Með Haukahópnum

Ég byrja seint í skólanum á mánudögum og ég rétt náði heim um kl 5... svo ég ákvað að hlaupa með Haukahópnum í dag... veðrið var lala...la, smá dropar, farið að kólna og aðeins vindur... Maður er orðinn svo kröfuharður á góðviðrið Blush

Ég hitti hópinn og hljóp með þeim, hringurinn sem þau voru að fara, var umhverfis hverfið og ég náði allt í allt 6,3 km. Ég stóð við Haukahúsið og var að íhuga lengingu, þegar eldri maður kom á harðahlaupum en sá ekki keðju strengda fyrir gangstéttina og hann steyptist á höfuðið, skar í sundur ennið og töluverð blæðing var úr sárinu. Það var hringt á sjúkrabíl enda öruggast að láta athuga sig um leið og sárið er saumað.  Ég vona að maðurinn nái sér fljótt og vel.

Ég verð hissa ef keðjan verður ekki farin á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við kannski sjáumst á morgun en ég hef ekki hlaupið í 2 vikur og er að spá í Haukahópinn á morgun. Kveðja, Þóra Hrönn

Þóra Hrönn Njálsdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2009 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband