Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010

L A N G T í erfiðu færi

Hljóp snemma út með það í huga að láta ,,Hrafnistuhringinn" (12,5) nægja... Snjór er slæmt færi fyrir mig, sem þarf að fljóta áfram og má hvorki spyrna eða renna til.

Eftir að hafa komist yfir þröskuldinn var nú samt breytt um stefnu... Af því að ég var svo snemma í því þá ákvað ég að koma við hjá Þóru Hrönn og athuga hvort hún væri búin að hlaupa og þá myndi ég lengja í ,,Garðabæ hinn minni" (16).

Hún stóð í ströngu við að setja í töskur og var hætt við að hlaupa... Ég glopraði út úr mér þetta með Garðabæinn... þá var ekki aftursnúið Garðabærinn skyldi það vera.
Áður en ég var komin að gömlu Sorpu var ég búin að lengja í ,,Garðabæ hinn meiri"(20) - hvað... það munaði svo litlu Woundering...

Færið át mig upp þó leiðin var farin í hægari gír en vanalega. Fékk ískaldan mótvind frá Arnarnesinu og alla leið heim. Ég kom dauðþreytt og glorhungruð heim, greinilegt að 2 hrökkbrauð nægja ekki í morgunmat Crying

Garðabær hinn meiri 20,2 km


Brekkur

Það var K A L T í morgun enda snjór yfir öllu... maður minn hvað færðin þreytti mig... ég var komin til Þóru Hrannar kl 10 í morgun og við fórum Áslandsbrekkuhringinn. Það blés aðeins á efstu punktum annars var logn og bara snilld... við þögðum alla leið á toppinn... er það kraftaverk eða hvað?... nei... við vorum að spara orkuna.

Hringurinn varð 13 km hjá mér. 


Með Völu

Þetta var frábær dagur að öllu leyti... sem endaði með því að ég hljóp með Völu Hrafnistuhringinn kæra. Við höfum haft þriðjudagana fyrir okkur, en nú verður breyting á. Næstu 2 mánudaga eða á meðan Þóra Hrönn verður erlendis þá hlaupum við á mánudögum en færum okkur síðan yfir á miðvikudaga.

Í dag var rigningarsuddi og dimmt en við tókum varla eftir því... Vala hélt uppi hraðanum og ég hélt honum niðri... svo við vorum í góðu meðaltali Wink

Úrið mitt mældi Hrafnistuna rétt í fyrsta sinn í langan tíma 12,5 km. 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband