Færsluflokkur: Íþróttir
Ég skilaði heimaprófinu fyrir hádegið... Eftir að hafa verið í frjálsu falli í marga tíma á eftir, bakaði ég smákökur og hljóp svo út til að hitta Völu. Það var aðeins hálka, en við vorum báðar broddalausar... Við fórum Hrafnistuhringinn en urðum að breyta smá kafla. Frá gömlu sundlauginni urðum við að fara í gegnum bæinn, því myrkrið er rosalegt meðfram sjónum og á bryggjunni. Hringurinn styttist aðeins við þetta, varð 12,3 km.
Íþróttir | 24.11.2010 | 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er enn í heimaprófinu, lít varla upp og á tvær spurningar eftir... hvort svar um 1000 orð. En ég varð að fara út á milli spurninganna. Hljóp Hrafnistuhringinn, svolítið stressuð en hvað með það. Það skiptir mestu máli að það er ekki hálka, hiti um eða yfir frostmarki og þurrt. Getur varla verið betra.
Hrafnistuhringur 12,5 km
Íþróttir | 22.11.2010 | 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er í heimaprófi... en ákvað að skella mér stuttan hring... Hrafnistuhringinn kæra. Þar sem ég fór út um kl 10 var Haukahópurinn í startholunum, en ég nennti ekki sveitahring með þeim... Mætti svo FH-ingum í bænum og við Hrafnistu... veðrið var frábært, smá vindur, ekkert of kalt og það komu smá dropar í lokin.
Hrafnistan 12,5 km
Íþróttir | 20.11.2010 | 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hljóp heim til Soffíu. Við hlupum síðan Norðurbæjarhringinn og hún hljóp með mér niður að Lækjarskóla. Færið var lúmskt, nær ósýnileg glerhálka. Í þessu færi virka gormar eins og skautar og svona þunn skán eyðileggur alla brodda.
ATH... broddar eru ódýrari en fyrsta koma á slysadeild ;)
Skammturinn í dag var 12,2 km
Íþróttir | 17.11.2010 | 12:44 (breytt kl. 12:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta leit ekki vel út, kuldi og hálka... svo ég dró fram broddana... þeir eru orðnir aðeins slitnir, eftir fyrravetur. Ég slít þeim þegar færið er autt á köflum. Annars eru þetta bestu broddar sem ég hef keypt... (Wal-mart)
Hringurinn lengdist aðeins af því að ég hljóp fyrst heim til Völu og fórum svo Hrafnistuhringinn okkar í kulda, mótvindi og smá dropum í lokin.
13,4 km í dag
Íþróttir | 15.11.2010 | 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fór í kirkju í morgun. Komst ekki út að hlaupa fyrr en að ganga fjögur... það var napur vindur og ég hélt það myndi snjóa... Hrafnistuhringurinn var farinn og ekki meter meira. Ég er í orkufrekri ritgerð og hafði ekki tíma fyrir meira.
12,5 km í dag og finnst það bara ágætt
Íþróttir | 13.11.2010 | 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hitti Soffíu við Lækjarskóla, hvílíkur kuldi ... frostið var ekki svo mikið en vindurinn bætti hressilega við. Við tókum okkar brekkuhring saman upp í Áslandið (6,8 km)... ég skilaði Soffíu svo heim sín og hljóp heim aftur. þó ég hafi verið í ,,kafarabúningnum" var mér skítkalt.
Hringurinn var 13,1 km samtals
Íþróttir | 11.11.2010 | 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var æðilegt að hlaupa í dag, snjórinn farinn, aðeins kalt og næstum logn... og svo var ég með Völu. Við fórum Hrafnistuhringinn as usual... Það var búið að setja upp jólatréð við Engidalinn - kannski verður búið að kveikja næst
Við vorum í góðum gír, 12,5 fyrir mig
Íþróttir | 8.11.2010 | 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hljóp snemma út með það í huga að láta ,,Hrafnistuhringinn" (12,5) nægja... Snjór er slæmt færi fyrir mig, sem þarf að fljóta áfram og má hvorki spyrna eða renna til.
Eftir að hafa komist yfir þröskuldinn var nú samt breytt um stefnu... Af því að ég var svo snemma í því þá ákvað ég að koma við hjá Þóru Hrönn og athuga hvort hún væri búin að hlaupa og þá myndi ég lengja í ,,Garðabæ hinn minni" (16).
Hún stóð í ströngu við að setja í töskur og var hætt við að hlaupa... Ég glopraði út úr mér þetta með Garðabæinn... þá var ekki aftursnúið Garðabærinn skyldi það vera.
Áður en ég var komin að gömlu Sorpu var ég búin að lengja í ,,Garðabæ hinn meiri"(20) - hvað... það munaði svo litlu ...
Færið át mig upp þó leiðin var farin í hægari gír en vanalega. Fékk ískaldan mótvind frá Arnarnesinu og alla leið heim. Ég kom dauðþreytt og glorhungruð heim, greinilegt að 2 hrökkbrauð nægja ekki í morgunmat
Garðabær hinn meiri 20,2 km
Íþróttir | 6.11.2010 | 14:06 (breytt kl. 14:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var K A L T í morgun enda snjór yfir öllu... maður minn hvað færðin þreytti mig... ég var komin til Þóru Hrannar kl 10 í morgun og við fórum Áslandsbrekkuhringinn. Það blés aðeins á efstu punktum annars var logn og bara snilld... við þögðum alla leið á toppinn... er það kraftaverk eða hvað?... nei... við vorum að spara orkuna.
Hringurinn varð 13 km hjá mér.
Íþróttir | 4.11.2010 | 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)