Við komum til St Georg Utah, í gær og fyrsta verk var að sækja númerið.. og síðan að finna bílastæði við markið, en þaðan er farið með skólabílum eitthvað út í buskann upp í fjöll.. ég tók til hlaupadótið og reyndi að fara snemma að sofa.
Síminn vakti mig kl 1:30 í nótt, ég fór rúmlega 3 út, átti að mæta í skólabílinn á startið kl 4:15.. ég fékk gott stæði nálægt markinu.. og eyddi tímanum á milli í húsnæði elítunnar Ég var komin á startið 4:45.. og ekkert annað að gera en að bíða í myrkrinu, í hávaðaroki og kulda til kl 7..

Ég heyrði í hátalarakerfinu að þetta er 16. stærsta maraþon í USA, með 5 þús keppendur alls í heilu og hálfu.. Ég heyrði að keppendur væru frá 49 fylkjum og 11 löndum.. og íslenski fáninn var meðal hinna.. Charlotte Chorriger var þarna og þulurinn sagði að hún hlypi í búningi sem væri bók.. ég hef hitt Charlotte í mörgum maraþonum og er vinur hennar á FB.. en ég sá hana ekki í myrkrinu..
Um leið og það var ræst, birti til... og fór að hitna og endaði í 33°c
Um leið og það var ræst, birti til... og fór að hitna og endaði í 33°c
Það ekki hægt að segja annað en að ég kunni að velja þessi hlaup í Utah.. Salt Lake City Marathon og Utah Valley Marathon voru líka svona hrikaleg brekkuhlaup... Í hlaupinu hitti ég alveg óvænt Donnu, sem hljóp Reykjavík fyrir nokkrum árum og kom þá í mat til okkar...
Maraþon nr 262
Ég notaði símann til að mæla vegalengdina.. 42,89 km
Tíminn samkvæmt úrslitum hlaupsins er 6:52:27
Utah er 37.fylkið í 3ja hring um USA
Ég notaði símann til að mæla vegalengdina.. 42,89 km
Tíminn samkvæmt úrslitum hlaupsins er 6:52:27
Utah er 37.fylkið í 3ja hring um USA
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 4.10.2022 | 00:35 (breytt kl. 00:52) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.