Ég er nokkurn veginn búin að ná mér eftir maraþonið... ótrúlega sárt að fá sinadrætti framan í sköflungana. Það er upp undir ár síðan ég hef fengið svona sinadrætti.
Í dag ákvað ég að fara rólegan og stuttan hring til að prufukeyra mig... af því að innleggin mín voru enn í léttu, þunnbotna skónum frá því í maraþoninu þá hljóp ég í þeim í dag... Í stuttu máli sagt þá eru þetta ekki skór fyrir mig - tábergssigið mitt þolir ekki svona þunna botna og ég var farin að vinda upp á fæturna í skónum - sem er auðvitað skýring á sinadráttum síðustu helgar.
Ég var ótrúlega þung á mér og hökti einhvern hring um hverfið, fór í sturtu og hjólaði út í Víðistaðakirkju til að taka þátt í fermingarfræðslu þessa árgangs. Var enn á lífi eftir 3 tíma þar og hjólaði heim... ÓBOY
stuttur þunnbotna hringur, skokk 7,5 km og 9 km á hjóli :/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.