Alltaf gott að koma heim. þar sem ég hafði ekki hlaupið frá 1.maí ætlaði ég að fara skynsamlega af stað aftur, byrja að hjóla og ganga... þetta endaði samt á allt annan hátt... ég ökklabrotnaði á hægra fæti þegar ég datt af hjólinu á 17.júní. Nú er bara að bíta á jaxlinn.
Brotið sást ekki strax. 18.júní var hringt frá Slysó og ég boðuð í aðra myndatöku, brotið var staðfest, ég fékk stuðnings-gifs, var síðan kölluð í aðgerð á sunnudegi 20.júní.
3.jún... 7 km ganga m/Völu
5.jún... 3 km hlaup og 2,3 km ganga, ein
7.jún... 10 km ganga að Hvaleyrarvatni, ein
8.jún... 14 km hjól og 2,1 km hlaup um Hvaleyrarvatn m/Völu
9.jún... Augasteinaskipti á h.auga, má ekki hlaupa.
11.jún... 5 km ganga að hundasvæði m/Hörpu
12.jún... 4,2 km ganga á Stórhöfðastíg m/Helgu
13.jún... 6,5km ganga í Garðakirkju og 1 km í Krók
14.jún... 15 km hjól og 2,1km hlaup um Hvaleyrarvatn m/Völu
15.jún... 18,1 km hjól m/Völu +1km ganga
16.jún... 22,6 km hjól og ganga á Krýsuvikurvegi
17.jún... 20,2 km hjól... datt og ökklabrotnaði - slysó
18.jún... önnur myndataka, gifs
20.jún... aðgerð og gifs... má ekki stíga í fótinn í 2 vikur
Ég er búin að vera með grindarlos í 24 ár og þoli ekki að fá allan þungann á aðra mjöðmina á hækjum, svo ég fékk lánaðan skrifstofustól á hjólum og ég nota hann undir hnéð. Þannig get ég ferðast um heimilið jafnvel með kaffibolla í hendinni.
Ég hef aldrei og mun aldrei deyja úr ráðaleysi.
Flokkur: Íþróttir | 28.6.2021 | 14:44 (breytt 31.12.2021 kl. 12:14) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.