Færsluflokkur: Íþróttir
Jólasnjórinn féll dúnmjúkt niður... þykkt lag yfir öllu... en út var farið. Ég var svo þreytt fyrstu km... en snjórinn var vaðinn samviskusamlega Hrafnistuhringinn kæra, 12,5 km. Laugavegshlífarnar svínvirkuðu í snjónum svo ekkert fór ofaní skóna. Það voru margir úti að ganga, renna á þotu eða gefa öndunum, en enginn annar á hlaupum.
Það var nokkuð kalt, ég þurfti að minna mig á það allan hringinn að slappa af, láta axlirnar síga og vanda mig að fara ekki útaf göngustígum og vegarköntum, á nokkrum stöðum munaði um að það var búið að skafa, þó stanslaust bættist við snjóinn.
Íþróttir | 28.12.2009 | 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Venjulega hleyp ég á Jóladagsmorgninum með Völu... en í gær treysti ég ekki öklanum/ristinni eftir byltuna í aðfangadagshlaupinu... öklinn/ristin stífnaði aðeins á aðfangadagskvöld en var svo í lagi.
Ég hljóp því út úr dyrunum í morgun, veðrið var frábært þó það væri aðeins kalt. Ég var svo heppin að rekast á aðra hlaupakonu við gamla íshúsið. Ég hljóp hringinn hennar með henni. Þetta er ágætis hringur með 2 góðum brekkum, Hringbrautinni og Holtinu... 6 km hringur.
Ég hélt síðan áfram, hljóp inn í Áslandshringinn og féll þar 2 langar brekkur í Setberginu og svo upp að hringtorginu... lét mér það nægja og hljóp þaðan heim. Sem betur fer var fóturinn til friðs svo ég byltan hefur engin eftirköst.
Hringurinn endaði í 13,5 km...
Íþróttir | 26.12.2009 | 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagurinn var tekinn snemma, ég ætlaði að hlaupa með Þóru Hrönn og hún ætlaði að hitta Haukahópinn við Vesturbæjarlaugina kl 10... það þýddi að ég fór út úr dyrunum kl 9:10
Tók aukahring því ég var aðeins of snemma í því... Við hlaupum út í laug, hittum hópinn og svo hlupum við eiginlega einar út á Garðaholt... þar sem ég flaug beint á hausinn. Sem betur fer datt ekkert vit úr mér, vinstri ökli var aumur og hægri hendi er enn aum... en ég hleyp ekki á henni.
Fall er faraheill... segir sá sem sennilega dettur aldrei... öklinn varð góður - Guði sé lof.
Við Þóra Hrönn lengdum síðan hringinn með því að hlaupa niður í Engidal og á Hjallabraut fórum við inn í öfugan Norðurbæjarhring og enduðum heima hjá Þóru Hrönn.
Þaðan eru um 3 km heim og ég lengdi aðeins til að ná 15 km.
Gleðileg jól
Íþróttir | 24.12.2009 | 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vá hvað hann beit maður, ég er ca 20 mín að hlaupa heim til Soffíu og var orðin helköld áður en ég kom þangað. Við hlupum síðan Norðurbæjarhringinn saman og fyrri helminginn á móti vindinum... Je minn, kuldinn.
Þetta var síðasti hringurinn með Soffíu fyrir jól, mældist 12,2 km eins og áður hjá mér.
Íþróttir | 21.12.2009 | 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dásamlegt að vera úti um miðjan dag að hlaupa. Veðrið var frábært, sennilega 5-7°c og lítill vindur. Ekkert nema snilld...
Hrafnistuhringurinn virkaði vel og mælist alltaf það sama 12,5 km
Íþróttir | 17.12.2009 | 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eftir að hafa verið ofaní bókunum í allan dag, hljóp ég út... alein, Vala komst ekki og ekki heldur Þóra Hrönn. Vá, hvað myrkrið getur verið svart meðfram sjónum og höfninni, ég sá ekki neitt...
Hrafnistuhringurinn er eins og áður 12,5 km
Íþróttir | 15.12.2009 | 20:27 (breytt kl. 20:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íþróttir | 14.12.2009 | 14:19 (breytt 15.12.2009 kl. 20:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við hittumst kl 10 við gamla Lækjarskóla. Það var rigning og dimmt yfir en það er allt betra en hálka. Við tókum brekkuhringinn og kjöftuðum alla leiðina, nóg að tala um.
Við ákváðum að hittast aftur á mánudag og hlaupa Norðurbæjarhringinn.
Áslandsbrekkurnar voru 13 km fyrir mig.
Íþróttir | 12.12.2009 | 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var hlaupið út í slagveðurs rigningu... Vala var upptekin en Þóra Hrönn og Ingleif hitti ég á Austurgötunni, við hlupum gamlan hring um Norðurbæinn. Veðrið virtist skána eða við vorum svo skemmtilegar að við tókum ekki eftir því.. hálkan var nær farin og ógurlega dimmt á köflum.
Hringurinn náði 11.6 km hjá mér.
Íþróttir | 8.12.2009 | 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hitti Soffíu og við hlupum Norðurbæjarhringinn okkar. Það var ágætasta veður, ekki svo kalt, logn, glerhálka á götunum... og við náðum að hlaupa í björtu.
Hringurinn hjá mér mældist 12,2 km :)
Íþróttir | 7.12.2009 | 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)