Færsluflokkur: MARAÞON

Oklahoma Marathon 26.4.2009

Oklahoma City Memorial Marathon & Half-Marathon, 5P Marathon Relay, 5K Memorial Walk, Oklahoma City, OK USA  26. april, 2009
http://www.okcmarathon.com

Oklahoma City Memorial Marathon 26.4.2009 005Klukkan vakti mig kl 3:30, samt er mjög stutt á startið. Svona vil ég hafa það - ekkert stress. það fyrsta sem ég gerði var að kveikja á tölvunni og hella á kaffi. Bíðarinn beið við tölvuna - hún er komin inn... og við kjöftuðum í gegnum MSN á meðan ég teipaði á mér tærnar.
(Nú er MSN-ið horfið úr tölvunni... W00t og ég get ekki talað við Bíðarann, ég hef eytt 3 klst í að leita að msn-inu og reyna að setja inn myndir og nú er ég búin að gefast upp, set myndirnar inn seinna)

Oklahoma City Memorial Marathon 26.4.2009 001Ég fór út rétt eftir kl. 5, enda geta bílastæðamálin veríð kílómetraraðir. Ég var heppin, þrátt fyrir að komast ekki í bílastæðahúsið sem ég ætlaði... það var búið að loka götunni. Ég lagði hjá einhverri bílastöð og bað svo konuna í næsta bíl að merkja inn á kortið mitt hvar við værum... Við vorum rétt hjá.

Venjulega þarf ég ekki að tékka inn dót fyrir hlaupið en nú gerði ég það... jakka, myndavél, bíllykla og bílastæðakortið... jakkinn var bara til að hlífa myndavélinni. Það var heitt úti og hvílíkt rok, það fauk allt laust, meira að segja litlir bakpokar.
Veðrið: Hitinn var 71°F í upphafi en var kominn í 78°F í lokin, loftrakinn var 62% og vindurinn var 26-30 mph, sem ég held að þýði mílur á klst... annars veit ég það ekki enda er ég ekki veðurfræðingur Wink

Oklahoma City Memorial Marathon 26.4.2009 Hlaupaleiðin var ágæt, rolling hills eins og þeir kalla það... GetLost kannski aðeins of mikið af þeim og svo var það þessi stífi mótvindur síðustu 13 mílurnar... maður var svolítið þreyttur á þessum barningi til baka.
Hlaupið var mjög vel skipulagt, frábær þjónusta á leiðinni, nokkuð um áhorfendur og í markinu var allt til alls, eins og á veitingahúsi, nýsteiktir Carls Jr hamborgarar
http://www.carlsjr.com  FLOTTUR PENINGUR Whistling

Maraþonið mældist 42.69 km og mín tímataka segir tímann minn vera 5:25:17 en ég hef sjaldan verið eins fegin að koma í mark og þarna... finnst ég mjög blessuð yfirhöfuð að komast í markið.

Þetta er 105 maraþonið mitt, 7. á þessu ári,
Oklahoma er 36. fylkið mitt... 14 eftir


Ocean Drive Marathon NJ, 29.3.2009

Ocean Drive Marathon, New Jersey
sunnudaginn 29.mars 2009, kl. 9
http://www.odmarathon.org

Það er víst betra að hafa góðan tíma, þegar maður þarf að tékka sig út, bera sig út í bíl og keyra einhverjar mílur á áfangastað um nótt. Ég fór snemma að sofa, svaf ágætlega en var alltaf að vakna og vissi svo oft af mér. Klukkan var stillt á 4:30... Indverjinn var búinn að bjóða mér að mæta í morgunmat kl 5.

Fyrir start í OceanDriveMarathon.NJ.29.3.2009Ég talaði við Lúlla á msn á meðan ég teypaði tærnar á mér... en pakkaði svo öllu saman og var lögð af stað 6:15. Ég var mætt og fékk frábært bílastæði hálftíma áður en rútan keyrði keppendur frá markinu í Sea Isle City, kl 7:15... að startinu í Cape May.

Það var rigningar-þokusuddi og rok, fáninn var beinn út í loftið. Við fengum aðstöðu í hótel-andyri og þar fékk ég gefins svartan ruslapoka til að byrja í. Þarna frétti ég fyrir tilviljun að það mætti byrja kl. 8 og auðvitað þáði ég það. Þetta var mjög frumstætt allt, engin flaga og þeir sem ætluðu fyrr af stað, þurftu að skrifa sig niður, máttu ekki klára undir 5 tímum og það var ekki víst að drykkjarstöðvar væru opnar fyrsta klukkutímann.

