Athens Marathon
(Greece) & 10K, 5K Athens, Greece
13.nóv. 2016
http://www.athensauthenticmarathon.gr/
Í fyrsta sinn í Grikklandi og gaman að hressa upp á grískuna...
Við vorum svo heppin að það voru fleiri hlauparar á hótelinu og hótelið framreiddi morgunmatinn 2 tímum fyrr (kl.5) svo við gætum borðað fyrir hlaup.
Klukkan hringdi kl 4 am og þetta var ein af þeim nóttum sem ég hvíldist ekkert... ég er ekki einu sinni viss hvort ég svaf eitthvað.
Við lögðum af stað fyrir kl 6 því síðasta rúta á start frá Sygrou Fix átti að fara kl 6:15. Lúlli labbaði með mér. Hvílíkur straumur af rútum og þeir sem þekktu til voru ekkert að spá í tímann. Í rútunni sat ég við hliðina á konu sem býr í Melbourne Ástralíu... hún var 18 tíma í flugi fyrir hlaupið... hún var búin að stúdera leiðina vel og upplýsti mig.
Það var svakaleg örtröð á leikvanginum í Marathon fyrir hlaupið og ræst í hollum, ég þurfti að bíða 40 mín í básnum. Fyrstu 8 km voru sléttir, næstu 24 km voru brekkur, allar upp nema tvær og þaðan lá leiðin niður...
Ég get ekki kvartað, gekk bara ágætlega... gekk eitthvað í brekkunum og þá þá þreytist ég alltaf í bakinu... ég hélt að heltin ætlaði að taka sig upp en ég slapp við það... mjöðmin fékk smá álag af veghallanum en það hvarf við Panodil... þjónustan á leiðinni var góð og leiðin sjálf auðvitað EINSTÖK... þetta er mekka maraþonsins... Hið eina sanna.
Lúlli lenti í smá veseni, göturnar voru lokaðar fyrir umferð svo hann varð að ganga á endamarkið... en hann stóð eins og hetja við markið þegar ég kom - enda er hann "Bíðari nr 1"
Þetta maraþon er nr 205, Garmurinn mældi vegalengdina 42,61 km og tímann 6:21:06
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 13.11.2016 | 17:31 (breytt 3.12.2016 kl. 00:28) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.