Færsluflokkur: Lífstíll
Dodge Rock´N´Roll Marathon & Half Marathon, Marathon Relay
San Diego, CA USA 31.maí 2015
http://san-diego.competitor.com
Ég held ég hafi aldrei verið í eins miklu stressi og tímahraki í neinu hlaupi eins og núna... Vélin lenti á réttum tíma í San Diego en bílaleigan lét okkur bíða í óratíma, þá tók við umferðarteppa við Convention Center þegar ég var að ná í númerið... ég hljóp inn rétt fyrir lokun, fékk númerið, keypti bílastæði og rútumiða og út aftur án þess að skoða neitt.
.........
Ég pantaði wake-up kl 3am og var með mitt úr stillt á 2:45. Þá tók þetta venjulega við, taka saman hlaupadótið og reyna að fara snemma að sofa... Ekki hélt netið vöku fyrir okkur því það var alltaf að detta út og ég hætti að reyna að blogga.
Ég svaf ágætlega þessa klukkutíma sem voru í boði... í svona stórum hlaupum sem eru með allt umfangið í þröngri miðborginni er nauðsynlegt að vera snemma á ferðinni. Ég þurfti að hafa allt dótið í bílnum því Lúlli beið á hótelinu og þurfti að tékka okkur út kl 11 og bíða einhversstaðar á meðan.
Þetta er í 4 sinn sem ég hleyp R´N´R San Diego. En í þetta sinn hafa þeir breytt fyrirkomulaginu, þeir eru hættir að nota flugvöllinn fyrir bílastæði og hafa ókeypis skólabíl á startið. Núna þarf maður að leggja í bílastæðahúsi í miðbænum.
Ég lagði af stað kl 4am og Garmin fór fyrst með mig í Walmart... kannski er greyjið að bilast á mér.
Ég fékk ágætis stæði í Convention Center og slappaði af í nokkrar mínútur. Ég hélt að við ættum að taka Trolley hinu megin við götuna en eftir mílu langa röð sá ég að þetta voru rútur... og tíminn var að hlaupa frá mér...
Loksins var kallað að heilu-maraþonarnir ættu að fara framfyrir... ég kom á-síðustu-stundu á startið, gat svindlað mér á klósett fyrir fatlaða (engin röð) og hljóp að marklínunni... heyrði þjóðsönginn á hlaupunum en náði ekki einu sinni mínum bás áður en hlaupið var ræst... hvílíkt stress og hvað maður eyðir mikilli orku í það. Maraþonið var ræst 6:15 og hálfa maraþonið var ræst 30 mín síðar.
Það var skýjað en heitt og ég var að vona að það héldist en sólin læddist fram eftir 2-3 tíma. Ég mundi eftir einhverju af leiðinni þó hún væri breytt, hún var nokkuð slétt á fyrri hlutanum en sá síðari var með manndrápsbrekkum. Ég sá/hitti engan sem ég þekkti... Alltaf er gott að klára... sérstaklega þegar ég er enn ekki orðin góð í ökklanum, æfingalaus og varð að ganga mikið á milli.
Ég var í enn hjá markinu þegar (samkv mbl.is) elsta kona í heimi sem hefur hlaupið maraþon kom í mark.
Garmin mældi leiðina 26,65 mílur og tímann 6:55:28
Þetta maraþon er nr 188 og enn eru 9 eftir í öðrum hring.
Lífstíll | 1.6.2015 | 15:03 (breytt 10.6.2015 kl. 18:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kentucky Derby Festival Marathon
25. apríl 2015
http://www.derbyfestivalmarathon.com
Expoið var ágætlega stórt í gær, en við vorum eiginlega á hraðferð, þreytt eftir 2 flug og lítinn svefn síðustu nótt og búin að keyra suður frá Indianapolis til Louisville. Númerið mitt er 12467. það sem ég hafði mestan áhuga á var að fá upplýsingar um gott bílastæði
Við fórum MJÖG snemma að sofa í gærkvöldi enda þreytt eftir flugið, keyrsuna og lítinn svefn síðustu nótt.
Klukkan var stillt á 3:30 í nótt og vegna þreytu svaf ég eins og steinn. Það var grenjandi rigning þegar við vöknuðum og ég hafði ekki gert ráð fyrir rigningu. Lúlli ákvað að bíða á hótelinu enda lítið spennandi að hanga í bílnum í grenjandi rigningu. ég sníkti plastpoka í lobbýinu að nota fyrir regnkápu.
Ég lagði af stað um kl 5 og náði bílastæði á besta stað. Ég var með vekjaraúrið með mér og lagði mig, það var hægt að halla framsætinu í nær lárétta stöðu. Startið var beint fyrir framan bílinn.
Maraþonið var ræst 7:30 í rigningu og það rigndi megnið af tímanum. Leiðin var frekar slétt, það kom smá brekku-kafli frá mílu 11-15 og svo ein og ein en miðað við síðasta maraþon þá var það ekkert mál.
Hlaupaleiðin lá inn á hina frægu Derby-veðreiðar-braut, gaman að sjá þetta. Ég hitti Nick Karem á seinni hlutanum, hef ekki séð hann lengi, við fylgdumst að hluta af leiðinni, hann er eins og ég að vinna sig út úr meiðslum og hann barðist við krampa.
Ég verð að segja að mér gekk ágætlega miðað við allar aðstæður og algjört æfingaleysi.
Garmin mældi leiðina 26,79 mílur og tímann 6:31:27
Þetta maraþon er nr 187 og nú eru 9 eftir í öðrum hring.
Lífstíll | 26.4.2015 | 03:01 (breytt 4.5.2015 kl. 11:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rock'N'Roll Raleigh Marathon, Raleigh NC
12.apríl 2015
http://runrocknroll.competitor.com/raleigh
Ég svaf ágætlega og var vakin með "wake-up call" hótelsins og svo hringdi Bíðarinn frá Íslandi. ég var með sub í ísskápnum sem ég át, teypaði tærnar og kom mér af stað rétt fyrir kl 5am. Ég var búin að ákveða að fá stæði í bílastæðahúsinu sem var 200 metra frá marki og starti... og ég fékk frábært stæði.
ég hallaði mér svo bara aftur í hálftíma... nennti ekki að athuga með Maniac-myndatöku eða standa við startið í tæpa 2 tíma... en maður þarf allaf að fara í klósettröðina... TVISVAR.
Startið var kl 7am og ég laumaði mér á eftir elítunni... Bryndís og Keníamennirnir hehe...
Veðrið var frábært, glampandi sól og stundum of heitt en stöku sinnum kom smá kæling í vindinum.
Hvernig gekk...hummm... Stjórnendum hlaupsins fannst ástæða að nefna brekkurnar fyrir startið... og svo var skilti á leiðinni... "I eat hills for breakfast" og við vorum í stanslausum morgunmat eftir það.
Leiðin átti ekki að vera eins "brutal" og í fyrra því þeir breyttu leiðinni aðeins og fækkuðu um 3 brekkur... Leiðin var ein BREKKA... held ég hafi ekki lent í öðru eins í borgarhlaupi. Auðvitað komu þessar brekkur niður á mér...
Fóturinn hélt nokkuð vel, kannski af því að ég þorði ekki annað en að vera í ökkla-strekksokknum og svo var ég með ICY-HOT 8 tíma verkjaplástur á bakinu... bakið fór korter í sunnudagaskóla á Páskadag og ég var ekki orðin nógu góð.
Garmurinn mældi vegalengdina 42,87 km og tímann 7:17:11
Þetta marathon er nr 186 og mig minnir að ég eigi eftir 10 fylki í annarri umferð um USA.
Lífstíll | 12.4.2015 | 21:16 (breytt 14.6.2015 kl. 17:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Big Island International Marathon, Hilo, HI USA
15.mars 2015
http://www.hilomarathon.org
þetta verður mjög ófullkomið blogg... Klukkan...var stillt á 3 en ég var vöknuð kl 1:30
Ég hellti á kaffi, fékk mér að borða .... teypaði tærnar, smurði mig með vasilíni og sólarvörn, gekk frá dótinu, bar það út í bíl og tékkaði mig út af hótelinu... en fékk að koma til baka í sturtu ef ég kæmi fyrir kl 14... sem mér tókst.
