Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
Veðrið var hundleiðinlegt, rok og rigning. Við Soffía hlupum Norðurbæjarhringinn saman. Af því að ég er að fara í hlaup um næstu helgi, þá keyrði ég til hennar í stað þess að hlaupa að heiman.
Hringurinn mældist 5,2 km eins og venjulega.
Íþróttir | 29.9.2009 | 17:28 (breytt kl. 17:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Veðrið var bara hjartastyrkjandi... rok en maður slapp að mestu við rigningu. Ég valdi að hlaupa 10 km. Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í þessu hlaupi og er það bara ágætt.
Íþróttir | 27.9.2009 | 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hrafnistuhringurinn var þraukaður þó ég finni enn aðeins fyrir steininum í maganum... 12,5 km
Íþróttir | 25.9.2009 | 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég gat ekki hlaupið með Völu á þriðjudag... var hreinlega með stein í maganum. Nú er ég orðin nokkuð góð og hitti Soffíu kl 11 til að fara Áslandsbrekkurnar. Veðrið var ömurlegt í morgun en það var ágætt á meðan við hlupum. Ég er að spá í að fara Hrafnistuhringinn eftir skólann á morgun.
Hringurinn mældist 13,2 km
Íþróttir | 24.9.2009 | 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það heldur manni við efnið að hlaupa ákveðinn hring, ákveðinn dag með ákveðnum hlaupafélaga. Ég hljóp með Soffíu hring um Norðurbæinn fyrir hádegið, hún var á seinni vakt í dag og ég á að mæta kl 3 í skólann á mánudögum.
Veðrið var gott á meðan við hlupum, en svo breyttist það, var ekki eins vinsamlegt þegar ég hljóp ein heim... þá kom rok og rigning.
Þetta voru 12,3 km í dag.
Á morgun hitti ég Völu kl 5... Hrafnistan... klikkar aldrei
Íþróttir | 21.9.2009 | 19:41 (breytt kl. 19:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það féll niður tími í HÍ svo ég gat hitt Soffíu kl 11 við Lækjarskóla. Veðrið var ágætt. Við fórum brekkuhringinn okkar... samtals 12,9 km hjá mér.
Það er frábært að vera búin með ,,skammtinn" fyrir helgina... og geta nú legið í bókunum á náttfötunum
Íþróttir | 18.9.2009 | 16:15 (breytt kl. 16:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég dreif mig út í hádeginu, var búin að berjast við ritgerð í Jesaja í morgun... það var tilvalið að hlaupa aðeins þó það væri leiðinda-rigningar-suddi og mótvindur.
Hrafnistuhringurinn 12,5 km steinlá... og ég bara ánægð með mig
Íþróttir | 17.9.2009 | 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íþróttir | 15.9.2009 | 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það féll niður kennsla svo við komumst fyrr út að hlaupa. Soffía var að vinna til 3... ég hljóp að heiman heim til hennar og svo hlupum við Norðurbæjarhringinn saman... fengum smá rok og rigningu ... en við erum bæði vatns-og vindheldar.
Ég hljóp 12,3 km í dag og við ætlum að hlaupa Áslandshringinn á fimmtudag... fastur liður
Íþróttir | 14.9.2009 | 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Soffía hittumst við Lækjarskóla, hún var með harðsperrur síðan í gær en lét það ekki aftra sér að fara Áslandshringinn með mér, en hann er sannkallaður brekkuhringur.
Við tókum smá útúrdúr í bakaleiðinni upp að gamla Dverg til að kíkja á gluggana og skoða listaverkin þar inni... og héldum síðan áfram göngustíginn meðfram sjónum. Soffía fékk símtal á leiðinni, bíllinn hennar var tilbúinn svo við lengdum hringinn, hlupum upp á Dalshraun, hún sótti bílinn en ég hljóp heim.
Ég fékk 16,5 km út úr þessu og við ætlum að hlaupa aftur saman á mánudag... taka Norðurbæinn :)
Íþróttir | 10.9.2009 | 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)