Færsluflokkur: Íþróttir

Startið á morgun

Disney World Maraþonið verður ræst kl. 5:50 á staðartíma... sem umreiknast til 10:50 á íslenskum tíma. Nú reynir maður að muna eftir að slaka á.

Gögnin sótt í Disney, Florida

ExpoDisneyJan2009Veðrið var dásamlegt í dag, heitt og notalegt í sólinni. Við renndum í Disney garðinn til að sækja gögnin fyrir maraþonið á sunnudag. Þar var auðvitað múgur og margmenni. Barnahlaupið var í gangi rétt hjá þar sem gögnin voru afhent.

Þetta er í þriðja sinn sem ég fer í þetta Expo... þó ég hafi bara hlaupið Disney einu sinni áður... en það hafði heldur betur breyst frá því síðast. 
Pinnmerki hlaupsins helmingi dýrara, engir afslættir á hlaupafatnaði og hvorki boðið upp á vatnssopa né neitt til að smakka. 

ExpoDisneyJan2009 Síðast þegar ég hljóp Disney (2005) var hálfa maraþonið ræst um leið og það heila, en við hlupum þá í sínhvora áttina minnir mig, núna er hálfa maraþonið á morgun, laugardag og þeir sem hlaupa bæði heilt og hálft fá sérstakan verðlaunapening auka... ég vildi að ég hefði vitað af því fyrr, því ég reyndi, en það var of seint að skrá sig í þetta hálfa í dag.


Mississippi Blues Marathon, 3.1.2009

Mississippi Blues Marathon, Jackson, MS USA Jan. 3, 2009
http://www.msbluesmarathon.com/

Mississippi Blues maraþon. 3.1.2009Ég svaf óhemju illa Frown og hef ekki hugmynd af hverju. Klukkan var stillt á 4:45 og við vorum komin út úr dyrunum um kl.6. Það var ekki langt á startið en maður getur þurft að ganga eitthvað frá bílastæðunum.
Þetta er ekki fjölmennt hlaup. Hvílíkur loftraki, mér var þungt um andardrátt á meðan ég beið eftir ræsingu. Göturnar voru blautar og hálar... og skelfilega illa farnar í gamla bænum.

Hlaupið var ræst kl 7 og ég hélt ég væri komin í rússíbana, hvílíkar brekkur, ég heyrði fólk kvarta yfir þeim.  Sem betur fer vissi ég ekki af þeim fyrir, þeir eru ekki með hæðarkort á síðunni.
Mississippi Blues maraþon. 3.1.2009 Ég heyrði
marga tala um að þeir hefðu keyrt sig út í brekkunum...
Eftir brekkurnar þ.e. eftir að hálfa maraþonið hafði verið skilið frá, fórum við fram og til baka eftir ,,keflavíkurvegi" og síðan aftur í brekkuvesenið. Við vorum allan tímann í umferðinni, aðeins ein akgrein var lokuð af fyrir hlaupið.  Þjónustan á leiðinni var frábær en fáir aðrir á ferli.

Ég lauk hlaupinu á tímanum 5:30:34 og má bara þakka fyrir að hafa nennt að klára það og verð nú að segja eins og er að þetta var ekki skemmtilegt hlaup. Þetta maraþon var nr 99 hjá mér og fylkin sem ég hef klárað orðin 32  Cool 

Ath. myndir birtar með góðfúslegu leyfi Bíðara nr. 1 


Gögnin sótt í Jackson, Mississippi

Jackson Mississippi 2.jan.2009
Við renndum niður eftir um hádegið.

Við erum bara nokkrar mílur í burtu. 
Expoið var frekar lítið enda er þetta ungt hlaup, annað sinn sem það er haldið. 

Ég fékk rásnúmerið 104.
Það voru tónleikar á staðnum, blues hljómsveit enda er þetta blues-maraþon.

Jackson Mississippi 2.jan.2009Þarna hitti ég loksins á bás frá
50 State Marathon Club

ég hef lengi ætlað að gerast félagi í honum. 

Síðan settum við rásmarkið inn í garminn og keyrðum þangað til að kanna bílastæði og fleira. Þá er bara að taka sig til, slappa af og borða eitthvað af viti Joyful


Í startholunum

Við komum til Jackson Mississippi um kvöldmatarleytið, eftir að hafa verið á keyrslu í mest allan dag. Nú slöppum við af en gögnin verða afhent á morgun og maraþonið er á laugardag.

Hlaupárs-annáll 2008

verðlaunapeningar2008Þetta ár hefur verið sannkallað hlaupár... ekki aðeins í þeirri merkingu að dagar þess voru 366, heldur í þeirri merkingu að ég hef aldrei hlaupið eins mörg maraþon á einu ári... eða 17 talsins.

