Sunnudaginn 13.jan. steinlá eitt maraþonið enn, nr. 82
Eins og sést hefur á blogginu, hef ég ekkert æft í nærri 4 mán og þess vegna var ég búin að afskrifa þetta hlaup.
En vegna þess að ég skráði mig í hlaupið um mitt síðasta sumar og ferðin var keypt og miðuð við hlaupið, stílað upp á að skila bílaleigubílnum í Phoenix og fljúga heim þaðan, þá vorum við á staðnum.
Freistingin var mikil því músik-maraþonin eru svo skemmtileg hlaup.
Ég hljóp þetta hlaup þegar það var í fyrsta sinn og var þá búin að hlaupa Grand Canyon.... þannig að fylkið er afgreitt fyrir löngu.
Hvað um það.... ég ákvað það bara nokkrum dögum fyrir hlaupið að láta mig hafa það. Ganga það í kraftgöngu upp á að hætta ef ég versnaði í hásininni....
en það gekk svo glimrandi vel að ég kláraði á 6:34:53 og finnst mér það ágætt, því eina hreyfingin sem ég hef fengið undanfarið en út í bíl og inn í búð, fyrir utan smá skokk á ströndinni í Redondo.
Mission accomplished - ég er komin heim
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 15.1.2008 | 13:30 (breytt 29.11.2008 kl. 18:22) | Facebook
Athugasemdir
Hæ hæ og velkomin heim,
Var að senda þér póst og spyrja hvenær þú kæmir heim. Til hamingju með maraþonið og vona að ég sjái þig og sem flestar á fimmtudaginn til að fara áslandið.
Kveðja, Þóra Hrönn
þóra hrönn njálsdóttir (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 14:56
velkomin heim Bryndís .
og til hamingju með nýjasta maraþonið þetta var , frábært hjá þér
betri tími en hjá mér, en ég kalla þig góða að þora ,engin æfing.
sjáumst hressar , ég hef ekkert hlaupið , eiginlega síðan í október.
kveðja Soffía.
soffia (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 13:18
Hæ Bryndís og innilega til hamingju.
Nú er ég í sólinni í Orlando, búin að hlaupa 3 sinnum u.þ.b. 6 km og er á leið út að hlaupa núna. Kem heim 30 janúar og stefni á að hlaupa með ykkur sem fyrst.
Kveðja, Þórdís
Þórdís (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.