Gleðilegt hlaupár 2008


Sælar Byltur og gleðilegt hlaupár Kissing

Ég les það á Mbl.is að það sé brjálað veður heima... svo það er um að gera að njóta frídaganna og þegar þið farið af stað..... VERA MED BRODDA ef það er hálka... annars er hætta á að Byltur liggi i götunni.  Pinch

Við hjónin flugum til Californiu á annan dag jóla.  vorum fyrst nokkra daga á Redondo Beach en erum nú í heimsókn hjá vinum i Santa Barbara, þar sem ég kemst í tölvu.  Við höfum það eins gott og hægt er, bara bolaveður alla daga.  Cool

Ég hef ekkert hlaupið enn, enda nóg að gera á útsölunum hérna, maður kemur dauðþreyttur heim á hverju kvöldi.

PS. Ferðasagan er á...  bryndissvavars.blog.is

Árið 2007
... hljóp ég aðeins 7 maraþon, þrjú þeirra hljóp ég heima, Mars-maraþonið, Mývatns maraþon og Reykjavíkur maraþon og 4 maraþon hljóp ég í USA en það voru OC í Californíu, Houston í Texas, Green River í Wyoming og New Mexico maraþon í Albuquerque. 

Samtals eru maraþonin orðin 81 

Gleðilegt hlaupa-ár 2008

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Bryndís og þið allar hinar,

Gleðilegt ár allar saman. Við Ingileif héldum okkar eigið gamlaársdagshlaup. Við hlupum 10 km með viðkomu í Garðabænum. Ég held við séum á góðri leið með að taka upp hlaupaplanið sem er á netinu.

Kveðja,

Þóra Hrönn

þóra Hrönn njálsdóttir (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 14:02

2 identicon

Gleðilegt ár stelpur, glæsilegt hjá ykkur.  Svona á að gera Þetta. 
ég er i Santa Barbara núna, Þegar ég kem niður til LA, Þá ætla ég ad láta verða af Þvi, Það verður prufukeyrsla..... loksins.

En á meðan.... hafið Það gott stelpur.

Kv. Bryndis 

Bryndis (IP-tala skráð) 2.1.2008 kl. 16:13

3 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Ég er stolt af ykkur stelpur, keep it going  ,
ég ætla að prófa að skokka eftir ströndinni á morgun.

kveðja Bryndís

Bryndís Svavarsdóttir, 4.1.2008 kl. 06:04

4 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sælar,
ég er búin ad prufa tvisvar að skokka hér á ströndinni i Redondo Beach.  Mér hefur ekki versnað i fætinum en ég hef heldur ekki verið að fara neinar vegalengdir.  En svo framarlega sem mér versnar ekki.... Þá er Þetta góð byrjun.  Við sjáumst stelpur, á hlaupum Þegar ég kem heim.

Bryndís Svavarsdóttir, 7.1.2008 kl. 07:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband