Færsluflokkur: Íþróttir

Háskólahlaupið

Það var síðasti kennsludagur í gær, föstudag og lokapróf í trúarstefjum í kvikmyndum. það passaði því að fara þaðan beint í Háskólahlaupið. Soffía mætti líka og við ákváðum að ,,sópa" lengri leiðina... vera síðastar. Veðrið var ágætt, amk þurrt en aðeins kalt og smá vindur.

Lengri leiðin var 7,2 km


Með Þóru Hrönn

Það er orðið ansi langt síðan við Þóra Hrönn höfum hlaupið saman... en í morgun fórum við Áslandsbrekkurnar með smá lengingu kringum Ástjörnina. Það var mótvindur og rigning upp brekkurnar en hetjur fara alla leið - er það ekki.

hringurinn mældist 13,8 hjá mér Wink


Góðar saman

Við Vala hittumst við Sjúkraþjálfann eins og vanalega... fórum Hrafnistuhringinn vélrænt... eins og vanalega... og við töluðum svo mikið að mótvindurinn og rigningarúðinn skipti engu máli Joyful

Þetta er ekkert nema snilld.... 12,5 km í dag


L A N G T... í brjáluðu roki

Ég plataði mig út úr dyrunum með þá hugsun að ég YRÐI EKKI að langt í dag... þá var hífandi rok og rigning... Vindurinn var á eftir mér að heiman svo það var auðveldara að ákveða að fara bara þessa blessuðu 20 km eins og síðustu laugardaga.
Það skiptist mjög jafnt, vindurinn var á eftir með fyrri helminginn en frá Arnarnesinu var hann á móti og slapp að mestu við rigningu. Ég lengdi smávegis inn í Kópavog í stað þess að lengja í götunni heima.

Dýrindis veður

Soffía hringdi og ég skokkaði til hennar. Veðrið var dásamlegt, ég hélt það væri kaldara og þurfti fljótlega að fækka fötum. Við fórum Norðurbæjarhringinn okkar. Kom aðeins við hjá Völu í bakaleiðinni.

12,3 km í dag


Með Völu og kuldabola

Rosalega var kalt í dag og Kári vinur Kuldabola blés af öllum kröftum. Við Vala fórum Hrafnistuhringinn og það Kári var á móti okkur 80 % af leiðinni - ótrúlegt. Annars var sól og fallegt veður - vegna þess að það er allt betra en rigning og snjór.

12,5 km í dag


Kalt en gott

Ég var ein enn einu sinni... Fór Hrafnistuhringinn, veðrið var gott, það var kalt og mótvindur á ,,álagablettum." Mætti mörgum á hlaupum - enda æðislegt hlaupaveður.

Betra veður í Hafnarfirði en í Garðbæ og Kópavogi

Það verður að segjast eins og er... það kom í ljós í dag hvað bæjarfélög voru óvinveittari en önnur... Það var betra veðrið í Firðinum en í Garðabæ og Kópavogi...

Ég fór Garðabæ hinn meiri... og tók smá viðbót á heimaslóðum til að fara slétta 20 km


Stóri brekkuhringurinn

Veðrið var ágætt, að vísu var vindkæling... en sólin skein. Ég fór stóra brekkuhringinn, kringum Holtið og Áslandsbrekkurnar. Þetta var frábært Cool

10,7 km Whistling


Ágætis gluggaveður

Gott að hlaupa snemma, Vala er annað að gera svo ég fór Hrafnistuhringinn fyrir hádegi. Æðislegt að hlaupa - bara vera mátulega klæddur. Hringurinn stendur alltaf fyrir sínu, það var sól, kalt og smá vindur.

12,5 km eins og venjulega.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband