VOR-MARAÞON FM Í REYKJAVÍK
Í ELLIÐAÁRDAL 21.apríl 2018
http://marathonhlaup.is
Ég komst því miður ekki inn í Sundaborg til að sækja númerið mitt og hljóp því númerslaus. Ég var búin að fá leyfi til að byrja fyrr og ætlaði ég að vakna kl 3 og byrja kl 4am... en ráðin voru tekin af mér. Ég fór nokkuð snemma að sofa en gekk illa að sofna og snéri mér í tóma hringi... ég sem sagt svaf vakandi. Síminn stilltur á 3 am en ég vaknaði ekki við hringinguna. Lúlli vakti mig 4:20... ég hentist í fötin og fór inneftir. 30 mín... Þetta hlýtur að vera met ;)
kl 4:50 hljóp ég af stað. Það var farið að birta, ég hafði einn lítinn vatnsbrúsa með mér og stólaði algerlega á að vatns-fantarnir væru opnir en þeir voru það ekki. Ég hafði vatn fram að snúningi úti á Nesi. Þá var ég líka farinn að finna að ég hafði borðað og drukkið of lítið eftir að ég vaknaði... hálfur banani og nokkrir sopar af vatni nægja ekki. Ég datt niður í leiðindi og strengdi þess heit á leiðinni að hlaupa þetta ALDREI aftur.
Leiðin til baka var því nokkuð erfið... ég var að drepast úr þorsta en var með nokkra gelhlunka sem ég borðaði. Ég drakk hálfan líter af kóki þegar ég kom aftur á startið en þeir áttu ekkert að borða... ég sótti hinn helminginn af banananum í bílinn og dreif mig í seinni ferðina. Ég var ekki komin að undirgöngunum þegar hlaupararnir voru ræstir.
Seinni ferðin var líka þræl erfið fyrir mig... ég var ekki hálfnuð út á Nes þegar ég fann að þorstinn var enn að plaga mig... ég drakk vel á drykkjarstöðinni við HR, sennilega of mikið því það sem var eftir af hlaupinu átti ég erfitt með að hlaupa. Ég var með verki eins og ég væri í spreng og fór 4x afsíðis en gat ekki pissað... og ef ég reyndi að hlaupa, varð ég að hlaupa stutt og vanda mig til að fá ekki sinadrætti framan á leggina. En þetta hafðist allt saman.
Ég svaf illa, svaf yfir mig, borðaði og drakk of lítið fyrir hlaup, var ekki með nóg vatn, drakk síðan of mikið, var eins og í spreng og fékk sinadrætti... Hvað gat fleira farið úrskeiðis í einu maraþoni?
Þetta maraþon er nr 227
Garmurinn mældi tímann 6:31:55 og vegalengdina 42,65 km
PS... og auðvitað á ég eftir að hlaupa þetta aftur :)
Íþróttir | 21.4.2018 | 13:53 (breytt 5.5.2018 kl. 15:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Schneider Electric Paris International Marathon
Paris, France
8.apríl 2018
http://www.schneiderelectricparismarathon.com/en
Við Lúlli komum til Parísar á fimmtudegi, sóttum gögnin á föstudegi og svo var hlaupið á sunnudeginum eftir. Hótelið okkar er vel staðsett fyrir hlaupið og á sama götuhorni og Metro. Aldrei þessu vant verður ræst í hollum og nokkuð langt á milli. Auglýsingar fyrir maraþonið segja 55 þús manns verða á götunum. Minn rástími er síðasti rástíminn, 9:55 sem mér finnst svolítið seint.
Ég stillti klukkuna á 6:30... hafði sofið ágætlega amk hálfa nóttina en ég hef verið á sýklalyfjum (þriggja daga skammti) og verið að kafna úr hósta alla daga og seinni hluta nætur. Við borðuðum morgunmat á hótelinu og gengum að Sigurboganum en startið var neðar í götunni. Þulurinn stýrði víkingaklappi fyrir startið. Allt gekk vel í fyrstu en svo hitnaði verulega þegar sólin fór að skína. Það áttu að vera 5 km á milli vatnsstöðva en það teygðist sífellt á vegalengdinni á milli.
