Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
Ég var ekki viss hvort ég færi í hlaupið, hélt ég væri að verða veik í gær, stoppaðist upp af kvefi, slæm í maganum og með einhverja vanlíðan. Svaf nær ekkert í nótt... Tók verkjalyf kl 7 í morgun og druslaðist niður að Hafnarfjarðarkirkju fyrir réttan tíma.
Leiðin var hin versta fyrir mig, ég stressast svo á hrukku-vegum, hrædd um að reka tærnar í því ég lyfti fótunum svo lágt. Var auðvitað síðust í hlaupinu... og alls ekki óánægð með tímann - miðað við allar aðstæður.
Kaldárhlaupið var 10 km, tíminn 1:04:45 ég lifi það af
Íþróttir | 12.12.2010 | 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ein á ferð í rigningu og nokkrum vindi... var þungt hugsi, reyndi að hugsa viturlega um námsefnið en hélt huganum ekki við það... maður er svo ófullkominn
Fór Hrafnistuhringinn minn, bara glöð yfir bleytunni og hálkuleysinu...
12,5 km í dag
Íþróttir | 10.12.2010 | 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sennilega var orðið frostlaust þegar ég fór út, gífurleg hálka inn á milli... broddar - það er málið. ÉG var ein - stakk mér út þegar ég var farin að fá þá tilfinningu í próflestrinum að ég kynni ekkert, vissi ekkert og myndi ekkert... það fór svo að ég mundi ÝMISLEGT á leiðinni... hljóp í þungum þönkum alla leiðina...
Hrafnistuhringur minn OFUR-kæri þessa dagana 12,5 km.
Íþróttir | 8.12.2010 | 21:20 (breytt kl. 21:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvílíkur kuldi, held það hafi verið 8 stiga frost...
Hitti Völu við Sjúkraþjálfann, við vorum báðar í kafarabúningunum og með amerísku broddana... Þegar við vorum á leiðinni til baka, blés aðeins á móti... ég hljóp með vatnsbrúsa eins og venjulega en drakk ekkert á leiðinni... hann var frostinn þegar ég kom heim.
Hrafnista 12,5 km
Íþróttir | 6.12.2010 | 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég sá bara út um gluggann að veðrið var stillt... klæddi mig í hlaupagallann og tók broddana til vonar og vara... Ég var ekki komin bílaplanið á enda þegar lærin voru frosin...
Hvílíkur kuldi og ég í sumar-buxunum eins og í fyrradag... sem betur fer blés ekki, þá hefði ég orðið að taka strætó heim. Hrafnistuhringurinn er styttsti og eini hringurinn þessa próf-dagana, ég fór ekki meter lengra... lærin þiðnuðu einhvern tíma eftir hádegið
12,5 km í dag
Íþróttir | 3.12.2010 | 17:23 (breytt kl. 17:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Vala hittumst og hlupum Hrafnistuhringinn... hvílíkur munur þegar það er engin hálka... Síðasta mánudag voru snjólausar göturnar eitt svell...
Núna flutum við yfir allt á fljúgandi ferð... eða þannig
Hrafnistuhringur 12,5 km í tómri gleði
Íþróttir | 1.12.2010 | 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)