Eftir hlaup, OceanDriveMarathon.NJ.29.3.2009Leiðin hefði verið mjög falleg á björtum sumardegi... en hlaupið var á eyjunum meðfram landinu og reglulega hljóp ég yfir brýr sem tengdu þær saman. Þetta er sumarleyfisparadís ríkisbubba, flott stórhýsi með sundlaugum, allt saman mjög vel hirt og snyrtilegt EN ALLT MANNLAUST. 
Ég hljóp mestalla leiðina með konu frá St.Luis og manni frá Argentínu. Þjónustan á leiðinni var frábær, nóg af vatni, orku og ávaxtabitum. Ég þjáðist af krampa í kálfum síðustu mílurnar en er ánægð með að hafa klárað hlaupið sem mældist 42,56 km. á 5:09:16 á mína klukku.
Maraþonið er nr. 104
New Jersey er 35. fylkið mitt - 15 eftir Joyful

Eftir að hafa nært mig aðeins, keyrði ég norður til Trenton, keyrði ca 50 mílum of langt norður, vegna mistaka. Garmurinn fann ekki heimilisfangið á hótelinu og þegar ég ætlaði að láta hann finna það eftir nafni, gekk það ekki heldur - ástæðan, það hét öðru nafni fyrir ári síðan og nýja nafnið var ekki komið inn á Garminn.

Rodeway Inn, 1132 Route 73, Mount Laurel, NJ. Us 08054
phone (856) 656 2000  Room 120

Ég var mikið fegin þegar ég komst loksins á hótelið, komst í samband við Bíðarann, sturtu og fékk mér að borða Cool 


Yuengling Shamrock Sportsfest Marathon, 22.mars 2009

Virginia Beach 22-3-2009Yuengling Shamrock Sportsfest Marathon & Half Marathon, 8K,Children's Races, Virginia Beach, VA USA, March 22, 2009

http://www.shamrockmarathon.com

Ég var sífellt að vakna í nótt, klukkan var stillt á 5, en ég var komin á ról áður. Morgunmaturinn á hótelinu byrjar ekki fyrr en 7, svo ég hafði keypt mér beyglur og smurost í Target. Ég hefði getað sofið lengur, það var svo stutt á startið...

Virginia Beach 22-3-2009Kl. 7 rölti ég niður, það voru fleiri í hlaupagöllum, maður ekki sá eini sem er galinn. Það var skítkalt á meðan maður beið eftir startinu... ég bað einhvern mann að taka mynd af mér við rásmarkið. Hann spurði auðvitað hvaðan ég væri... Íslandi svaraði ég. Þá þekkti hann mig, við höfðum hlaupið saman í Mason City í haust. Við hittumst aftur í markinu. Ég þekki fólk yfirleitt ekki aftur, en það muna allir eftir því að hafa hlaupið með Íslendingi. 

The Boardwalk, Virginia Beach 22-3-2009Hlaupið var ræst kl 8, aðeins farið að hlýna og hiti var ekki eitthvað sem truflaði mig í þessu maraþoni. Leiðin var falleg, hefði verið einmannaleg í fámennara hlaupi, því göturnar voru langar og að hluta til fram og til baka. En maraþonið er stórviðburður hér, vel skipulagt, mikið af áhorfendum, góð þjónusta á leiðinni og mikið um að vera í markinu.

Siggi Guðmunds. Virginia Beach 22-3-2009Síðustu mílurnar varð ég að vanda mig, því það jaðraði við krömpum í báðum kálfum og þegar ég hljóp inn á Boardwalk, strandstíginn við markið, þá var ég með krampa framan á hægra fæti fyrir ofan hné.

Ég kláraði hlaupið sem mældist nokkuð nákvæmlega, eða 42,35 km. á 4:59:51 samkvæmt minni klukku. Þulurinn tilkynnti komu mína í mark og þegar ég hafði hlaupið yfir marklínuna, var kallað á mig á íslensku, Siggi Guðmunds. en hann er tengdur Kristínu sem vinnur við framkvæmd þessa hlaups.

Kristín framkv.stj. Virginia Beach 22-3-2009Mér var boðið í VIP tjaldið til Íslendinganna þar og boðinn bjór... en ég fékk bjór á 16. mílu og hann var svo góð tilbreyting frá sykurjukkinu að ég er að spá í að hefja bjórdrykkju... BARA GRÍN

Þetta maraþon er nr. 103
Virginia er 34.fylkið mitt.
Maraþonið var að sjálfsögðu hlaupið til heiðurs Bíðara nr 1... Hvað annað!