Ég hafði skrifað sérstaklega til að spurja um tímamörkin... og hafði séð á úrslitum að fólk var upp í 8 tíma. En eitthvað fór öðruvísi... eftir 4 og hálfan tíma var verið að taka allt saman, drykkjarstöðvar voru vatnslausar, og jafnvel áður hafði ég þó nokkuð fyrir að snýkja vatnsglas á bar. Ég fór að átta mig á að tímamörkin voru sennilega reiknuð frá því að elítan var ræst kl 8:13... Þegar ég loksins fékk vatn þorði ég ekki annað en að hanga með flöskuna ef ég þyrfti að fara aftur á bar einhversstaðar... enda bjargaði það mér alveg.
Hluti leiðarinnar var meðfram Signu og þar þurftu hlauparar að vera í stórsvigi framhjá gangandi fólki... þar var ekkert pælt í að halda fólki frá. Þegar við komum aftur upp á götuna var búið að hleypa umferðinni á og eina ráðið að vera við gangstéttina en til að elta grænu röndina sem leiddi rétta leið var maður hreinlega í lífshættu á hringtorgum og sumum gatnamótum.
Komin uþb hálfa leiðina fann ég að ég var komin með blöðru á v-hæl... held ég hafi fengið blöðru á sama stað í síðustu maraþonum í þessum skóm... uppgötvaði nú að brún á innlegginu særir mig... verð að gera eitthvað í því.
Þegar ég kom að síðustu 200 metrunum að markinu, sagði ein kona að það væri búið að loka, og rak mig til hliðar, ég sá svo hlaupara vera koma inn og það endaði með því að ég fékk hjálp við að klifra yfir (fékk krampa í lærin við það) svo ég gæti hlaupið yfir marklínuna. Þar beið Lúlli, farinn að hafa áhyggjur, bæði vegna hitans sem var í dag og eins að ég er búin að vera hálf veik af þessu kvefi.
Lúlli bjargaði því að ég fengi tíma... hann hafði séð þegar þeir tóku mottuna svo ég sýndi úrið mitt og fékk tímann skráðan, síðan voru bæði verðlaunapeningarnir og bolirnir búnir... það var engin þjónusta við markið og eins og allstaðar var leitun að manneskju sem talaði ensku. Bæði bolirnir og verðlaunapeningarnir voru búnir en á leiðinni á hótelið fékk ég lánaðan verðlaunapening fyrir myndatöku.
Þetta maraþon er örugglega fínt fyrir þá sem þurfa ekki að spá í tíma en fyrir hæga hlaupara get ég ekki mælt með París.
Þetta maraþon er nr 226
Garmin mældi tímann 6:48:14 og vegalengdina 42,86 km
Íþróttir | 8.4.2018 | 20:27 (breytt 5.5.2018 kl. 15:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veðrið er búið að vera ótrúlega leiðinlegt í vetur og í febrúar hlupum við Vala bæði inni og úti. Það er svo miklu skemmtilegra að vera úti að ég tók of mikla áhættu rétt fyrir Jerúsalem maraþonið og endaði á að detta í hálkunni... en ég var sem betur fer fljót að ná mér.
1.mars... 5,1 km hjól
2.mars... 5,2 km skokk um hverfið og 1200m skriðsund
5.mars... 6,3 km m/Völu úti, mjög rólega, ég er að ná mér
9.mars... Jerúsalem Marathon Ísrael 42,21 km
14.mars... 6,3 km m/Völu, að Álftanesvegi.
15.mars... 11,2 km, að og kringum Hvaleyrarvatn
16.mars... 10,4 km, öfugur brekkuhringur Ásland - Hval.vatn
19.mars... 6,3 km úti m/Völu
26.mars... 10,2 km á Karmöy Norge
29.mars... 11 km m/Völu að Álftanesvegi
31.mars... 11 km að og kringum Hvaleyrarvatn
Íþróttir | 13.3.2018 | 22:15 (breytt 14.4.2018 kl. 21:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jerusalem Marathon & Half Marathon, 10K, 5K
Jerusalem, Israel
9.mars 2018
http://jerusalem-marathon.com/default.aspx
Við Lúlli sóttum gögnin fyrir maraþonið, þegar expo-ið opnaði kl.3... þetta var ágætis expo en ég verslaði ekkert. Við komum okkur á hótelið í samfloti við Hollendinga sem fara hálft á morgun.
Í þriðja sinn í röð hleyp ég maraþon á föstudegi. Ég stillti símann á 4am og var sofnuð um kl 9. Eins og í fyrrinótt hringdi síminn kl 23:15 og ég gat ekki sofnað aftur... ég fékk 2ja tíma svefn.
Eftir að hafa borðað og klætt mig hitti ég konur í lobbýinu og var labbaði samferða þeim á startið... um 2,5 km. Maraþon svæðið var rosalega stórt og ég hélt að ég sæi startið 500m fjarlægð en þegar ég mætti þangað var þetta markið og stórt spjald sem sagði startið í 600m fjarlægð.
Í stuttu máli sagt, var búið að ræsa hlaupið og allir farnir þegar ég hljóp yfir línuna. Ég get með hreinni samvisku sagt að þetta maraþon er örugglega fínt fyrir hraða hlaupara en svona skjaldbökur eins og ég skulu fara eitthvað annað.
Fyrir utan 100 langar og misbrattar brekkur þá "týndist" ég tvisvar, var vísað ranga leið (hljóp á móti og til baka, til að leiðrétta mistök) og þurfti sífellt að spyrja til vegar og fékk yfirleitt meiri hjálp frá almenningi eða hlaupurum sem ég mætti því starfsmenn vissu minna eða töluðu ekki ensku... Svo lenti ég í sjónvarpsviðtali á miðri leið.
Það var nóg af vatni á leiðinni en gelið varð ég að týna upp af götunni... sem aðrir höfðu hent.
Í markið komst ég, komin með blöðru á annan hælinn, aum í annarri mjöðminni og alveg búin að fá nóg af þessu brekkuveseni.
Þetta maraþon er nr 225
nýtt land - Ísrael :)
Garmin mældi vegalengdina rétta þrátt fyrir að hafa dottið út í undirgöngum... og tímann 6:57:29
Íþróttir | 9.3.2018 | 13:46 (breytt 14.3.2018 kl. 10:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég vona að febrúar verði betri varðandi færð en janúar. Við Vala höfum notið þess að vera úti þó það hafi verið ófærð og hálka.
1.febr... 5 km, ein kringum Ástjörn í kulda og ófærð.
2.febr... 1200m skriðsund
5.febr... 7,6 km á bretti, m/Völu
6.febr... 8,2 km brekkur og fl. kalt og kol ófærð
7.febr... 7,7 km bretti, m/Völu
9.febr... 10,4 km í kol-ófærð. brekkur, + 1200m skrið
12.febr... 10,9 km í kolófærð m/Völu
13.febr... 10,4 km kol ófærð, 3 brekkur
14.febr... 6,3 km að Álftanesvegi m/Völu
15.febr... 5,5 km... datt í hálku, tognaði í læri og var sótt
21.febr... 5 km ról á bretti og 1 km ganga á bretti, góð
23.febr... 7,2 km á bretti, var góð + 1200m skrið.
26.febr... 4,1 km úti í brjáluðu roki og ísköldu regni, var góð
27.febr... 8 km brekkur og 1x tröppur, gott veður, autt
28.febr... 10,6 km Hvaleyrarvatnshringur, gott veður, autt
Íþróttir | 2.2.2018 | 10:54 (breytt 1.3.2018 kl. 00:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færðin í vetur hefur verið afar leiðinleg og því höfum við Vala hlaupið á bretti inni. En nú í janúar fórum við loksins út og hvílíkt hvað það var æðislegt... enda er útiæfing allt önnur hreyfing.