Síðasta haust fékk ég hásinameiðsli og varð að hætta við Marine Corps Maraþonið í Washington DC í okt... þess vegna hélt að ég myndi nú ekki hlaupa mikið þetta árið... Crying
En við vorum búin að kaupa ferð til Californíu um áramótin og ég var búin að kaupa mig inn í Rock´N´Roll maraþonið í Arizona... og ég var nokkuð góð í fætinum W00t 

Músíkmaraþonin eru sérstaklega skemmtileg, svo ég ákvað að láta mig hafa það og kraftganga... með þeirri hugsun að hætta þá bara á leiðinni ef hásinin myndi bresta.  Þar með var ekki aftur snúið... þetta varð eina ferðin á árinu sem ég hef aðeins tekið 1 maraþon.

hlaupandikonaNæsta ferð var farin í febrúar og þá voru tekin 2 maraþon á 1 viku. Þegar skólinn var búinn í maí, var þriðja ferðin farin og þá voru tekin 4 maraþon á 3 vikum. Reykjavíkurmaraþon var síðan samviskusamlega farið hér heima í ágúst.

Fjórða maraþonferðin var farin til Usa í september og þetta sinn í miðríkin og á 5 vikum hljóp ég 7 maraþon.
Fimmta og síðasta ferðin var farin rétt fyrir jól og tekin 2 maraþon...

komin í markSamtals eru þetta 17 maraþon á einu ári... og Blush... hummm... eitt hálfmaraþon á Suðurnesjum.
Samtals... 738,5 km
Á þessu ári bætti ég 11 nýjum fylkjum í safnið og hef því afgreitt 31 af 50 fylkjum USA... og maraþonin orðin 98 talsins.

Næsta maraþon er 3. jan í Jackson, Mississippi http://www.msbluesmarathon.com/
og 100. maraþonið verður 11.jan 2009 í Disney í Florida http://www.DisneyWorldMarathon.com 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Síðasta hlaup ársins

Við vorum búnar að tala okkur saman um að ég myndi vera fyrir utan hjá Þóru Hrönn kl 5...
Ég var amk hálftíma of snemma í því... misreiknaði mig, þurfti að hlaupa við á pósthúsinu og sækja lítinn pakka, en í honum var ,,silfur nóta" sérstök verðlaun fyrir að hlaupa 2 músíkmaraþon á árinu. 
Ég á tvær svona nótur fyrir.

Við fórum ,,nettan Norðurbæ" eins og Þóra Hrönn orðaði það. Það var svo æðislegt að hlaupa með vinkonu Kissing Hringurinn hjá mér mældist 12,3 km... og er síðasta hlaup ársins hjá mér. 

Á morgun fljúgum við hjónin til Flórída og ég hleyp í Mississippi, Georgíu og Flórída. Þóra Hrönn fer til Alaska í ævintýralega sleðaferð tveim dögum áður en ég kem heim, þannig að við hlaupum ekki aftur saman fyrr en í lok febrúar.


Hlaupið í spik !

Það fer ekki á milli mála, maður er þyngri á sér, eftir allt átið... Auðvitað er ég ekkert öðruvísi en hinir, át á mig gat. En þetta er svo gott Tounge

Ég er að skríða saman eftir ofnæmið sem byrjaði á aðfangadagskvöld. Rakti söguna á hinni síðunni minni, en ég hef verið svolítið þung vegna ofnæmislyfjanna. Var t.d. ekki vöknuð þegar Þóra Hrönn sendi mér sms í morgun og gat því ekki hlaupið með henni.

Ég hljóp ekki út úr dyrunum fyrr en um 4 leytið. Hljóp þá sama hring og síðast þ.e. Garðabæ - hinn styttri, sem mælist 16 km þegar ég hleyp að heiman.  Mér finnst ég vera blessuð í bak og fyrir að hafa ekki fundið neitt til í ökklum eða hendinni og var heldur ekki ,,þung" af lyfjunum.


Gleðileg Jól

wQg9BR3QVd87sobBP

    
     Óska ættingjum og vinum
              
nær og fjær, 
        gleðilegrar jólaháðar
                      og 
      farsældar á komandi ári.

         Guð blessi ykkur öll.


Aðfangadagshlaup

Ég skellti mér út í rokinu í morgun... dásamlegt. Ekki sá ég aðra sálu á hlaupum, en leiðin sem ég hljóp var Garðabæjarhringur ,,hinn styttri"

Við göngustíginn yfir hraunið til Garðabæjar var þak af strætisvagni, stórhættulegt stykki af stærri gerðinni ef það fengi vængi í rokinu. Hringdi í 112... og ég veit ekki hvort ég nenni að hringja í þetta númer aftur... maður fær samband við þennan og hinn en ekki þann sem maður biður um og veit að þekkir umhverfið sem maður er að tala um.

Veðrið versnaði og var á móti mér frá bryggjuhverfinu í Garðabæ og alla leið heim. Ég náði að fara 16 km í dag sem er bara ágætt, göturnar voru auðar og hálkulausar og gott að hlaupa í björtu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband