Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
Jæja, ég mætti við Lækjarskóla kl 5. Hafði fengið hringingu frá Þóru Hrönn. Það hentaði henni og Ingileif að mæta fyrr. Veðrið var dásamlegt og ég lét þær ráða ferð. Ingileif vildi fara Garðabæjarhringinn.... Ég var til og lifði það af....
Eftir því sem leið á fann ég hve gönguferðin sat í mér. Þriggja daga ganga og erfiðasti leggurinn 20 km. um fjöll og fyrnindi.... í gær.
Ég er ólýsanlega fegin að þær drógu mig hringinn... 10,6 km. og ég sem hélt að það væri bara létt og lipurt á mánudögum....
Það hefur verið ákveðið að fara Setbergshringinn kl 17:30 á morgun.
Íþróttir | 30.6.2008 | 19:07 (breytt 1.7.2008 kl. 09:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mætti ein við Lækjarskóla, veðrið var yndislegt.
Vegna þess að ég var ekki viss hvort Þóra Hrönn væri komin til landsins, hringdi ég í hana..... Hún var í Las Vegas.... kemur heim um helgina og ætlar að hlaupa á mánudag. Ég held að Magga sé úti líka og Soffía vinnur til 7 alla virka daga.... fáar sem eru því að hlaupa núna.
Hljóp ein þessar blessuðu brekkur, ekkert nema dýrð og dásemd.
Ef þú lest þetta Þóra Hrönn.... þá er algjört möst.... að taka þyrluflug niður í Grand Canyon
Íþróttir | 26.6.2008 | 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sælar,
Ég ætla að hlaupa kl. 17:30, spurning hverjar eru í sama gír.
Veðrið er yndislegt og ég ætla að hjóla niðureftir.... geri samt ekki ráð fyrir að synda eitthvað í leiðinni.... og gera þetta að þríþraut... það verður að bíða betri tíma.
Vonandi mæta fleiri
Íþróttir | 23.6.2008 | 15:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rexburg Teton DAM Marathon & Half-Marathon, Marathon Relay, 10K, 5K, Fun Run
Rexburg, ID USA, June 14, 2008 ..... http://www.dammarathon.com
Klukkan hringdi kl 4:15, og ég hafði eina ferðina enn sofið illa. Lúlli ákvað að keyra mig alla leið upp að stíflu..... réttara sagt leifunum af henni, því stíflan var ekki endurbyggð. Við eltum því rúturnar uppeftir. Hann fór svo á hótelið í sturtu og morgunmat og tékkaði okkur út fyrir kl 11.
Ég hljóp af stað með hinum kl. 6:30.... fann strax fyrir lofthæðinni... átti erfitt með að anda. Vildi samt ekki gefast strax upp og fara að ganga. Leiðin var erfið, margar langar brekkur og 8 mílur af leiðinni var á malarvegi.
Ég varð fljótt ein.... og nákvæmlega ekkert að sjá á leiðinni. Þau eru oft svona þessi litlu hlaup... í litlum bæjunum.
Svo varð kominn 25 stig hiti um kl 8. Ég hætti að reyna að hlaupa fljótlega, og stóð oft á öndinni við að reyna að ganga hratt. Ca helminginn af leiðinni fékk ég heitan vindinn í fangið.
Kom í mark á 6:00:59 á mína klukku....
Idaho var 25. fylkið og þar með er helmingurinn að þeim búinn... og vonandi er ég þá búin með öll fjallafylkin..... Bíðarinn verður að fara að velja borgarhlaup fyrir mig
Strax eftir hlaupið keyrðum við til Salt Lake City (ca 4 tíma keyrsla)
Íþróttir | 15.6.2008 | 02:21 (breytt 29.11.2008 kl. 18:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við komum allt of snemma hingað í morgun... dingluðum okkur eitthvað í yndislegu veðri. Dunduðum okkur við að finna staðina, expo-ið, markið og hvar ég á að mæta í rútuna.
Síðan sóttum við gögnin. Þetta er lítið maraþon, lítið expo en allt voða vinalegt. Oftast höfum við farið út án þess að vera búin að panta hótel... og aldrei lent í vandræðum... en á þessu svæði er betra að vera búin að panta.
Við vorum mjög heppin, ég hafði pantað mótelið heima, daginn áður en við fórum... það er í sömu götu og gögnin og markið. Svo það verður stutt fyrir Lúlla að fara. Núna er mótelið fullt.
Við förum í kartöflumáltíð kl 6. Kartaflan er vörumerkið þeirra. Maraþonið byrjar fyrir utan bæinn, við stíflu... og heitir stíflu-maraþon.... http://www.dammarathon.com/
Ég á að vera mætt í rútuna kl 5 og hlaupið verður ræst 6:30
Starting Elevation: 5357 ft. | Ending Elevation: 4900 ft.
Minimum Elevation: 4883 ft. | Maximum Elevation: 5413 ft.
Eins og sést erum við í nokkurri hæð frá sjó....
Við mættum í kartöflu-dinnerinn og þar var sagt að hlaupið væri haldið til minningar um þann skelfilega atburð, þegar stíflan brast 4.júní 1976.
Í þeim hamförum munaði minnstu að bærinn þurrkaðist (kanski andstætt orð).... þurrkaðist út.
Þaðan er nafnið á hlaupinu komið og þess vegna byrjar hlaupið á stíflunni.
Íþróttir | 13.6.2008 | 21:02 (breytt 14.6.2008 kl. 02:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...
Montana Governor's Cup Marathon Helena, MT USA , June 7, 2008 http://www.govcup.bcbsmt.com/
Ég svaf ekkert sérstaklega vel... var alltaf að bylta mér, en klukkan hringdi kl 5 og um 6 keyrðum við á startið.
Á leiðinni í hlaupið keyrðum við framhjá 3 dádýrum á beit í húsagarði.... inni í miðjum bænum. Við áttuðum okkur ekki á að stoppa og taka mynd... og þau voru farin þegar Lúlli keyrði framhjá í bakaleiðinni.
Það var skítakuldi, en ekki lengi. Hlaupið var ræst kl. 6:30. Keppendur frekar fáir, sem fara heilt maraþon. Ég sem skráði mig í fyrradag var nr. 99. Leiðin var ekki spennandi, hlaupið langar beinar götur út úr bænum, stundum á malarvegi.
Það var búið að spá þrumuveðri í gær og skúrum í dag, en það rættist sem betur fer ekki. Við fengum sterkan mótvind eftir að við snérum við, þ.e. síðustu 11 mílurnar, síðan var nokkuð um brekkur á fyrstu og síðustu mílunum.
Á milli 14 og 15 mílu var snúið við og að hluta til farin sama leið til baka. Síðustu 10 mílurnar var ég samferða annarri konu og síðan bættist vinkona hennar í hópinn og gerðist þjálfari okkar. Hún var ekki í maraþoninu en hljóp með okkur síðustu 7-8 mílurnar.
Ég er nokkuð ánægð með minn tíma, 5:46:30 á mína klukku.
(myndir birtar með góðfúslegu leyfi Bíðara nr.1)
Íþróttir | 7.6.2008 | 19:43 (breytt 29.11.2008 kl. 18:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við komum snemma í bæinn. Mér hafði aldrei tekist að skrá mig í hlaupið hérna, vefurinn tók bara amerísk kreditkort. Ég var búin að biðja um hjálp við skráningu í gegnum kommentin... en fékk ekki svar, þess vegna var ekki um annað að ræða en að fara á staðinn. Vegna þessara skráningarörðugleika.... var ég ekki heldur búin að panta hótel.
En Guð er góður... ég var búin að tékka á netinu (í gær í Livingston) og það var allt orðið fullt hérna.... við vorum því meira en lítið blessuð að fá ódýrt og gott hótel, örskot frá startinu og ekki er verra... svona til tilbreytingar að markið er á svipuðum slóðum.
Bíðarinn getur slappað af á hótelinu meðan ég skrepp hringinn á laugardaginn....
Þessa helgi er Music Festival.... í bænum eins og á svo mörgum öðrum litlum stöðum þar sem ég er að hlaupa.... í Burlington, Vermont var t.d. Jazz Festival.
Caring Foundation of Montana Governor's Cup Marathon & Relay, Half-Marathon, 10K, 5K
Helena, MT USA , June 7, 2008 http://www.govcup.bcbsmt.com/
Íþróttir | 5.6.2008 | 20:45 (breytt kl. 20:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mætti kl.18.00 til að hlaupa frá Lækjó, ekki sála að sjá. Hljóp Áslandið með Fluga. Frábært veður. Samkv. hlaupadagskrá Þóru H. er það Setbergið á morgun. Er að vinna til 18.00 ,þannig að ég kemst ekki fyrr en 18.30. kveðja Magga
Íþróttir | 2.6.2008 | 23:48 (breytt kl. 23:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rock 'n' Roll Marathon - San Diego, California, Sunday, jun 1 2008, kl 6:30 |
Íþróttir | 1.6.2008 | 23:01 (breytt 16.12.2008 kl. 13:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við erum í frábæru veðri hérna í San Diego, alltaf gott veður hér.
Ferðasagan er á bryndissvavars.blog .is en hlaupafréttir hér.
Ég náði í gögnin fyrir morgundaginn og tek það rólega núna.
Íþróttir | 1.6.2008 | 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)