3.jan... fyrsta útiæfing í langan tíma, 10,6 km, að og kringum Hvaleyrarvatn.
5.jan... Flug til Kairó....
12.jan... Luxor Marathon Egyptaland 42,27 km
15.jan... 7,5 km m/Völu kringum Holtið
16.jan... 4 km (hverfið) ein í frosti og kulda
17.jan... 5 km m/Völu, að Hrafnistu
18.jan... 6 km ein kringum Ástjörn
20.jan... 10,6 km kringum Hvaleyrarvatn
26.jan... Dubai Marathon Sameinuðu Furstadæmin 42,51
29.jan... 9,6 km að Hrafnistu m/Völu (snjór)
30.jan... 7 km, Setbergs- og Áslandsbrekkur
31.jan... 6,2 km m/Völu að Álftanesvegi, snjór
Íþróttir | 30.1.2018 | 13:55 (breytt 31.1.2018 kl. 22:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Standard Chartered Dubai Marathon
Dubai, United Arab Emirates
26.janúar 2018
http://www.dubaimarathon.org
Við sóttum númerið á miðvikudag... ég fékk nr 1466. Expoið var eitt það minnsta og einfaldastasem ég hef nokkurntíma farið í... og þetta er sæmilega stórt hlaup.
Maraþonið er á föstudegi... hvíldardegi múslima sem skapar smá vandamál. Lestir og strætó byrja ekki að ganga fyrr en kl 10.
Ég stillti símann á kl 4 am en gekk ekkert að sofna... kl 10:30 hringdi mamma, búin að gleyma að ég væri úti. Ég gat eitthvað dottað eftir það en var dauðþreytt þegar ég fór á fætur.
Ég tók leigubíl fyrir utan með það fyrir augum að vera um kl 6 á startinu. Bílstjórinn var ekki vel upplýstur um lokaðar götur en það tókst að koma mér á staðinn. Ég veit ekki nákvæmlega hvað margir tóku þátt mér fannst það nokkuð stórt.
Hlaupið var ræst kl 7. mér tókst að vera nokkuð framarlega... marksvæðið var rosalega flott, með upphækkuðum leikvangasætum og stórum sjónvarpsskjáum. Við hlupum eiginlega allt maraþonið eftir sömu götunni. Start og mark voru svo í hliðargötu við hana. Við beygðum fyrst til vinstri og hlupum í áttina að hótelinu... svo að eftir nokkra km sat Lúlli fyrir mér. Hann beið svo eftir að ég snéri við og hitti mig aftur. Þegar ég kom svo að hliðargötunni hélt ég áfram uppeftir um 7,5 km, snéri þar við og hljóp niður eftir... þessi leggur var síðan endurtekinn... áður en ég beygði í hliðargötuna í markið.
Ég var ekki búin að vera 4 og hálfan tíma í brautinni þegar allir voru reknir upp á gangstétt og götunar opnaðar. Hlauparar voru almennt mjög fúlir yfir þessu því motturnar voru aftengdar og flagan getur ekki millitíma. Hitinn var nokkuð mikill en þjónusta á drykkjarstöðvum var góð.
Mér gekk ágætlega í þessu maraþoni... betur en ég þorði að vona bæði vegna þess að maraþonið er á síðasta degi ferðarinnar og við búin að ganga mikið og svo hvað ég svaf lítið nóttina fyrir hlaupið.
Þetta maraþon sem er nr 224 gefur mér nýtt land, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin
og nýja heimsálfu, Asíu...
