RNR Savannah, 5 km, 8.nóv 2015

Ég var mætt snemma, enda vissi ég ekkert hvar hlaupið var eða aðstæðurnar í kringum það, svo sem bílastæðamál. Ég var þess vegna ekki í vandræðum með stæði. Það var spáð rigningu í dag en það hékk þurrt þangað ég kom í mark, þá fór að dropa og svo kom demban þegar ég var komin í bílinn.

ALLIR voru að ræða gærdaginn... fólkið sem stóð við hliðina á mér sagðist vera frá Mississippi og vant loftraka en það hefði verið mjög slæmt í gær, erfitt að anda. Óvenju margir ofreyndu sig, vatn og pappamál voru uppurin og læknateymið annaði ekki að aðstoða... Kannski gerði það útslagið að maraþonið var stoppað að einn maður í hálfa maraþoninu dó á leiðinni.

5km Savannah 8.11.2015Áður en 5 km voru ræstir var andataks þögn vegna mannsins sem dó í hlaupinu í gær. Hlaupið var ræst kl 1 eh. Mér tókst að skokka þessa 5 km á 34:54 mín og er ég nokkuð ánægð með það. 

Verðlaunapeningurinn er rosalega flottur og ég fékk auka-"bling" (verðlaunapening) fyrir að hlaupa báða dagana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband