facebook að hlaupa með sér kl 10 í morgun, ég beið í 10 mín við Lækjarskóla en hélt svo áfram. Vaninn hefur verið Garðabær hinn meiri þ.e. 20 km... en vegna hins ótrúlega http://bryndissvavars.blog.is/blog/bryndissvavars/entry/1059742/ þá fór ég bara stutt í dag.
Þetta var bara snilld, ég fann ekkert til, mér fannst samt ekki borga sig að vera með einhverja stæla og taka séns á Garðabænum.
Áslandsbrekkurnar mældust 9 km án Holtsins.
Íþróttir | 29.5.2010 | 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég skellti mér frekar seint út að hlaupa... veðrið var æðislegt, 13-15°c hiti, sól og þægileg gola. Ég hljóp Garðabæ hinn meiri... Þá liggur leiðin um Garðabæ, aðeins inn í Kópvog, niður veginn að Arnarnesinu og með ströndinni inn á Álftanesveginn.
Þetta var hreint frábært - ég er með vissa staði þar sem ég drekk 1 sopa úr flöskunni og þá passar að fylla á hana á vatnshananum hjá Arnarnesinu.
Golan var þægileg, kældi aðeins... hreinasta snilld.
Hringurinn mældist 20 km
Íþróttir | 23.5.2010 | 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta mælist 10,7 km. Rigningin mældist ekki en er alltaf jafn leiðinleg
Íþróttir | 20.5.2010 | 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Var snemma í því... Vala var í togi í sjúkraþjálfaranum svo ég fór Hrafnistuhringinn ein. Það var hlýtt, en rigningarúði.
Hringurinn var 12,5 km hvorki styttri né lengri
Íþróttir | 18.5.2010 | 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veðrið var frábært, eiginlega of gott. Ég setti stefnuna á Garðabæinn og á örlagapunkti ákvað ég að fara lengri hringinn... Sólin skein, það var þægileg gola... bara nice, og ég lengdi í lokin til að slétta kílómetratöluna.
Hringurinn varð 20 km í dag
Íþróttir | 15.5.2010 | 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hitti Soffíu kl 11 við Lækjarskólann og við skelltum okkur í Áslandsbrekkurnar. Veðrið var ágætt, sólin komst ekki gegnum skýin og það var kælingarþjónusta (hægur vindur) allan hringinn. Við skildum síðan heima hjá henni.
hringurinn var 13,2 km hjá mér.
Íþróttir | 13.5.2010 | 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hitti Soffíu, hún var þá bæði búin að vera í leikfimi og hjóla heim úr vinnunni... Við hlupum saman Norðurbæjarhringinn okkar í þessu líka frábæra veðri.
7 km voru fram og til baka og 5,2 km með Soffíu... samtals 12,2 hjá mér.
Íþróttir | 12.5.2010 | 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veðrið var dásamlega gott, ég hélt það væri kaldara. Drattaðist áfram - frekar þung á mér, komst alla leið heim aftur eins og alltaf. Það var Hrafnistuhringurinn sem var sleginn í dag, 12,5 km
Íþróttir | 10.5.2010 | 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þó ég sé farin að hvíla í viku eftir maraþon , þá braut ég þá reglu fyrir Flugleiðahlaupið. Ég hefði betur sleppt því... Það kostaði 1000 kr, engir vildarpunktar fyrir þáttöku og þegar ég kom í mark voru verðlaunin ,,buff" þ.e. auglýsing fyrir Icelandair.
Verðlaun hafa algerlega verið klippt út, flokkaverðlaun voru, þ.e. verðlaunapeningur aðeins fyrir þann fyrsta í hverjum aldursflokki. Útdráttarverðlaunum hafði fækkað stórlega.
Öll umgjörð um hlaupið, skráningin og brautarvarslan var til fyrirmyndar en nægir það til að halda þátttakendafjölda uppi - ég held ekki... Bæði fullorðnir og börn vilja fá sinn verðlaunapening og engar refjar.
Íþróttir | 6.5.2010 | 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Cox Sports Providence Marathon & Half Marathon and 5K
Providence, RI USA, 2.maí 2010 http://www.rhoderaces.com
Klukkan var stillt á 4:30 en ég var vöknuð áður. Allt dótið varð að vera pakkað til brottfarar því ég flýg heim á eftir. Ég gat troðið því öllu í skottið, það er ekki gott að láta sjást í töskur í bílnum. Ég tékkaði mig út um 6:30 og keyrði til Providence. Ég var hvílíkt heppin að ná mælastæði í miðbænum, en það er frítt á sunnudögum og þar að leiðandi engin tímamörk.
Það var svolítið asnalegt system á geymslu-dótinu, það var tékkað inn á 3. hæð á Westin, svolítið frá startinu. Þar var ég með mynda-vélina, bíllyklana og það sem ég var í þar til rétt fyrir start. Það var því smá vesen að láta mynda sig fyrir og eftir hlaupið og ég nennti ekki að fara aftur á startið í öfuga átt við bílinn... fyrir eina mynd.
Hlaupið var ræst kl 8. Veðrið var hlýtt og ég of mikið klædd, í síðum hlaupabuxum. í fyrstu var skýjað og þægileg gola í fangið. Mér gekk rosa vel að 16.mílu. þá fór að síga í mig þó ég hellti yfir mig vatni svo fötin væru blaut og kældu aðeins. Frá ca 20.mílu var sólin farin að hita verulega... þá fór ég að ganga meira á milli...
Tími og vegalengd mældust 5:32:08 og 27,02 mílur (43,49 km.) á mínu Garmin.
Cox Providence Marathonið er 121 maraþonið mitt
Rhode Island er 46. fylkið mitt
Bara 4 fylki eftir
Íþróttir | 2.5.2010 | 19:01 (breytt 3.5.2010 kl. 12:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)