Var að lesa athugasemdirnar..... Ekki svo góðar fréttir af Önnu Rós, en það verður að kyngja því..
En gott hjá ykkur stelpur að ætla í Heiðmörkina í fyrramálið. Það var lagið... Ekki gefast upp núna, þegar það er svona stutt eftir.
Ég fór í nuddið og nálarstungurnar í morgun. Hann nuddaði mig villt og galið.... í þetta sinn var ekki gengið á mér.... Þetta er allt að koma.
Ég fékk meira bólgueyðandi í gær. En annars held ég að ég sé búin að finna út hvernig þetta gerðist .... Var að teygja á báðum hásinum í einu, á kantsteininum, eins og ég geri oft, og man að ég missti jafnvægið af því ég hélt mér ekki í neitt....
En gangi ykkur vel með prógrammið stelpur ...
Flokkur: Íþróttir | 6.10.2007 | 22:59 (breytt kl. 23:01) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.