Fyrsti vetrardagur var á laugardag og það er engu líkara en að Vetur konungur fari eftir dagatalinu og hafi í tilefni af því ákveðið að gleðja okkur með hálku og þvílíku.
Ég vil minna ykkur á broddana kæru Byltur. Þó við séum gjarnar á að detta, þá er miklu betra að detta á sumrin í góðu veðri en að detta í hálkunni.
Ég keypti mér frábæra brodda í fyrra í skóbúðinni í Firði. Þeir voru íslenskir, mjög vandaðir, úr endurunnu gúmíi og miklu ódýrari en þeir innfluttu......
ég mæli með þeim.
Læt hlaupaplanið fylgja með.......
Kl. 17:30
Mánudagar ... Setberg með lengingu ... ca 8 km
Þriðjudagar ... Norðurbær ... ca 7 km
Fimmtudagar ... Ásland með hring um Ástjörn ... ca 11 km
kl. 10:00
Laugardagar ... Garðabær ... ca 9 km
(hægt að lengja eftir vild út á Álftanes)
Flokkur: Íþróttir | 28.10.2007 | 19:46 (breytt kl. 19:48) | Facebook
Athugasemdir
Hæ allar, Ætlar einhver að hlaupa á morgun????
Kveðja,
Þóra Hrönn
Þóra Hrönn Njálsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.