Ég fór um 4:30, vildi vera snemma í því til að fá bílastæði nálægt startinu... og fékk frábært stæði. það var hægt að velja um 2 staði og hinn var hálfa mílu í burtu.
Hlaupið var ræst kl 6 í myrkri... fyrri hluti leiðarinnar, fyrstu 16 mílurnar voru mjög fallegar á köflum en ekkert nema brekkur.
Seinni hlutinn var hins vegar leiðinda kafli meðfram veginum, en slétt og þá fór sólin að hita verulega. Í bæði skiptin fórum við fram og til baka nær sömu leið.
Ég var með strekksokk um ökklann og fann lítið til en æfingaleysið var algert...
Ég set meira inn þegar ég kemst í fartölvuna mína.
Þá er það að uppfæra upplýsingarnar.
Ég gekk og skokkaði til skiptis fyrstu 16 mílurnar en seinni hlutann gekk ég alveg. Þá var farið að hitna verulega. þó ég færi hægt voru allan tímann einhverjir á eftir mér... Ég var bara fegin að klára og vera enn þolanleg í fætinum (enda ekki langt í næsta maraþon).
Þetta maraþon er nr 185
Vegalengdin var samkvæmt garminum 26,85 mílur og tímann 7:32:25
Þá eru 11 eftir í öðrum hring.
Lífstíll | 16.3.2015 | 00:42 (breytt 2.4.2015 kl. 16:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
New Orleans Mardi Gras Marathon & Half Marathon, 2-Person Relay New Orleans, LA USA
25.jan. 2015
http://runrocknroll.competitor.com/new-orleans
Við byrjuðum á því að sækja gögnin í gær þegar við keyrðum frá Baton Rouge... Expo-ið var ágætt - margir að sýna, kynna vörur og selja. Ég hitti hvorki Maniaca eða 50 state-vini sem ég þekkti. Síðan tékkuðum við okkur inn á hótelið. Herbergið okkar er í blind-horni og við erum netlaus.
Síðan var þessi hefðbundni undirbúningur, taka saman hlaupadótið og fara snemma að sofa... en það var nú ekki hægt, þetta er partý hótel... þunnir veggir og nokkur umgangur. Ég held samt að ég hafi sofið eitthvað.
Klukkan var stillt á 3:30... því ég hélt að startið væri kl 7am en það var hálftíma seinna.
Við ákváðum að það væri best að Lúlli biði á hótelinu... svo ég lagði af stað um kl 5am til að fá gott stæði við startið. Ég náði stæði á götunni um hálfa mílu frá.
Ég hitti Maniaca og við ákváðum myndatöku... Það var skítakuldi úti og ég var alveg orðin frosin á að bíða einn og hálfan tíma eftir startinu. Þegar hlaupinu var síðan startað laumaði ég mér af stað með elítunni... Bryndis og Kenýamennirnir voru fyrstaf stað ;)
Ég var skráð í Double-down, aukapening fyrir að fara bæði LA-hlaupin... og svo er ég búin að skrá mig í tvö önnur Rock´N´Roll maraþon á árinu... svo ég varð eiginlega að þræla mér í gegnum þetta hlaup...
Fóturinn var ekki nógu góður, ég stoppaði oft til að nudda kálfann, bera á hann krem og svo lét ég teypa kálfann á leiðinni og reyndi að fara vel með mig og nota bara allan tímann sem var í boði.
Reglan var: 7 tíma-takmörk eftir að síðasti maður fór yfir startlínuna - þess vegna fór ég með elítunni... og mér veitti ekkert af tímanum.
Ég sit í lobbýinu og blogga og er ekki með símann með myndunum eða úrið svo ég man ekki alveg tölurnar... ég verð að bæta úr því seinna.
