KeyBank Vermont City Marathon & Relay Burlington, VT USA May 25, 2008 http://www.runvermont.org
Ég vaknaði klukkan 2:30 í nótt með dúndrandi höfuðverk og ógleði.... en var samt glöð. Hafði smá áhyggjur af því að hafa enga lyst fyrir hlaupið, sem byrjaði kl. 8:05.
Ekki var ég komin í langar vegalengdir fyrir hlaupið, svo ég reyndi að hlaupa ekki of mikið og ganga eins hratt og ég gat á milli. Þetta er sannkallað brekkufylki.
Það voru sko MARGAR brekkur á leiðinni, en allt gekk vel.
Ég var 6:08:25.... á mína klukku og verð að vera hæst ánægð með það.
Það var 25 stiga steikjandi sól. Svolítið of mikið.
Þjónustan á leiðinni og skipulagning var frábær og bæjarbúar hvöttu hlauparana stanslaust.
Burlington er mjög fallegur bær og sá snyrtilegast sem við höfum séð, hvergi rusl eða drasl.
Við fljúgum héðan kl. 6 í fyrramálið.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 25.5.2008 | 20:52 (breytt 29.11.2008 kl. 18:26) | Facebook
Athugasemdir
Hæ Bryndís og til hamingju með þetta. Ég, Magga og Þórdís fórum 13 km á laugardaginn. Gott veður og alles. Við Magga tókum 8 km í gær. Fórum í norðurbæinn til að fá skjól. Þar er komin ágætur hringur alltaf í skjóli. Þá er þetta komið á blað. Gangi þér allt í haginn í Ameríkunni og sendu fréttir.
Kveðja, Þóra Hrönn
þóra hrönn njálsdóttir (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 08:59
Takk fyrir
Það er allt gott að frétta af mér, ég mun skrifa reglulega a bæði bloggin. Bestu kveðjur til ykkar allra og Þóra Hrönn... góða ferð til Kina.
kvedja Bryndis
Bryndís Svavarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:07
Hæ Bryndís til hamingju með þetta , mjög gott og gangi þér vel í Ameríkunni og bið að heilsa Lúlla,
ég er alltaf að hjóla í vinnunna. Góða ferð Þóra Hrönn til Kína,
kveðja Soffía.
soffia (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 10:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.