Ég fékk póst frá Reykjavíkurmaraþoni, þeir eru búnir að breyta, nú geta allir valið að hlaupa til styrktar einhverju félagi. Það er gert með því að heita á hlaupara. Þess vegna hvet ég alla sem hafa áhuga á að heita á einhvern að heita á mig, það er gert í gegnum glitnir.is. Mun það gera mig mjög stolta.
Það var ekki æfing í dag...... en kl. 10 í fyrramálið, verða hetjur mættar við gamla Lækjarskóla til að skokka 7.km
Íþróttir | 10.8.2007 | 18:58 (breytt 11.8.2007 kl. 00:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Á fimmtudögum tökum við brekkur. Þá er hlaupið upp í Áslandið og svo hring um miðbæinn á eftir. Mjög skemmtilegur hringur, tekur á. Ekki skemmir þetta flotta útsýni þegar við erum komnar upp á toppinn. Auðvitað var þetta bara hetjuskapur að klæða sig í gallann á meðan rigningin steyptist á götuna og minnti á hitaskúr í útlöndum.
Við vorum fjögur sem hlupum, og þetta er aldeilis frábært, við erum svo blessuð að það styttir alltaf upp og léttir til þegar við hlaupum. Við áttum að hlaupa 6 km. en hringurinn var 7 km. Sumir myndu þá segja að við ættum inni 1 km. en við viljum ekki fá þessar kaloríur aftur, þær voru bara gefnar í bónus....
Íþróttir | 9.8.2007 | 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...... spilar stóra rullu hjá fólki sem þarf að fara út úr húsi.
Ég hef alltaf sagt að það sé ellimerki hjá mér að þurfa að vita fyrirfram hvernig veður er.... þegar ég fer út að hlaupa. Hér áður var nóg að vita að það var hlaupadagur. En nú skiptir veðrið meira máli, skrítið.... því ég er þyngri og þar af leiðandi minni líkur á að ég fjúki, ég er enn vatnsheld ef það skildi rigna, og nú þegar ég er komin með GPS er engin hætta á að ég villist. Sennilegasta niðurstaðan er þá að..... ég hlýt að vera farin að hugsa meira um sjálfa mig..... eins og gamla konan sem kom í búðina á Hrafnistu til að kaupa kex.....og þegar ég svaraði... þetta hérna er rosalega gott en það er ógurleg fita í því. Þá sagði sú gamla..... Það skiptir engu máli, ég er nú komin á þann aldur, að ég borða bara það sem mér þykir gott.
Í dag eru 6 km. á dagskrá og það er nú ekkert til að væla yfir.... það þýðir ekki að hlaupa í spik.
Íþróttir | 9.8.2007 | 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hlaupadagskráin þessa viku sem er fimmta vikan í prógramminu okkar er
mánudagur = 6 km.
miðvikudagur = 8 km.
fimmtudagur = 6 km.
laugardagur = 7 km.
Núna vorum við að hlaupa 8.km í léttu veðri, rigndi aðeins en 13.stiga hiti.
það var eiginlega óvart sem hópurinn fékk þetta nafn. En það kom vegna þess að allar hafa þær nýju þurft að detta rétt eftir að þær bættust í hópinn. Við vorum svei mér farnar að halda að þetta væru álög.
Sumar eru búnar að detta tvisvar..... taka allt með stæl.... og hafa endað á heilsugæslunni og Sigga er ekki farin að hlaupa aftur og heilt ár er liðið. Það var auðvitað ekki byltuvesen ... því Sigga var í þrautakóng í hestaferð. Þess vegna verðum við að telja að það sé stórhættulegt að ætla að skemmta sér fyrir utan hópinn.
Íþróttir | 8.8.2007 | 20:49 (breytt 12.8.2007 kl. 14:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)