Erfið færð

Ég hringdi í Þóru Hrönn... við ákváðum að hlaupa saman, en ég mátti ekki koma mínútu fyrir hálf 3... I  WAS ON TIME Joyful

Við hlupum ,,Norðurbæinn" í erfiðri færð (11,8 km fyrir mig)...  misvel skafnar götur... en sólin skein og við fengum vindinn í bakið á leiðinni til baka... þetta var ekkert nema snilld.

Hrikalegar hetjur ;)

Það var ekki hundi út sigandi, kyngdi niður snjó og skafrenningur...  en við Vala fórum Hrafnistuhringinn 12,5 km. Ég var mætt fyrir utan vinnuna hjá henni MJÖG tímanlega. Ég verð að fara að reikna þetta betur út. Pinch

Færðin var ömurleg... en við vorum svakalega skemmtilegar saman. Hluta af leiðinni... sá sem er yfirleitt alltaf á móti okkur... þá var besta veðrið SMÁSTUND... en síðasta km var veðrið eins og í óveðursbíómyndum... það var skafið yfir stíginn, vindurinn á móti, ég sá ekki út úr augum og svo kólnaði hressilega en ég var alveg að komast heim og ekkert annað í stöðunni en að láta sig hafa það Wink


Bara frábært ;)

Ég á ekki neina skauta og broddarnir eru ónýtir... svo ég fór ekki út fyrr en eftir hádegið, þegar sólin var búin að bræða eitthvað af klakanum. Ég var með gulrótina við nefið alla leiðina... sagði mér að ég færi bara Hrafnistu, svo ákvað ég að lengja í styttri Garðabæjarhring, en svo þegar ég var komin í Garðabæ... fór ég auðvitað lengri hringinn...Það var skelfileg ófærð á köflum en sólin brosti og það var hlýtt og fallegt veður.

Með viðkomu í Bónus varð hringurinn 20,3 km.   Bara frábært  Wink


Frábært hlaup

Ég dreif mig út fyrir hádegið... hafði ekki hlaupið í viku. Seinfattarinn hafði verið í gangi í marga daga en loksins áttaði ég mig á því hvers vegna ég fór í bakinu á laugardag. Ég hafði verið að ýta sendiferðabíl... þeir eru ekki þeir léttustu að ýta...

En ég er orðin góð... fann ekki fyrir neinu. Ég hljóp Hrafnistuhringinn kæra, 12,5 km. í kulda og trekki en er afar hamingjusöm á eftir.


Komst ekki út...

Ég vaknaði sæmilega snemma á laugardag, frábært veður... ætlaði að taka hinn venjulega helgar-Garðarbæjarhring... þ.e. stóra hringinn... en það varð ekki neitt úr neinu, bakið á mér klikkaði þegar ég fór framúr rúminu. Ég verð því að passa mig á því framvegis Wink það er auðvitað best að liggja bara uppí og láta strjúka sig W00t

Ég hef snarlagast Tounge og verð komin á götuna fljótlega... ákvað samt að hlaupa hvorki í dag eða á morgun.


Með Völu vinkonu :)

Ég var á síðustu stundu hjá Völu, hafði farið til Bjargar vinkonu og hún þurfti að stússa með ömmustelpuna sína í Reykjavík... ég fór með þeim... það er svo sem í lagi að vera á síðustu stundu... en ég hafði hvorki borðað eða drukkið vatn í marga tíma... það var verra...
En það var dásamlegt að hlaupa með vinkonu. Ég var mætt fyrir utan Sjúkraþjálfarann kl 5. og við hlupum Hrafnistuhringinn 12,5 km fyrir mig. Veðrið var ágætt... fyrir mestu að göturnar voru næstum auðar, við fengum mótvind EINS OG ALLTAF... og rigningarúði...

Við hlaupum næst saman á þriðjudag Kissing


As usual ;)

Skellti mér hringinn eh... þennan sama og vanalega 12,5 km. Veðrið var lala... sama rokið, smá dropar... snjóaði aðeins en göturnar voru auðar sem er bara frábært Tounge

Loksins auðar götur...

Frábært... Snjórinn næstum farinn, ég skellti mér út rétt eftir 1 í dag... Veðrið var nú ekki uppörvandi... rétt að koma rigningardropar... en ég lét mig hafa það.

Ég hljóp Hrafnistuhringinn 12,5 eins og vanalega... rokið var stundum á eftir mér en oftar á móti... hringurinn er bara þannig. Mér finnst skemmtilegra þegar ég er ein að hlaupa þessa leiðina... hleyp hann kanski öfugt með einhverjum. Sjávarleiðin til baka er fín, þó vindurinn sé alltaf á móti þar. Ég fann ekki svo fyrir rigningunni en samt var ekki þurr þráður á mér þegar ég kom heim... ég var síðan rétt komin inn, var að fara úr skónum þegar úrhellið kom, eins og hellt úr fötu.


Ein einu sinni enn...

Ég fór í kirkju í morgun, ætlaði hvort sem er að hlaupa ein seinna um daginn. Klukkan var orðin 2 loksins þegar ég fór út... Sumar gangstéttir voru orðnar auðar en aðrar voru skelfing. Lenti í myndatöku með 40-50 mönnum fyrir utan Fjöruna... þeir voru í stuði enda á spariskónum... og með öðruvísi orkudrykk heldur en ég.

Ég fór stóra Garðabæjarhringinn 19,5 km og maður minn, ég var gjörsamlega lurkum lamin þegar ég kom heim. Búin að vera... stíf upp í háls í hálkunni eftir að hafa verið hálf skríðandi yfir klakabunkana... það er spurning hvort þetta sé leggjandi á sig Errm


Hljóp ein...

Við Vala ætluðum að hlaupa saman en hún hringdi i mig rétt fyrir hádegið... lá heima veik.
Ég skellti mér því út, hljóp Hrafnistuhringinn 12,5 km og kuldaboli hljóp á móti mér. Þetta er ekki einleikið hvað vindurinn blæs á móti nær allan hringinn.
Nú minnist ég þess þegar við Snorri ætluðum að snúa á kuldabola, við vorum búin að vera í mótvindi vikum saman. Eitt sinn ákváðum við að fara öfugan hring... og vitið þið hvað... þetta var eini dagurinn sem við hefðum fengið meðvind í stað mótvinds.

Færðin var slæm, frosið þvottabretti með klakabunkum upp úr... en hringurinn var farinn, ekkert röfl... og heit sturtan séð í hillingum hálfa leiðina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband