Ég var á keyrslu allan daginn í gær, reyndi að sofna snemma en það tókst ekki. Hlaupið í dag var ræst klst seinna en síðasta hlaup eða 6:30.. svo ég vaknaði kl 4. Brautin var falleg, eftir skógarstígum, að mestu möl, og það sem var malbikað var með ,,toe catchers" þ.e. illa farið af rótum trjánna. Það rigndi mest allan tímann.
Í dag kláraði ég AFTUR öll 50 fylkin í 3ja sinn.. já, ég var viss um að ég væri að klára þau í Richmond VA.. í nóv sl.. en svo fékk ég póst frá The 50 State Marathon Club að ég yrði að hlaupa aftur í Tennessee. þetta var BÖMMER síðasta árs.
ÉG ER BÚIN MEÐ 3 HRINGI UM USA og Mainly Marathon gefa þeim sem klára hjá þeim flottan viðurkenningar pening.
#3 Tennessee
Strava mældi leiðina 44,85 km
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 27.3.2024 | 00:22 (breytt kl. 00:26) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.