UPPFÆRT... Þetta maraþon er nr 184, Garmurinn mældi vegalengdina 26,89 mílur og tímann 7:43:09
Lífstíll | 26.1.2015 | 01:31 (breytt 6.5.2015 kl. 22:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Louisiana Marathon Baton Rouge, LA USA
18.1.2015
http://www.thelouisianamarathon.com
Við fórum snemma að sofa í gær, og klukkan var stillt á 4 am. Ég svaf ágætlega. Allt gekk sinn vanalega gang og við lögðum snemma af stað til að ná bílastæði á góðum stað. Lúlli fór með og beið allan tímann eftir mér. Þess vegna skipti máli að fá stæði nálægt. Við vorum ljón-heppin þar... náðum stæði nokkrum skrefum frá starti og marki.
Ég náði Maniac-a myndatökunni kl 6:30. Hlaupið var síðan ræst kl 7 am. Ég vissi að þeir væru með hörð 7-tíma-takmörk... Þá verður markinu lokað.
Það var kalt í upphafi en hitnaði þegar á leið. Mér leið ágætlega fyrstu 9 mílurnar en þá gerðist eitthvað í hásin á vinstra fæti og ég haltraði eiginlega afganginn í mark... Við vorum tvær sem renndum okkur í markið á síðustu stundu og því var lokað á eftir okkur, hin var að drepast í hnénu.
Þjónustan og gæslan á leiðinni var til fyrirmyndar... Ekkert sem klikkaði og þeir pössuðu að hafa sömu þjónustu fyrir þann fyrsta og þann síðasta.
Þetta maraþon er nr 183.
Garmurinn mældi tímann 6:58:13 og vegalengdina 26,68 mílur.
Nú þegar Louisiana er búið eru 12 fylki eftir.
Lífstíll | 19.1.2015 | 01:08 (breytt 21.1.2015 kl. 19:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
LOUISIANA MARATHON
18.1.2015
Við komum í gærkvöldi til Baton Rouge og sóttum gögnin í dag fyrir maraþonið á morgun. Expo-ið var sæmilega stórt og vel sótt... ég hitti Maniac vin og dundaði mér eitthvað á svæðinu. Ég er nr 741.
Eftir að hafa sótt gögnin fórum við á startið en markið er líka þar rétt hjá... svo komum við við í búð til að kaupa morgunmat.
Veðrið er yndislegt, sól og um 15°c hiti... ég geri ekki ráð fyrir að veðrið verði vandamál á morgun.
Þá er bara að stilla klukkuna og hafa allt tilbúið fyrir morgundaginn.
Lífstíll | 17.1.2015 | 22:26 (breytt kl. 22:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
GLEÐILEGT NÝTT HLAUPA-ÁR 2015
Árið 2014 var öðruvísi ár í hlaupum fyrir mig. Ég byrjaði árið með því að hlaupa hálft maraþon í Los Angeles... það var lengsta vegalengdin sem var boðið upp á. Hlaupið var skemmtilegt og í hlaupaleiðinni var hringur inn á Dodgers Stadium... Ótrúlega gaman, því við Lúlli fórum einusinni á leik þar með Jonnu og fleirum.
Ég strengi aldrei áramótaheit, en ég ætlaði að taka mig á og hlaupa meira á þessu ári en einhvern veginn var allt til þess að taka af mér öll hlaupaplön. Ég datt 5 sinnum í hálkunni um veturinn og var fram eftir öllu sumri að ná mér eftir bylturnar... vinstra hnéð hafði snúist einhvernveginn í síðustu byltunni og ég varð að vanda mig þegar ég hljóp og passa að ofgera mér ekki. Ég reyndi að hjóla meira... (þar til því var stolið 1.sept), ég gekk heilmikið með því að taka þátt í Ratleik Hafnarfjarðar og fór allt að 4x að sumum spjöldum og í mars byrjuðum við systur að synda saman á föstudögum. Þá hef ég ekki tölu á því hve oft ég hjólaði upp í Kaldársel og gekk á Helgafell.
Ég hljóp aðeins 13 maraþon 2014 og aðal breytingin frá fyrri árum er að ég fór bara 4 ferðir til USA og í tveim þeirra hljóp ég aðeins eitt maraþon í hvorri ferð.