Miami Marathon, 25.jan.2009

Miami Marathon
ING Miami Marathon & Half-Marathon, Miami & Miami Beach,
FL USA, 
25.jan. 2009

MiamiMaraton.25.1.2009, á startinuhttp://www.ingmiamimarathon.com

Ég fór frekar seint að sofa, svaf ekki vel og lét klukkuna vekja okkur kl.3 í nótt. Það var eins gott að við höfðum tímann fyrir okkur. Það voru 15 mílur á startið... og garmurinn vildi bara fara með okkur yfir vindubrú sem var opin - og verður opin þangað til á morgun.

MiamiMaraton.25.1.2009, komin hálfa leið.Ég var í alvöru farin að hafa áhyggjur af því að missa af hlaupinu. Það var ekki óhætt að elta bara einhvern bíl... og við sáum enga hlaupara. Eftir að hafa keyrt fram og til baka, út og suður... spurði ég lögregluþjón til vegar.

MiamiMaraton.25.1.2009, nokkrir metrar í markVið fundum stæði og ég komst í básinn minn... og þá voru ekki margar mínútur í start kl.6:15.  Það var heitt og rakt þó það væri enn dimmt. Raunar var alltof heitt í hlaupinu - strax og birti og þegar ég kláraði var 75 á Farenheit... 25°c. en götuhitinn hefur verið meiri.
Það er ekkert nýtt að ég fór of hratt af stað... og að ég var með drykkjarvandamál... drakk fyrst of lítið en varð samt í spreng... síðan drakk ég heilu glösin á hverri drykkjarstöð en gat ekki pissað dropa.

Miami Marathon 2009, flott verðlaunÞað var svo heitt að ég hellti nokkrum vatnsglösum yfir mig á hverri drykkjarstöð... soðnaði meira að segja á tánum, því vatnið lak niður í skó. Hitinn dró mig niður eins og venjulega.

Leiðin var ekkert sérlega skemmtileg - en allt í lagi... nokkrar brekkur voru og farið fram og til baka, þannig að maður var að mæta hlaupurum sem voru á undan.

Guð sé lof...ég kláraði maraþonið sem mældist 43.1 km á 5:33:41 á mína klukku.


Warner Robins Marathon, Georgía 17.1.2009

Warner Robins, Georgíu. 17.jan.2009
Museum of Aviation Foundation
Marathon & Half-Marathon, 
Warner Robins/Robins AFB, GA USA. 
17.jan. 2009

http://www.robinspacers.org/museum
Warner Robins, Georgíu. 17.jan.2009... það væri gaman að fá þennan!

Klukkan var stillt á 4:30 og konan sem sér um eldhúsið var svo vinsamleg að opna það klst fyrr en vanalega. Við gátum fengið okkur kornflex, beyglur og vöfflur... umm heitar, nýbakaðar vöfflur.

Warner Robins, Georgíu. 17.jan.2009... það er svo kalt!Við keyrðum af stað rúmlega 7, enda stutt á staðinn. Ég þurfti að sækja gögnin... ég var nr 107.
Það var nokkurra stiga frost, svo ég var í síðerma bol úr Disney-maraþoninu og vesti úr Mississippi Blues-maraþoninu. Ég var ekki með vettlinga með mér, svo ég keypti þá í gær í Wal-mart.

Afhending gagna og verðlauna fór fram inni í flugvélasafninu og startið var fyrir utan, heilt maraþon fór tvisvar sama hringinn í kringum flugvöllinn og vallarsvæðið.

Warner Robins, Georgíu. 17.jan.2009, þá er bara að taka flugið til Orlando :)Það var ræst kl 7:57 (smá mistök). 
Eins og oft gerist í litlum hlaupum fór ég of hratt af stað, maður smitast þegar það eru fáir keppendur og meirihlutinn er kannski að fara hálft maraþon. 
Við hliðina á skilti fyrir mílu 1... fékk ég rosalegan sinadrátt eða krampa í vinstri hnésbót... Ég veinaði : Ó, NEI GUÐ þetta má ekki...

Warner Robins, Georgíu. 17.jan.2009...Ég fékk verðlaun :)))Ég hægði á mér, reyndi að hlaupa vinstra megin á veginum, því hann var hæstur í miðjunni, þannig gat ég rétt aðeins meira úr fætinum... ég losnaði við sinadráttinn, Guði sé lof... og gat haldið hraðanum út hlaupið.

