Færsluflokkur: Íþróttir
Soffía hringdi úr vinnunni í morgun, eins og himnasending... vildi hlaupa með mér eftir vinnu. Kærkomið að fá hlaupafélaga
Ég var aðeins of sein heim til hennar, enda ógeðslegt slabb og hríð... en Soffía bjargaði því að ég fór út. Við hlupum saman 5 km hring kringum Norðurbæinn og svo bætast við 3,5 km heim aftur, eða 7 km. fram og til baka. Ég náði 12 km með þessu... kom heim hrakin og hundblaut frá toppi til táar.
Íþróttir | 16.3.2009 | 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef sagt það í mörg ár að það eru elli-merki að líta til veðurs... ég er orðin gömul en það var ekkert sem hélt mér.. ég lét mig hafa það að fara út... Tók Hrafnistuhringinn 12,5 km. HVAÐ ANNAÐ
Veðrið... var sæmilegt þegar ég fór út, snjór yfir öllu, kalt en vindurinn í bakið niður í bæ... ekki sá ég aðra skokkara á ferli. Á leiðinni til baka var vindurinn í fangið... eins og vanalega og sem Bónuspakka í mótbyrnum... brast fyrst á haglél en síðan snjóaði. Ég er ánægð að hafa drifið mig út, þar sem ég hljóp ekki í gær. Hlaupið var að meðaltali gott
Íþróttir | 15.3.2009 | 12:16 (breytt kl. 12:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Samkvæmt síðustu áætlun var planið að hlaupa í morgun... en ég var með ömmustrák hjá mér... rosa afsökun ! og svo var áætluð kettlingaferð í Vogana upp úr hádegi... Þess vegna ætlaði ég bara að hlaupa þegar ég kæmi til baka... en eins og svo oft þegar maður ætlar að fresta ,,aðeins"... þá verður ekki neitt úr neinu...
Þess vegna er planið núna að hlaupa í fyrramálið...
Íþróttir | 14.3.2009 | 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvílík dýrð og dásemd, sól og blíða. Ég fór snemma út í dag eða kl hálf tólf... og maður minn, hvað maður verður frjáls þegar göturnar eru auðar. Ég varð samt að passa mig þar sem sólin hafði ekki náða að bræða klakann, þar var launhált.
Ég kom aðeins við hjá Völu... og hélt svo áfram Hrafnistuhringinn minn... 12,5 km
Íþróttir | 12.3.2009 | 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við Vala vorum búnar að ákveða að hlaupa saman í dag... og sólin og blíðan í dag lét mann bara hlakka til. En veðrið hafði breyst þegar við fórum af stað... skítkalt en við tókum varla eftir því - hlupum vélrænt allan hringinn, tókum smá útúrdúr og komum við hjá syni hennar á leiðinni til baka.
Hrafnistuhringurinn mældist 12,6 km í dag... er samt alltaf að verða styttri og styttri... amk þegar ég hleyp með vinkonu
Íþróttir | 10.3.2009 | 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég skellti mér út í hádeginu, veðrið var svo frábært að það ekki eftir neinu að bíða... Ég hljóp ein um helgina og pældi ekkert í hvort Þóra Hrönn gæti hlaupið með mér í dag... var bara komin í fötin og af stað hugsunarlaust. Það var skítkalt í fyrstu... en lagaðist eða vandist.
As usual... var það Hrafnistuhringurinn HVAÐ ANNAÐ á mánudegi... 12,5 km
Íþróttir | 9.3.2009 | 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég vaknaði frekar seint og svo fórum við í kirkju í Reykjavík um hádegið... og svo var borðað á eftir svo ég komst ekki út að hlaupa fyrr en kl 3... en þá hafði líka hlýnað aðeins, amk orðið frostlaust held ég.
Veðrið var dásamlegt, sólin skein, logn og frábært að hlaupa. Á uþb helmingi leiðarinnar voru gangstéttir orðnar auðar. Ég hafði ekki tíma fyrir meira en venjulega rúntinn minn.. þ.e. Hrafnistuhringinn, 12,5 km í dag, af því ég fór svo seint út.
Íþróttir | 7.3.2009 | 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég hljóp út úr dyrunum um hálf tvöleytið. Veðrið var dásamlegt ...
að vísu var -4°c en sólin skein og það var rétt andvari. Gangstéttirnar voru nokkuð vel skafnar og sumsstaðar var sólin að bræða ísskélina. Ég reyndi stundum að hlaupa á götunum. Lausi snjórinn er skelfilegur fyrir mig.
Ég var ein í dag og hljóp Hrafnistuhringinn minn 12,5 km.
Íþróttir | 5.3.2009 | 15:06 (breytt kl. 16:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Við hlupum ,,Norðurbæinn" í erfiðri færð (11,8 km fyrir mig)... misvel skafnar götur... en sólin skein og við fengum vindinn í bakið á leiðinni til baka... þetta var ekkert nema snilld.
Íþróttir | 4.3.2009 | 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var ekki hundi út sigandi, kyngdi niður snjó og skafrenningur... en við Vala fórum Hrafnistuhringinn 12,5 km. Ég var mætt fyrir utan vinnuna hjá henni MJÖG tímanlega. Ég verð að fara að reikna þetta betur út.
Færðin var ömurleg... en við vorum svakalega skemmtilegar saman. Hluta af leiðinni... sá sem er yfirleitt alltaf á móti okkur... þá var besta veðrið SMÁSTUND... en síðasta km var veðrið eins og í óveðursbíómyndum... það var skafið yfir stíginn, vindurinn á móti, ég sá ekki út úr augum og svo kólnaði hressilega en ég var alveg að komast heim og ekkert annað í stöðunni en að láta sig hafa það
Íþróttir | 3.3.2009 | 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)