Í mars skrapp ég ein yfir helgi til Little Rock. Þar slapp ég fyrir horn að vera stoppuð í hlaupinu... ég var svo heppin að hafa valið EARLY-START, fór klst fyrr af stað, því hlaupið var stoppað vegna ís-regns. ég var þá nýfarin framhjá stopp-staðnum og náði að klára.
Göturnar voru eins og skautasvell.
Öllu flugi var aflýst um tíma eða því seinkað... ég hef sjaldan verið eins fegin þegar ég skilaði bílaleigubílnum, að hafa komist á flugvöllinn.
Innanlandsfluginu mínu seinkaði og hjá Icelandair var búið að loka vélinni en það var opnað aftur fyrir mig, svo það munaði ENGU að ég kæmist ekki heim.
Ég fór í 2 hlaupa-seríu-ferðir þar sem ég hljóp 5 maraþon í 5 fylkjum í hvorri ferð. Sú fyrri var í maí/júní. þá byrjaði ég á að hlaupa í Indiana 31.maí og svo maraþon annan hvern dag (4,6,8.júní) í MI, IL (í Heartland Series)og NY. Því fylgdi þó nokkur keyrsla og flug frá Chicago til Boston og svo keyrsla upp til Lace Placid. Síðasta maraþonið í þessari ferð var í Maine... alveg efst upp við landamæri Kanada og byrjaði við vestasta odda USA. Þetta er eina maraþonið þar sem er hlaupið yfir landamæri USA og Kanada.
Í miðju maraþoninu 6.júní fékk ég sms um nýtt barnabarn og fréttin breiddist út til allra hlauparanna og hamingjuóskunum rigndi yfir okkur Lúlla.
Í ágúst hljóp ég heilt maraþon í Reykjavík 18. árið í röð. Að hugsa sér... ég sem ætlaði aldrei að hlaupa heilt á Íslandi. Ég byrjaði að skokka 1991 og hljóp þá 7 km í Reykjavík, næstu 5 ár á eftir hljóp ég hálft maraþon en hef síðan alltaf hlaupið heilt. Ég var stolt mamma og amma þennan dag, því við vorum 3 ættliðir sem hlupum. Ég maraþon, sonurinn hálft maraþon í fyrsta sinn og Matthías fór í Latabæjarhlaupið.
Í síðari hlaupa-seríu-ferðinni hljóp ég 3 maraþon (11,12,14.okt) í The Appalachian Series... Þessi hlaup voru BLAUT... ég held ég hafi aldrei hlaupið í öðru eins úrhelli. Helgina eftir (18,19.okt) hljóp ég 2 maraþon í sól og kærkominni blíðu. Þannig að ég fór 5 maraþon í 5 fylkjum á 9 dögum.
Síðasta ferð ársins var til Orlando með systrunum Eddu og Berghildi. Þær komu með mér 2013 og nú hlupu þær báðar hálft maraþon í fyrsta sinn. Þetta var Space Coast Marathon á Cocoa Beach og við erum búnar að kaupa næstu ferð... Það er ekki aftur snúið fyrir þær.
Í árslok 2014 eru maraþonin orðin 182. Nokkrar hlaupaferðir eru þegar pantaðar og hlaupin skipulögð með annan USA-hring í huga. Sem stendur á ég eftir 13 fylki í öðrum hring. Fylkin sem eru eftir eru Hawaii, Alaska, Oregon, Montana, Idaho, New Mexico, Kansas, Louisiana, Alabama, Georgia, Ohio, Kentucky og North Carolina.
Draumurinn er að klára þau 2015 ef vinnan væri ekki að þvælast fyrir manni.
Lífstíll | 1.1.2015 | 14:32 (breytt 30.10.2017 kl. 20:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Space Coast Marathon & Half Marathon
Cocoa, FL USA. 30.nóv 2014
http://www.spacecoastmarathon.com
Klukkan vakti okkur kl 2:45 am... við sváfum þokkalega.
Við vorum með okkar morgunmat sem við röðuðum í okkur, klæddum okkur í hlaupagallann, teypuðum tærnar og smurðum okkur með vasilíni og sólarvörn nr 50.
Kl 4:45 sóttum við morgunmatarpoka í lobbyið og fórum í rútu-röðina við Best Western hér við hliðina. Það er nokkur spotti niður á Cocoa og þægilegt að geta farið með rútu og þurfa ekki að hugsa um bílastæði.
Þegar við komum á staðinn, var klósettröðin fyrst á dagskrá, svo hitti ég Nancy sem gaf okkur hálsklúta í Space-þema.
Við vorum allar skráðar í HEILT maraþon og fórum því saman af stað. Við byrjuðum í myrkri en það birti fljótlega og hitnaði. Á fyrsta horninu datt kona beint fyrir framan mig og ég týndi Eddu og Berghildi.
Af því fyrri helmingur leiðarinnar er 6,5 mílur upp með ströndinni og til baka, þá sáumst við aftur áður en ég fór síðan 6,5 mílur niður með ströndinni og til baka.
Ég hitti marga Maniaca og 50 Staters. Veðrið var eiginlega OF GOTT, við giskuðum á 28-30 stig. Sólin skein glatt og nú vantaði örlitla svalandi hafgolu og fáein ský.
Æfingaleysið kom fram á seinni helmingi hlaupsins, en mest allan tímann var bæklaða táin mín að gera uppsteit og það orsakaði sennilega að síðustu mílurnar jaðraði við krampa í hægra læri og á sköflungi.
Berghildur og Edda voru báðar að hlaupa hálft-maraþon í fyrsta sinn og gerðu það með glæsibrag. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ.
Þetta er í annað sinn sem ég hleyp á afmælisdeginum mínum, síðast hljóp ég í Seattle 2008 og ég sá á Maniac-hlaupasíðunni að þar var hlaupið í nokkurra stiga frosti í dag.
Eftir maraþonið fórum við Edda aðeins í sólbað á ströndinni áður en við fórum í sturtu. það var frábært.
Þetta maraþon er nr 182 hjá mér.
Garmurinn mældi vegalengdina 42,85 km og tímann 6:38:02
Ég á enn eftir 13 fylki í öðrum hring um USA.
Lífstíll | 1.12.2014 | 01:50 (breytt 14.12.2014 kl. 14:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Atlantic City Marathon & Half Marathon, 10K, 5K Run/Walk
Atlantic City, NJ USA, 19.oct. 2014

Ég var enn í hlaupagallanum eftir Baltimore þegar ég sótti númerið mitt í Atlantic City New Jersey. Ég rétt hljóp inn í Casino-ið, sótti það og út aftur... Við erum með hótel 2 mílur frá starti sem er kl 8 am... svo ég lét það eftir mér að sofa til kl 6 am.

Eftir morgunmat og venjulegan undirbúning lögðum við af stað rétt fyrir hálf átta... þetta smellpassaði allt. ég gat rakað saman nokkrum Marathon Maniacs fyrir hópmynd rétt áður en hlaupið var ræst.
Það er hvergi hægt að leggja bíl hérna nema í bílastæðahúsi og við fengum stæði á 11.hæð í húsi næst starti og marki. Lúlli kom með og notaði tímann á meðan ég hljóp... til að fara á ströndina og líta í kringum sig.
Ég var ekki eins brött og í gær og leiðin var ekkert spennandi, ég hafði ímyndað mér hlaup meðfram strandlengjunni en við vorum send eftir "eins og augað eygir" götum í allar áttir... ég fékk skýringuna seinna... það var verið að senda okkur í alla fjóra bæina á strandlengjunni. Þetta virkaði ekki skemmtilega á mig en spretthlaupararnir hafa örugglega elskað svona beina braut.

Við fórum oft fram og til baka og þá hitti ég marga Maniaca og 50 State félaga á leiðinni. EN... maður minn hvað ég var fegin að koma í mark... 5 maraþon í 5 fylkjum á 9 dögum er kannski aðeins of mikið þegar maður æfir nær ekkert.
Þetta maraþon er nr 181
Garmurinn mældi tímann 6:35:22 og vegalengdina 25,79 mílur... vegna þess að gps-ið datt út í göngunum sem við fórum í.
Lífstíll | 19.10.2014 | 23:27 (breytt kl. 23:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)