Það er allt í hers höndum hér, bíllinn bilaði, lak olíu og þvottavélin vildi fyrst ekki dæla af sér vatninu og byrjaði síðan að leka....
Bíll og þvottavél eru mikilvægustu tækin á heimilinu... bæði byrja að leka ???
Bíllinn hefur verið á verkstæði í allan dag... þess vegna engin leið að fara neitt með þvottavélina svo það er allt á rúi og stúi hérna núna.... engin hurð á klósettinu, þurrkarinn frammi á gangi og þvottavélin á miðju baðgólfi.... og heimasætan nýkomin frá Portúgal með haug af þvotti...
Á síðustu stundu varð ég að hætta við að hitta Þóru Hrönn við Lækjarskóla.... sendi henni sms-skilaboð, hleyp á morgun í staðinn í dag verð ég að láta mér nægja að hlaupa upp til handa og fóta út af þessu ástandi...
Flokkur: Íþróttir | 8.9.2008 | 17:25 (breytt kl. 17:27) | Facebook
Athugasemdir
Sæl Bryndís,
og til hamingju með hlaupið , ég fór á fimmtudeginum til
Keflavíkur og skoðaði sýninguna hjá Eddu mjög flott,
aumingja þú með allt í biliríi, en Lovísa hlýtur að
vera feginn að vera komin heim ,
sjáumst Soffía ,
soffia kristinsdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 20:11
Sælar,
Ég misskildi sms frá Þóru Hrönn, hélt hún væri að fara út úr bænum eh á morgun..... en svo leiðréttist það og ég mæti við Lækjarskóla kl 17:30 á morgun... C U
Bryndís Svavarsdóttir, 8.9.2008 kl. 21:15
Hæ hæ, Misskilningurinn liggur í því að ég er að fara í afmæli kl. 18:00 svo ég hleyp einhvern tímann eftir hádegi um kl. 15:00 eða 16:00. Svo þarf ég vegna vinnu að hlaupa á fimmtudagsmorgun ef einhver er til í það?
Kveðja,
Þóra Hrönn
þóra hrönn njálsdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.