Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

Aftur í gang

Ég sneri mér í gang í morgun... ég hef ekki verið dugleg undanfarið... Í dag var stefnan sett á stóra brekkuhringinn. Það var HEITT úti en ég er mjög ánægð með að hafa hlaupið fyrir hádegið því það var æðislegt að sitja á pallinum á eftir.

10,7 km í æðislegu veðri.


Slapp við öskurykið

Ég fór nokkuð snemma út í morgun og slapp því við öskumystrið sem hefur legið yfir öllu seinni partinn í dag. Ég var þung á mér andlega og líkamlega... drattaðist Hrafnistuhringinn 12,5 km algerlega orkulaus í hitanum.

Góður dagur

Drattaðist úr kl 10:30, ég hafði lofað sjálfri mér að hlaupa fyrir hádegi. Tekin var stefnan á Hrafnistuhringinn, ekki var ég í miklu stuði en komst alla leið. Veðrið var yndislegt og þægilegur mótvindur sem minnti mig á að láta axlirnar síga svo ég losnaði við höfuðverkinn.

12,5 km í dag Halo


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband