Ég byrjaði á að labba út að Reykjanesbraut þar sem Berghildur tók mig upp kl 11. Við gengum á Helgafell og tókum síðan 2 spjöld í ratleiknum - SVO HANN ER FORMLEGA HAFINN HJÁ MÉR - Berghildur sleppti mér síðan á sama stað og ég labbaði heim. Fékk mér bita og hjólaði í Bónus.
Síðan hjólaði ég að hringtorginu við afleggjarann upp í Kaldársel og hitti þar Völu korter í 5, við hjóluðum saman í Kaldársel, hittum konur úr ÍR og gengum með þeim á Helgafell. Við fórum upp gilið eins og við Berghildur höfðum gert en fórum aðra og lengri leið niður. Síðan var að hjóla heim.
Eftir útreikninga og garmin tékk, telst mér að ég hafi hjólað 18,7 km og gengið 16,5 km - ágætis dagur :)
Flokkur: Íþróttir | 23.6.2011 | 20:49 (breytt kl. 20:50) | Facebook
Athugasemdir
HÆ Bryndís það er alldeilis kraftur í þér já þetta er fín hreyfing
var ekki gaman , svo þú getur slappað af í dag , en ég veit að þú gerir það ekki ,
góða helgi Bryndís mín , sjáumst ,
soffía kristinsdóttir (IP-tala skráð) 24.6.2011 kl. 11:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.