Garmin mældi vegalengdina 42,51 km
Og tímann 6:15:42
Íþróttir | 26.1.2018 | 13:54 (breytt 30.1.2018 kl. 20:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Egyptian International Marathon & 100K, 22.2K, 12.3K, 5K
Luxor, Egypt12.jan 2018
http://www.egyptianmarathon.com
Fyrsta maraþon ársins 2018 var ekki auðvelt. Ferðalagið var langt og svo var ferðin látin enda á hlaupinu en ég hef alltaf vilja byrja á hlaupinu og eiga síðan frí ef ferðin var meira en helgi.
Útlendingar þurfa að kaupa pakka sem innfelur hlaupið, rútu til og frá starti og marki, 3 nætur á Jolie Ville hótelinu og lokahófskvöldverð sem er líka á hótelinu. Pakkinn var svo sem ekkert rosalega dýr og þægilegt að vera á staðnum. Hótelið er frábært.
Gögnin voru afhent á fimmtudegi kl 4:30 í anddyri hótelins, við fengum okkur svo kvöldmat og fórum snemma að sofa.
Ég lét símann vekja mig kl 4:15. Klæddi mig en gat ekki teypað tærnar eins og venjulega því eftirlitið á flugvellinum tók af mér sport-teypið og litlu skærin mín sem ég er búin að fara ótal sinnum með gegnum öryggiseftirlit í Ameríku... en kannski héldu þeir að ég gæti rænt flugvélinni með þessu. Sem betur fer tóku þeir ekki mjóan plástur sem ég nota til að teypa tvær tær saman því annars leggst önnur þeirra á hliðina og það er svo sárt.
Morgunmaturinn átti að opna kl 5 en ég kom korteri áður og þá var allt til. Rútan átti að fara kl 5:30 á startið en fór korteri of seint. Það var um 45 mín keyrsla á startið sem var við Hatshepsut hofið (heitu-kjötsúpuna). Þar voru klósett í upphækkuðum gámum og auðvitað rukkað fyrir klósettpappírinn. Ekkert klósett var á leiðinni og ég er búin að vera slæm í maganum undanfarna daga.
Startið var kl 7... hlaupið 1,2 km niður að gatnamótum og tekinn um 10km hringur framhjá ökrum og gegnum "smáþorp" þessi hringur var hlaupinn 4 sinnum, en enginn frá hlaupinu sá um talninguna. Tveir menn fyrir framan mig hættu eftir 10 km... Kannski því leiðin var frekar leiðinleg, undirlagið gróft og óskaplega þreytandi börnin sem héngu í manni og suðuðu um pening. Auðvitað er ég ekki með pening í hlaupi og einn strákahópurinn henti tómri vatnsflösku í hausinn á mér og fannst það rosalega fyndið.
Fyrst var kalt, rosalegur reykur í loftinu af rusli sem fólkið er að brenna, síðan kom bakandi hitinn. Mér gekk vel fyrsta eina og hálfa hringinn en þá fór ég að finna fyrir blöðru á vinstra hæli og eymslum í hægra táberginu... undirlagið var gróft og tábergið er sigið. Seinni hringirnir voru skárri því ég þekkti þá... svo við Guð tókum einn í einu. Það voru ca 40 manns í heilu og mjög einmannalegt á leiðinni.
Við fengum vatn og bananabita á leiðinni en ég var með 3 gel með mér og tók þau frekar en bananabitana. Með þessu maraþoni get ég bætt við einu landi og einni heimsálfu en Egyptaland fylgir Afríku.
Við fengum verðlaunapeninginn afhentan í hófi um kvöldið.
Þetta maraþon er nr 223
Garmin mældi vegalengdina 42,27 og tímann 6:33:39
Ég get ekki mælt með þessu hlaupi.
Íþróttir | 12.1.2018 | 14:27 (breytt 15.1.2018 kl. 00:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
GLEÐILEGT HLAUP-ÁR 2018
Annállinn er að þessu sinni sendur út hér heima... Það er ekki hægt að segja annað en að árið 2017 hafi verið viðburðarríkt hlaupaár hjá mér. Ég fór 16 maraþon á árinu. Fyrsta maraþonið var á Nýjársdag í Texas og í næstu ferð hljóp ég 3 maraþon á tveimur af eyjum Hawaii, eitt á Maui og tvö á Kauai. Janúar var því fullbókaður... með 4 maraþon... þar af voru 3 maraþon á 6 dögum.
