Færsluflokkur: Lífstíll
Ekki var veðrið til að ýta manni út um dyrnar... en út var farið. Það var rok og rigning.
Ég skrölti Hrafnistuhringinn hálf þreytt, hljóp rólega og mjög meðvitað??? Hvað er nú það.
Jú, ég reyndi markvisst að slaka stóru tánum niður, ég er gjörn að spenna þær upp og svo reyndi ég að hlaupa afslappað, þ.e. láta axlirnar síga... Hvorki meira né minna... ég þurfti stöðugt að minna mig á þetta.
Hringurinn tók lengri tíma og ég var þreyttari en vanalega, en hvað um það.
Lífstíll | 9.11.2009 | 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
New Hampshire Marathon & 10K, 5K Race Walk, Health Walk, Bristol, NH USA 3.okt 2009
http://www.nhmarathon.com
Við keyrðum frá Tilton til Bristol í gær, en komum of snemma fyrir expo-ið. Þeir leyfa líka afhendingu gagna fyrir hlaup svo við keyrðum bara til baka. Það á að starta kl 9
Klukkan var stillt á 5:30, við þurftum að tékka okkur út um morguninn og vorum lögð af stað kl. 7:30
Við vorum búin að tékka á öllum staðsetningum, svo það var ekkert mál að finna staðinn. Það var ausandi rigning og þurrkurnar á mesta og höfðu varla undan. Við vorum með plast-regnkápur.
Hlaupið var ræst á réttum tíma og rigningin lét ekkert undan. Ekki get ég sagt að leiðin hafi verið skemmtileg, við hlupum meðfram umferðinni... haustlitirnir voru rosalega flottir... fyrstu kílómetrana - svo hætti maður að taka eftir þeim. Leiðin var ekkert nema brekkur og það sem þeir kalla rolling hills... og svo var þessi ausandi rigning.
Þetta er hæðarkortið http://www.marathonguide.com/coursemaps/elevationchart.cfm?MIDD=1171091003
Mér tókst að klára þetta maraþon rétt undir 5 og hálfum tíma og þá keyrðum við beint til Portland Maine og sóttum gögnin fyrir næsta maraþon.
Tíminn á mína klukku var 5:29:37 og mældist 42,69 km.
Maraþonið er nr. 115 og fylkið nr 42..... 8 eftir
Ég verð að setja inn myndir þegar ég kem heim, því nýja vírusvörnin hafnar myndavélinni.
Lífstíll | 4.10.2009 | 00:33 (breytt 9.10.2009 kl. 17:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við vorum hálftíma að renna eftir sveitaveginum yfir til Títusville. Þetta er enn minni bær en við erum í... en þau hafa Walmart... Við dingluðum okkur eitthvað og hófum síðan leitina að expo-inu og startinu. Það tók langan tíma vegna þess að þeir gáfu ekki upp eiginleg heimilisföng. Síðar hittum við fleiri sem voru í sömu vandræðum og við.
Gögnin voru afhent á milli 4 og 7 í dag... þetta er frumraun hjá liðinu... það var hér maraþon 2006 en þetta er fyrsta Drake Well Marathon-ið.
Expo-ið var bara númera og bola afhending og þeir gáfu tásu-sokka.
Það var ein sportbúð í Títusville en hún var lokuð... sama í Franklin... svo ég fæ hvergi orkupulsur fyrir morgundaginn. Það verður bara að hafa það.
Þá er bara að fara snemma að sofa, við verðum að tékka okkur út hér í Franklín fyrir hlaup og startið er kl 7 í fyrramálið.
Lífstíll | 8.8.2009 | 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
;)... eins og annar í jólum... það var ákveðið að hjóla upp í Kaldársel og ganga síðan á Helgafell. Við fórum af stað hálf 10... Ferðin upp eftir gekk vel, við hjóluðum Hvaleyrarvatnsleiðina... við Kaldárselið hættum við við að ganga á Helgafell og skoðuðum hella í staðinn.
Við gengum um Kaldárselssvæðið, borðuðum nestið og tókum myndir. Síðan var hjólað heim á leið... aðra leið en við komum, við klöppuðum hestum og fl.
Afi var búinn að baka muffinsbollur þegar við komum heim... en Tinna hafði verið svo dugleg að við hjóluðum út í sjoppu og keyptum fótboltamyndir - áður en við fórum inn og fengum okkur bollu. Við vorum búnar að hjóla og ganga 23,6 km samkvæmt garmin-úrinu.
Á meðan við kjömsuðum á bollunum spurði ég Tinnu hvort við ættum að fara aðeins út að hjóla á eftir ??? Já, hún vildi það og aftur var lagt af stað... nú var hjólað um hverfið og út á róló... við fórum loks inn þegar það byrjaði að rigna kl 4:45
Það er synd að segja að maður hreyfi sig ekki þessa dagana :)
Lífstíll | 28.7.2009 | 20:07 (breytt 29.7.2009 kl. 14:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hafði skráð mig í maraþonið vegna þess að ég var búin að lesa að ég gæti hætt við fram á síðustu stundu... og ég ætlaði ekki norður - punktur... Bíðari nr 1 var ákveðinn að fara.
Á fimmtudag var kominn tími til að hætta við því ég ekki enn búin að fá gistingu... en ég á svo góða vinkonu hana Björgu sem reddaði okkur raðhúsi skyldmenna Palla... Það var því rennt norður á föstudag... gögnin sótt, borðað pasta og blíðunnar á Akureyri notið fram í fingurgóma. Fólkinu sem treysti okkur fyrir húsinu sínu er ástsamlega þakkað fyrir lánið á því.
Ég var í fyrri ráshópnum en við vorum 4 sem vorum ræst kl 8. Hringurinn um bæinn var ágætur en frá ca 12 km var lagt af stað út úr bænum og snúið við á 25 km punktinum. Sá kafli (26km) var mér erfiður, en það er bara ég, mitt vandamál æsist upp í vegarhalla... þá þarf ég að ganga á milli til að endurnýja hlaupalagið.
Öll umgjörð og þjónusta í kringum hlaupið var til fyrirmyndar þó ég segi alltaf að það sé allt of langt að hafa 5km á milli drykkjarstöðva.
Þá verð ég að segja að verðlaunaafhendingin var glæsileg með góðum veitingum.
Því má bæta við... að í síðustu Reykjavíkurmaraþonum hef ég oft sníkt kók af starfsfólkinu á drykkjarstöðvunum... hér á Akureyri var boðið upp á kók á hverri drykkjarstöð og sagði starfsfólkið að kókið hefði slegið í gegn :)
Lífstíll | 12.7.2009 | 14:09 (breytt kl. 22:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ConocoPhillips Mayor's Marathon & Marathon Relay, Half Marathon, Five Miler Anchorage, AK USA, 20.júní 2009
http://www.mayorsmarathon.com
Klukkan var stillt á 4:00... það skiptir í raun ekki máli á hvað klukkan er stillt... við erum vöknuð áður... og mér líður best þegar ég hef nægan tíma. Ég var mætt tímanlega í rútuna sem keyrði okkur á upphafsstað. Þar var hægt að bíða inni í íþróttahúsi og þar hitti ég mann sem ég sat við hliðina á í rútunni í Ocean Drive Maraþoninu í New Jersey.
Úti var hægt að spreyja á sig skordýrafælandi efni, fá þunna poka fyrir regnkápur því það leit út fyrir rigningu. Hlaupið var ræst kl 8:00 eftir þjóðsönginn.
Ég byrjaði í langerma bol, en fór úr honum á miðri leið. Við hlupum meðfram þjóðveginum fyrstu mílurnar, en síðan hlupum við einhverja skógarvegi... malarvegi, sem slíta mér vanalega út af stressi yfir að rekast á nibbur og detta. Þessir grófu malarvegir voru ca 13 mílur og ég slapp meira að segja við að fá grjót í skóna. Eftir malarvegina tóku við ,,traiL"slóðir... þangað til komið var á gangstéttirnar í bænum. Landslagið var þannig að ég hefði getað verið að hlaupa í hvaða fylki sem er. Ekki varð ég vör við birni eða dádýr eins og sagt var frá í kommentunum við hlaupið í fyrra.
Hlaupið var ,,rolling hills" það þýðir brekkur... og á síðustu mílunni kom sú versta - brjáluð brekka! ég var varla komin upp hana þegar ég fékk rosalegan krampa í vinstra læri, hélt ég kæmist ekki lengra... en alltaf slefast maður í markið...
VÁ, HVAÐ PENINGURINN ER FLOTTUR :)
Maraþonið sem er nr. 110 hjá mér, mældist 42,78 km og tíminn 5:12:45 á garminn minn.
Alaska er 39. fylkið mitt - 11 eftir.
Lífstíll | 21.6.2009 | 02:13 (breytt kl. 02:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er lifandi ,,skelfing" að vera allt í einu garmlaus... við byrjuðum daginn í Best Buy, kl 10. Sá fyrsti sem ég talaði við taldi garminn vera gallaðan en hann gæti samt ekkert hjálpað okkur... sá næsti vissi að það þyrfti að kaupa Alaska sér... við áttum ekki orð - fáránlegt að kaupa tæki með USA... NB...mínus eitt fylki og vera ekki sagt frá því.
það fór svo mikill tími til ónýtis í dag við að leita... af því að við vorum ekki viðbúin því að þurfa að nota kort... það fór hálfur eða nær allur dagurinn í að finna Sheraton hótelið með gögnin, rútustaðinn til að komast á startið og svo markið.
HVERS VEGNA tók það svona langan tíma... upplýsingarnar sem fylgdu í maraþonblaðinu í expopokanum, voru þær lélegustu sem ég hef nokkurn tíma fengið. Það bjargaði mér að ég var með heimilisföng af netsíðunni.
Expoið var lítið... en eitthvað var til af söludóti, ég keypti mér hlaupasokka. Það tók innan við hálftíma að fara í gegnum expoið. Restin af deginum fór í að finna hvar hlaupið á að byrja - en það var of langt í burtu - hvaðan rútan fer á startið... og hvar maraþonið endar...
Lífstíll | 20.6.2009 | 02:06 (breytt kl. 02:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það voru nýjir stjórnendur teknir við Mývatnsmaraþoni og þeim tókst mjög vel til. Umgjörðin góð, góð þjónusta á leiðinni og grillveislan í lokin var frábær.
Að vísu hef ég alltaf sagt að 5 km milli drykkjarstöðva sé of langt, hámarkið ætti að vera 4 km, en þetta hafa þeir ættleitt frá fyrri stjórnendum. Það var svolítið öðruvísi að hlaupa frá ,,Böðunum" og enda þar líka... Á BREKKU. Það var mjög hvass mótvindur fyrstu 23 km... og allur vindur úr mér á eftir. Sólin skein aðeins og hitinn var uþb 10 stig.
Ég held að þetta hafi verið tíunda Mývatnsmaraþonið mitt og í mörg undanfarin skipti hef ég sagt að ég ætlaði ekki að koma aftur. Halli vegarins virkar svo illa á grindarlosið mitt... ég var of fljótt farin að ganga inn á milli...
Þetta var maraþon nr 107 og tíminn á mína klukku var 5:01:30 og get ég ekki annað en verið ánægð með það
Lífstíll | 30.5.2009 | 20:44 (breytt 31.5.2009 kl. 22:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við renndum hingað norður í gær... vorum ekki búin að panta gistingu fyrirfram og enduðum á Skútustöðum. Nú er allt breytt í sambandi við hlaupið, það er flutt í ,,böðin" og nýjir stjórnendur teknir við. Við keyrðum þangað í gær en enginn vissi neitt þar.
Maraþonið á að byrja kl 12... ég á eftir að sækja númerið fyrst, það hlýtur að vera á staðnum.
Lífstíll | 30.5.2009 | 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fort Collins Old Town Marathon & Half Marathon, 10K, 5K, Kids Run
Fort Collins, CO USA 3.maí 2009
http://ftcollinsmarathon.com
Ég veit hreinlega ekki hvernig ég svaf
... en ég var vöknuð áður en klukkan hringdi kl 2 í nótt. Ég fór í gegnum ferlið af vana, hellti upp á kaffi, ræsti tölvuna og Bíðari Nr.1 hringdi strax á msn-inu, ég teipaði tærnar og var komin út 3:50.
Það er ekki oft sem hlaup bjóða upp á frí stæði í bílastæðahúsi eins og hér var gert. Rúturnar biðu fyrir utan. Ég fór með fyrstu rútu... mikið hrikalega er leiðin löng þegar maður keyrir hana um nótt. Við vorum keyrð upp í gil fyrir norðan bæinn.
http://ftcollinsmarathon.com/elevationmap.html
Upphafspunktur var í 6.108 ft hæð... og endaði í 4.981 ft.
Hlaupið var ræst 6:15... strax á fyrsta km. stóð ég á öndinni í þessari lofthæð. Það bjargaði mér að fyrri hlutinn var niður... en síðari helmingurinn var nokkuð flatur.
Hitinn var 37°F í upphafi og raki í loftinu, mér var kalt á höndunum alla leiðina, samt hlýnaði þegar sólin fór að skína og ég nálgaðist bæinn.
Maraþonið mældist 42,7 km... og er hæst ánægð með tímann sem mældist 5:09:09 á mína klukku. Lilja, Linda og sonur hennar tóku á móti mér í markinu. Það var frábært af þeim
Colorado er 37.fylkið mitt.... 13 eftir
Þetta maraþon er nr. 106... 8. á árinu.
Lífstíll | 3.5.2009 | 23:36 (breytt kl. 23:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)