Færsluflokkur: Íþróttir
Eftir 613 mílna keyrslu, frá Minneapolis til Springfield.... var fyrsta stoppið í Expo-inu, því næst minnsta sem við höfum séð, aðeins 2 borð í anddyri Hótels. Ég læt það fylgja hér að minnsta Expo-ið var þegar ég hljóp Palos Verdes í Californiu... það var 1 stóll og borð út á stétt.
Síðan var bara að borða, kaupa sér morgunmat og tékka sig inn á mótelið... gera sig klára og slappa aðeins af, ég þarf að vakna snemma.
Íþróttir | 1.10.2011 | 22:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hitti Völu við vinnuna. Við hlupum Hrafnistuhringinn saman. Við höfum átt mjög fáa hlaupadaga saman í sumar og í haust ætla utanlandsferðirnar mínar líka að þvælast fyrir okkur. Síðasta maraþon var fyrir 10 dögum... Tvær vikur, er eiginlega versta bil á milli hlaupa hjá mér... því ég hvíli viku eftir maraþon og hleyp lítið vikuna fyrir maraþon. Ég fer út næsta föstudag og hleyp maraþon eftir "þjóðvegi 66" næstu tvo sunnudaga. En í dag nutum við Vala þess að hlaupa saman, kjöftuðum svo mikið að við tókum varla eftir leiðinni - æðislegt.
Hrafnistan 12,5 "as usual" og við í þrusu gír
Íþróttir | 26.9.2011 | 21:41 (breytt 30.9.2011 kl. 01:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Community First Fox Cities Marathon Appleton, WI USA
18.sept 2011
http://www.foxcitiesmarathon.org
Klukkan var stillt á 4:45 en við vorum vöknuð á undan. Við erum ágætlega staðsett, tæpar 2 mílur í strætó sem fer á startið (sami staður og gögnin voru í gær). Ég var mætt í strætó fyrir kl 7.
Það var frekar kalt og vindur svo ég var að hugsa um að hlaupa í jakkanum en hætti sem betur fer við það á síðustu stundu. Hlaupið var ræst kl 8
Það voru ekki margar brekkur, leiðin bein og göturnar frekar langar. Þjónustan á leiðinni var frábær, nóg af starfsfólki og allir svo vingjarnlegir. Veðrið hélst milt, ekki of heitt því það var skýjað og vindurinn kældi, síðustu mílurnar komu nokkrir dropar en við sluppum við rigningu.
Ég var orðin mjög þreytt framan á lærunum þegar ég kom í mark, en það gleymdist allt þegar ég fékk verðlaunapeningana.
Einn fyrir maraþonið og annan fyrir að mæta sem félagsmaður og hlaupa Maniacs Reunion Marathon. Þessi peningur er safngripur
Maraþonið mældist 26,32 mílur og minn tími var 5:05:44
Þetta maraþon var nr 132
Íþróttir | 18.9.2011 | 20:18 (breytt 19.9.2011 kl. 00:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fox Cities Marathon 18. sept. 2011
Á leiðinni til Appleton keyrðum við í gegnum
MARATHON-sýslu
og framhjá MARATHON CITY...
ekki ónýtt fyrir Marathon Maniac nr 3942.
Og við fundum líka skilti sem passaði fyrir Bíðara nr. 1
Við höfum haft það mjög gott síðan við komum hingað. Það er allt við hendina :)
Samhliða gagnaafhendingunni var REUNION hjá Marathon Maniacs... og við mættum þar.
Hér er maður á mynd með forkólfunum, Maniac #1, #2, ég er ekki viss nr hvað þessi í hvíta bolnum er en ég er # 3942 :)
Íþróttir | 18.9.2011 | 01:56 (breytt kl. 02:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fékk tak í bakið á sunnudag fyrir viku og lét vera að hlaupa... ekki vil ég missa af GEÐVEIKIS-reunion-inu í Appleton um næstu helgi. Ég hljóp sem sagt ekki í viku en hjólaði eitthvað... settist niður og byrjaði á blessaðri lokaritgerðinni minni... svo það kom eitthvað hagkvæmt og gott út úr þessu taki. Kannski þurfti ég bara að taka mér tak til að byrja á þessari ritgerð... haha - þetta er ekki fyndið. En í dag hitti ég Völu og við kjöftuðum okkur gegnum Hrafnistuhringinn í þessu fína veðri :)
Hrafnistan á ágætis tíma með frábærri vinkonu - hvað er hægt að biðja um meira.
Næsta maraþon verður á sunnudaginn í Appleton WI ( Fox Cities Marathon) heimabæ töframannsins Houdini. Á laugardag, á sama tíma og Expo-ið er verður REUNION hjá Marathon Maniacs og ÉG MÆTI
Íþróttir | 12.9.2011 | 20:18 (breytt kl. 23:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veðrið var æðislegt, eins og sumardagur... Ég fór frekar seint út, lenti á kjaftasnakki um viðtalið á RUV í fréttunum í gær... http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4604069/2011/09/02/9/
Maðurinn (Bíðari nr 1) sló í gegn - ekki spurning
En Hrafnistuhringurinn 12,5 km, var farinn eins og svo oft áður... ég varð alltaf að vera að bremsa mig af - fór alltof hratt en tíminn aðeins betri en á miðvikudag... svo það er kannski komið til að vera
Íþróttir | 4.9.2011 | 02:03 (breytt kl. 09:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Undanfarin ár hef ég hvílt í viku eftir maraþon... síðasta laugadag var komin vika... en þá hélt ég partý. Ekki voru afleiðingar partýsins að þvælast fyrir mér heldur vaknaði ég sár í hálsi og stífluð af kvefi. Ég lét því vera að hlaupa en hjólaði samt sem áður.
Í dag ákvað ég að hlaupa og viti menn - fyrsta slagveðrið mætti líka. Hrafnistuhringurinn var farinn, ég hef sagt það áður að þetta er veðrið mitt... allir mínir bestu tímar eru í brjáluðu veðri. Núna leit ég ekki á klukkuna allan hringinn ákveðin í að fara hringinn eftir heilsu og vellíðan :) Þess vegna var ég mjög hissa... það eru mörg ár síðan ég hef verið á svona góðum tíma
Íþróttir | 1.9.2011 | 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Síðasta laugardagskvöld hélt ég formlega upp á áfangann að hafa hlaupið maraþon í öllum 50 fylkjum USA...
Dagurinn á eftir fór í að gera vídeo sem ég setti síðan á YouTube... maður minn hvað maður er að verða mikill tæknigúrú... hehe
http://www.youtube.com/watch?v=mHvg95X2kIE
(muna að hafa hljóðið á)
Þeir sem svöruðu boðinu og mættu á staðinn skemmtu sér frábærlega vel... en einmitt það hámarkaði ánægju mína yfir að hafa tekist að klára þetta :)
Íþróttir | 31.8.2011 | 00:34 (breytt kl. 00:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
http://www.marathon.is/reykjavikurmaraton/500-reykjavikurmaraton-2011

Gögnin voru sótt í gær... og farið samviskusamlega í pastaveisluna... einu skiptin sem ég borða pasta fyrir maraþon eru hér... síðan var úrið hlaðið, fötin tekin saman, flagan sett á skóinn og allt gert tilbúið. Fór að sofa um hálf 11.
Vaknaði tveim tímum fyrir hlaup 6:30, en fórum frekar seint af stað inneftir. Við leggjum alltaf á sama stað og hittum yfirleitt sama fólkið við startið. Í pastaveislunni hafði farið á mis við hinn eina erlenda Marathon Maniac (David Holmen) sem kom til að hlaupa maraþon en hitti hann svo við rásmarkið. Bíðari nr 1 mundaði vélina... af öllum þessum fjölda vorum við tvö Maraþon Maniacs - hinir voru bara venjulegir hlauparar
Það var svo mikið að gera hjá mér að ég gleymdi síðasta pissi og varð að afgreiða það á fyrstu stoppistöð... veðrið var í það ,,besta" ég fór tvisvar úr bolnum á leiðinni

Það væri ósanngjarnt af mér að vera ekki ánægð með hlaupið, hár blóðþrýstingur hefur plagað mig síðustu viku, í fyrradag (178/112), áður en ég fór af stað (176/96) en eftir maraþonið (106/64). Síðan fékk ég tvisvar tak aftan í lærið á síðustu vikum og dró þá úr æfingum en hjólaði samt sem áður.
Ætlunin var því að hlaupa rólega... Á tíunda km ákvað stingurinn að taka sig upp, ég hægði á mér og hljóp áfram og hann var horfinn við 24 km-keiluna.
Lúlli hitti mig síðan við Nauthólsvík/flugvöllinn og hjólaði með mér síðustu 13 km... það hefur hann gert undanfarin ár. Venus var í körfunni á hjólinu og stjórnaði ferðinni
Þetta maraþon er nr. 131, tíminn minn 5:08:42 og maraþonið mældist 42,04 km.
Ég er rosalega stolt af því að 3 af börnunum mínum og 3 barnabörn fóru 10 km vegalengdina
Íþróttir | 20.8.2011 | 19:00 (breytt 1.9.2011 kl. 12:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég hef verið ein að hlaupa að undanförnu, mánudagarnir hafa gjörsamlega misfarist hjá okkur Völu, ég er virkilega farin að sakna hennar :)
Ég hljóp skammtinn í blíðunni fyrir hádegið. Hjólaði eftir hádegi og um kvöldið á bæjarhátíðinni í Vogunum. Góður dagur og á morgun verður annar góður dagur þegar við Berghildur tökum síðustu 2 spjöldin í Ratleik Hafnarfjarðar :)
Hrafnistan 12,5 km og hjólaði 21,6 km
Íþróttir | 13.8.2011 | 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)