Það var óvænt ánægja að ég kom í mark á tímanum 4:58:48 á mína klukku og var fyrst í mínum aldursflokki. 
Ég næ alltaf betri tíma í kulda og mótvindi en í hita.

Þetta maraþon er nr. 101 og Georgía 33 fylkið mitt.


100. Maraþonið mitt, Disney, Florida 11.jan.2009

Disney World Marathon & Half Marathon, 5K, Orlando, FL USA 11.jan. 2009
http://www.DisneyWorldMarathon.com

Bíðari nr.1... æfir ,,biðÍ dag náðum ég stórum áfanga. Ég hljóp hundraðasta maraþonið mitt hér í Disney World í Florida. Ég hef hlaupið þetta maraþon áður og þótti það frábær upplifun. 

Hlaupið var ræst kl. 5:50 svo við vöknuðum 3:30 og það mátti ekki knappara vera. Við sáum það þegar Lúlli var í bílastæðisröðinni að ég varð bara að kveðja hann þar og hlaupa út úr bílnum. Ég rétt komst í ,,síðasta piss" og í ráshólfið mitt. 

Veðurspáin spáði skýjuðu og 20% líkum á rigningu... þetta voru auðvitað tóm svik. Við byrjuðum í 15 °C hita en um leið og sólin kom upp var orðin steik, 25°C og mælirinn á bílastæðinu sýni 30°C.

DisneyWorldMarathon11.1.2009 Ég byrjað vel, fór samt alltof hratt af stað og varð fyrir því óhappi að detta og strauja malbikið í kringum 5. mílu... hægri hliðin var upprifin og nárinn vinstra megin var aumur... En hvað með það, ég reyndi bara að spýta í lófana og halda áfram.
Hitinn lamaði mig á leiðinni, ég á í svo miklum vandræðum með að drekka hæfilega. Fyrst drakk ég alltof lítið og síðan alltof mikið.

Þegar ég nálgaðist markið, lét Lúlli mig fá spjald sem hann hafði skrifað á 100 Maraþon, Bryndís... og ég hljóp með það í gegnum markið.

Ég kom í mark á tímanum 5:34:02 á mína klukku, og verð víst að gera mig ánægða með að hafa ekki þurft að hætta eftir að ég datt.


Mississippi Blues Marathon, 3.1.2009

Mississippi Blues Marathon, Jackson, MS USA Jan. 3, 2009
http://www.msbluesmarathon.com/

Mississippi Blues maraþon. 3.1.2009Ég svaf óhemju illa Frown og hef ekki hugmynd af hverju. Klukkan var stillt á 4:45 og við vorum komin út úr dyrunum um kl.6. Það var ekki langt á startið en maður getur þurft að ganga eitthvað frá bílastæðunum.
Þetta er ekki fjölmennt hlaup. Hvílíkur loftraki, mér var þungt um andardrátt á meðan ég beið eftir ræsingu. Göturnar voru blautar og hálar... og skelfilega illa farnar í gamla bænum.

Hlaupið var ræst kl 7 og ég hélt ég væri komin í rússíbana, hvílíkar brekkur, ég heyrði fólk kvarta yfir þeim.  Sem betur fer vissi ég ekki af þeim fyrir, þeir eru ekki með hæðarkort á síðunni.
Mississippi Blues maraþon. 3.1.2009 Ég heyrði
marga tala um að þeir hefðu keyrt sig út í brekkunum...
Eftir brekkurnar þ.e. eftir að hálfa maraþonið hafði verið skilið frá, fórum við fram og til baka eftir ,,keflavíkurvegi" og síðan aftur í brekkuvesenið. Við vorum allan tímann í umferðinni, aðeins ein akgrein var lokuð af fyrir hlaupið.  Þjónustan á leiðinni var frábær en fáir aðrir á ferli.

Ég lauk hlaupinu á tímanum 5:30:34 og má bara þakka fyrir að hafa nennt að klára það og verð nú að segja eins og er að þetta var ekki skemmtilegt hlaup. Þetta maraþon var nr 99 hjá mér og fylkin sem ég hef klárað orðin 32  Cool 

Ath. myndir birtar með góðfúslegu leyfi Bíðara nr. 1 


Gögnin sótt í Jackson, Mississippi

Jackson Mississippi 2.jan.2009
Við renndum niður eftir um hádegið.

Við erum bara nokkrar mílur í burtu. 
Expoið var frekar lítið enda er þetta ungt hlaup, annað sinn sem það er haldið. 

