Soffía hljóp sitt 4. maraþon í dag. Ég hjólaði með henni, sem betur fer, því hún fór fyrst af stað og ég þekkti leiðina.
Karfan framan á hjólinu gegndi ábyrgðarmiklu hlutverki sem bar, drykkjarstöð. Áfengislaus....
Soffía sá um að hlaupa og ég sá um að næra hana.
Veðrið var gott í byrjun,
síðan héldum við að veðrið væri að gera uppreisn og leiðindi,
en blessunarlega lygndi og það var til friðs, þar til 3 km voru eftir.
Soffía var farin að þjást af verkjum í vinstra hné, en eins og sönn Bylta, lét hún sig hafa það og kláraði á 6:48:05.
Á heimleiðinni kom það til tals að Soffía hafi nú með stæl dottið inn í hópinn, þó hún hafi ekki farið á hausinn, en það er klárt að hún bætist á sjúkraskrá næstu viku, verður amk í hvíld.
Flokkur: Íþróttir | 27.10.2007 | 17:05 (breytt kl. 17:23) | Facebook
Athugasemdir
Soffía innilega til hamingju með maraþonið.
Kveðja,
Þóra Hrönn
Þóra Hrönn Njálsdóttir (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 11:53
Glæsilegt Soffía mín, tilhamingju með þetta. Þú ert sigurvegarinn í dag!!!
kveðja magga
magga (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 18:30
SÆLAR ALLAR,
takk
já ég skokkaði nú mest seinnipartinn, og labbaði á milli stundum ég var
búin í hnjánum, en ég var líka voða lengi en ég hefði ekki farið ef BRYNDÍS
HEFÐI ekki komið líka, en ég er voða þrjósk og hætti helst ekki við það sem ég er búin að ákveða.
Það er bara gaman að ég er búin að prófa þetta maraþon, það var líka svo gott veður.
kv, Soffía.
soffia (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 09:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.