Ég tók þátt í þrem seríum hjá Mainly Marathons, Aloha- Praire- og Northwest seríunum, tvö maraþon í hvert skipti. Eins og allir vita er maraþon rúmir 42 km og því er skemmtilegt að segja frá því að í janúar þegar ég var á Hawaii borgaði ég mig inn í hlaup í Praire seríunni 17.júlí... en þá var 42 ára brúðkaupsafmæli okkar Lúlla... og ég bað um að fá og fékk síðan keppnisnúmer 42.
HOW COOL IS THAT... en hver einasti nörd veit að 42 eru svarið við ÖLLU.
https://www.youtube.com/watch?v=aboZctrHfK8
Ég var hætt að hlaupa maraþon tvo daga í röð en það gerðist nú samt 17. og 18.júlí...
Þá tók ég 3 maraþon í Rock´N´Roll seríunni á þessu ári, Nashville, Savannah og Lissabon. Já, Evrópa er að sigla sterkt inn í hlaupin hjá mér. Þetta árið fórum við Lúlli tvisvar til Evrópu, til Rómar og Lissabon. Það var ótrúlega skemmtilegt að heimsækja þessar gömlu borgir sem eiga mikla og langa sögu.
Að sjálfsögðu hljóp ég heilt maraþon í Reykjavík... 21.árið í röð og það verður hefð að hlaupa það ef ég er á landinu.
Síðasta maraþon ársins var í Florida, Space Coast Marathon og rosalega gaman að Lovísa kom með, hljóp hálft maraþon í fyrsta sinn og gekk rosalega vel. Edda og Berghildur voru á hliðarlínunni þetta árið.
16 maraþon á árinu... það voru fáir mánuðir sem ég sleppti úr en ég hljóp ekki maraþon í febrúar, júní og desember.
Maraþonin eru orðin 222 talsins.
GLEÐILEGT NÝTT HLAUP ÁR
Íþróttir | 28.12.2017 | 22:16 (breytt 31.12.2017 kl. 21:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stelpuferðin til Florida heppnaðist frábærlega vel. Hlaupið þar var síðasta maraþonið í 5 ára seríu þar sem hvert ár var tileinkað einni eldflaug. Tveir aukapeningar voru í boði, annar þeirra fyrir að hlaupa 3 af þessum 5 og hinn fyrir að hlaupa öll. Nú á ég alla seríuna.
Á næsta ári byrjar ný sería með nýjum peningum. Ég hef ekki ákveðið hvort ég ætla í næstu seríu.
í desember var færðin leiðinleg og ég vildi því ekki taka neina áhættu... ég á tvær ferðir í janúar og vil ekki detta í hálku. Ég fékk því að hlaupa á bretti hjá Völu í Sjúkraþjálfaranum. Það var ótrúlega leiðinlegt fyrst en það venst.
1.des... 1200 m skriðsund
4.des... 6 km skokk kringum Ástjörn + 16,7 km hjól m/Völu
7.des... 7,5 km skokk á bretti
8.des... 1200 m skrið
11.des... 6 km á bretti
13.des... fór á brettið, tognaði ??? gekk 4 km
15.des... 1200 m skrið
18.des... 6 km á bretti MJÖG hægt, var aum í h/kálfa
20.des... 6,3 km á bretti... aðeins hraðar
22.des... 1200 m skrið
27.des... 7 km á bretti... bætti við hraðann
29.des... 1200 m skrið
30.des... 7,7 km á bretti, jók hraðann og fóturinn góður :)
Íþróttir | 28.12.2017 | 21:24 (breytt 31.12.2017 kl. 11:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)