Ég fékk rásnúmerið 104.
Það voru tónleikar á staðnum, blues hljómsveit enda er þetta blues-maraþon.

Jackson Mississippi 2.jan.2009Þarna hitti ég loksins á bás frá
50 State Marathon Club

ég hef lengi ætlað að gerast félagi í honum. 

Síðan settum við rásmarkið inn í garminn og keyrðum þangað til að kanna bílastæði og fleira. Þá er bara að taka sig til, slappa af og borða eitthvað af viti Joyful


Hlaupárs-annáll 2008

verðlaunapeningar2008Þetta ár hefur verið sannkallað hlaupár... ekki aðeins í þeirri merkingu að dagar þess voru 366, heldur í þeirri merkingu að ég hef aldrei hlaupið eins mörg maraþon á einu ári... eða 17 talsins.

Síðasta haust fékk ég hásinameiðsli og varð að hætta við Marine Corps Maraþonið í Washington DC í okt... þess vegna hélt að ég myndi nú ekki hlaupa mikið þetta árið... Crying
En við vorum búin að kaupa ferð til Californíu um áramótin og ég var búin að kaupa mig inn í Rock´N´Roll maraþonið í Arizona... og ég var nokkuð góð í fætinum W00t 

Músíkmaraþonin eru sérstaklega skemmtileg, svo ég ákvað að láta mig hafa það og kraftganga... með þeirri hugsun að hætta þá bara á leiðinni ef hásinin myndi bresta.  Þar með var ekki aftur snúið... þetta varð eina ferðin á árinu sem ég hef aðeins tekið 1 maraþon.

hlaupandikonaNæsta ferð var farin í febrúar og þá voru tekin 2 maraþon á 1 viku. Þegar skólinn var búinn í maí, var þriðja ferðin farin og þá voru tekin 4 maraþon á 3 vikum. Reykjavíkurmaraþon var síðan samviskusamlega farið hér heima í ágúst.

Fjórða maraþonferðin var farin til Usa í september og þetta sinn í miðríkin og á 5 vikum hljóp ég 7 maraþon.
Fimmta og síðasta ferðin var farin rétt fyrir jól og tekin 2 maraþon...

komin í markSamtals eru þetta 17 maraþon á einu ári... og Blush... hummm... eitt hálfmaraþon á Suðurnesjum.
Samtals... 738,5 km
Á þessu ári bætti ég 11 nýjum fylkjum í safnið og hef því afgreitt 31 af 50 fylkjum USA... og maraþonin orðin 98 talsins.

Næsta maraþon er 3. jan í Jackson, Mississippi http://www.msbluesmarathon.com/
og 100. maraþonið verður 11.jan 2009 í Disney í Florida http://www.DisneyWorldMarathon.com 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Las Vegas Maraþon, 7.12.2008

Zappos.com Las Vegas Marathon, Las Vegas, NV USA
                       7.des. 2008
http://www.lvmarathon.com

Las Vegas Marathon 7.des.2008 Klukkan var stillt á 3:30...og ég hafði sofið ágætlega, þrátt fyrir að vera þreytt eftir keyrsluna í gær og stressið að vera á síðustu stundu að sækja gögnin.

Við lögðum snemma af stað... sem betur fer, við höfum aldrei kynnst öðru eins skipulagi á lokun gatna. Hótelið okkar er 4-5 mílum frá starti á sömu götu... Lögreglan lokaði öllum götum hér í kring 2 klst. FYRIR hlaupið og við vorum í algerum vandræðum að komast á start.

Las Vegas Marathon 7.des.2008 Þegar við loksins fengum réttar leiðbeiningar, þurftum við að fara norður fyrir maraþonleiðina og svo suður aftur. Það var lítil bið eftir bílastæði loksins þegar við komumst á staðinn og algjör heppni að starfsmenn á golfbíl keyrði okkur að startlínu...

Las Vegas Marathon 7.des.2008 Þegar ég komst inn í þvöguna, voru 2 mín. í skotið... Ræst kl. 6:05... Vá...
Hlaupaleiðin var ágæt, þó ég sé ekki hrifin af löngum og tilbreytingar-lausum ,,keflavíkurvegum" en það var ekki eins áberandi leiðinlegt þegar maður er alltaf í hópi annarra hlaupara.

Tíminn var 4:59:44 á mína klukku... og er ég hæstánægð með það... besti tíminn minn á árinu.
Þetta maraþon var hlaupið til heiðurs Berghildi systir, sem átti afmæli í gær.
Til lukku systir Kissing


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband