Færsluflokkur: Íþróttir

Norðurbærinn með Soffíu

Það féll niður kennsla svo við komumst fyrr út að hlaupa. Soffía var að vinna til 3... ég hljóp að heiman heim til hennar og svo hlupum við Norðurbæjarhringinn saman... fengum smá rok og rigningu Tounge... en við erum bæði vatns-og vindheldar. 

Ég hljóp 12,3 km í dag og við ætlum að hlaupa Áslandshringinn á fimmtudag... fastur liður Wink


Áslandsbrekkur og fleira

Við Soffía hittumst við Lækjarskóla, hún var með harðsperrur síðan í gær en lét það ekki aftra sér að fara Áslandshringinn með mér, en hann er sannkallaður brekkuhringur.
Við tókum smá útúrdúr í bakaleiðinni upp að gamla Dverg til að kíkja á gluggana og skoða listaverkin þar inni... og héldum síðan áfram göngustíginn meðfram sjónum. Soffía fékk símtal á leiðinni, bíllinn hennar var tilbúinn svo við lengdum hringinn, hlupum upp á Dalshraun, hún sótti bílinn en ég hljóp heim.

Ég fékk 16,5 km út úr þessu og við ætlum að hlaupa aftur saman á mánudag... taka Norðurbæinn :)


Hitti skvísurnar

Ég var í sms-sambandi við Þóru Hrönn... við ákváðum að hittast og hlaupa með Haukahópnum. Það var gaman að hitta hana og Ingileif, hef ekki séð þær í óratíma.
Haukahópurinn er góður hópur en hann passar ekki fyrir mig, því ég er alltaf, annað hvort að fara í maraþon eða að jafna mig eftir maraþon... meira vesenið á mér.

Við hlupum eitthvað út í iðnaðarhverfið móts við Straumsvík og til baka... ég náði 7,5 km í allt... Ég bæti þetta upp þegar ég hleyp með Soffíu á morgun.


Ein á hlaupum - Vala veik

Það var 14°c hiti, sól og smá gola til kælingar... frábært hlaupaveður og ég ein á ferð... ég saknaði Völu... Soffía hleypur með mér á fimmtudaginn... ég þarf að athuga með Þóru Hrönn hvort hún sé ekki til 1 dag í viku.

Ég fór Hrafnistuhringinn 12,5 km á ágætishraða... ef ég er ekki ánægð með mig - hver er það þá?

PS. hljóp fram hjá keðjunni í dag... hverju ætli menn séu nú að bíða eftir?


Með Haukahópnum

Ég byrja seint í skólanum á mánudögum og ég rétt náði heim um kl 5... svo ég ákvað að hlaupa með Haukahópnum í dag... veðrið var lala...la, smá dropar, farið að kólna og aðeins vindur... Maður er orðinn svo kröfuharður á góðviðrið Blush

Ég hitti hópinn og hljóp með þeim, hringurinn sem þau voru að fara, var umhverfis hverfið og ég náði allt í allt 6,3 km. Ég stóð við Haukahúsið og var að íhuga lengingu, þegar eldri maður kom á harðahlaupum en sá ekki keðju strengda fyrir gangstéttina og hann steyptist á höfuðið, skar í sundur ennið og töluverð blæðing var úr sárinu. Það var hringt á sjúkrabíl enda öruggast að láta athuga sig um leið og sárið er saumað.  Ég vona að maðurinn nái sér fljótt og vel.

Ég verð hissa ef keðjan verður ekki farin á morgun.


Áslandshringur með Soffíu

Ég hljóp að heiman og hitt Soffíu við Lækjarskóla... við erum búnar að ákveða að hlaupa saman á fimmtudögum í vetur og fara amk fyrst um sinn Áslandshringinn. Veðrið í dag var gott, mátulega hlýtt, þurrt og við í gírnum Wink

Við hlupum Áslandsbrekkurnar saman en sá hringur mældist rétt undir 7 km... þannig að í allt hljóp ég 12,8 km... Þetta verður bara frábært Smile


Hljóp með Völu

Það var æðislegt að hitta Völu og hlaupa með henni, hún notar mig til að halda hraðanum niðri og ég nota hana til að draga mig áfram... ég var enn þung eftir síðustu hlaup...

Við hlupum Hrafnistuhringinn, Vala lengdi eitthvað meira en ég hélt mig við 12,5 km.


Komin á götuna aftur :)

Veðrið var of gott til að sleppa þessu... ég dreif mig út fh, enda skein sólin, það var mátulega hlýtt og gola...
Í fyrstu var ég fislétt á mér en fljótlega var eins og það hefði verið hent á mig lóðum... ég skrölti þó Hrafnistuhringinn... ánægð með mig þegar ég kom heim að hafa látið mig hafa það og ekki freistast til að stytta hringinn.

Þetta var fyrsta æfingin eftir síðustu maraþon... ég hef ekki hlaupið hér heima, nema Reykjavíkurmaraþon, síðan 4. ágúst þegar ég hljóp með Soffíu.


Reykjavíkurmaraþon 22.8 2009

Fyrir start, Reykjavíkurmaraþon 22.8.2009Ég fór alltof seint í rúmið, kl var að verða 12. Þá tók við vökunótt með lokuð augu... undarlegt stig af ,,hvíld" Þegar klukkan hringdi kl 6 þá langaði mig ekki framúr... var dauðþreytt.

Morgunmaturinn var diskur af Seríosi, hrökkbrauð og kaffi. Við áætluðum hálftíma í keyrslu, bílastæðamál og koma sér að startinu... svo verður að reikna með ,,síðasta pissi"

Reykjavíkurmaraþon 22.8.2009Maraþonið var ræst kl 8:40... mjög undarlegur tími. Heila og hálfa ræst samtímis. Ég fór aðeins of hratt af stað en það kom ekki að sök. Ég þurfti tvisvar að fara á klósettið á leiðinni og í annað skiptið kostaði það mig 3 mínútur í röð. 

Reykjavíkurmaraþon 22.8.2009Eftir fyrri klósettferðina (við 5 km. á nesinu) stilltist tempóið hjá mér í mótvindinum... kuldi og mótvindur er það eina sem fær mig til að hlaupa afslappað... og ég náði að halda hraðanum að mestu alla leiðina.

Ég hljóp erfið maraþon síðustu 2 helgar, svo þetta var 3ja maraþonið á 2 vikum... en í dag flaug þetta áfram, ég fann ekki fyrir þreytunni og svefnleysinu.

Reykjavíkurmaraþon 22.8.2009Bíðari nr 1 stóð sig vel, þó hann gæti ekki hjólað með mér síðustu km... hann mætti með ,,alvöru" orkudrykk við 32. km, við 35 km og svo við 38 km.

Það rigndi og hvessti aðeins of mikið í lokin en í mark komst ég hæstánægð með tímann 4:55:21 á mína klukku en ég átti eitthvað í vandræðum með klukkuna í byrjun.


Gögnin sótt í Reykjavík

Við renndum inneftir og sóttum gögnin um kl 4.

Bíðari nr 1 gleymdi myndavélinni en það gerir ekkert til. Við fengum okkur pasta, salat og brauð. Það var þónokkur mannfjöldi á staðnum og nóg að gera í sölubásum. Ég keypti mér orkupulsur...
Síðan er bara að hvílast eitthvað, hlaupið er ræst kl 8:40 á morgun... skrítinn tími Woundering


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband