Breyttur hringur

Ég á virkilega erfitt með að koma mér út úr dyrunum þegar sólin steikir pallinn hjá mér... það var þrekvirki að koma sér fyrir hornið á pallinum Crying
Ég ákvað að breyta til í dag, hljóp niður í bæ - hefðbundna leið að Lækjarskóla, þaðan upp í Setberg, gegnum Setbergið upp að Hvaleyrarvatni, niður Krísuvíkurveginn og heim...
Þetta var ,,upp og niður" kafli með bundnu og óbundnu slitlagi... brekkum og alles... virkilega gott að koma heim aftur. Hringurinn mældist 12,5 km - sama og Hrafnistan mín kæra... en nýr hringur virkar alltaf öðruvísi á mig... mér fannst hann lengri Errm

Nú verður bara lítið létt næstu daga... enda maraþon næstu 3 helgar hjá mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband