Í dag er síðasti dagur Holiday Five seríunnar.Ég hafði sama system og í fyrradag.. Ég stillti klukkuna á 3.. og lögðum af stað kl 5.. með allt dótið, því við skiptum um hótel í dag.
Hlaupið var ræst kl 6.. í niðamyrkri.. ég reyndi að nýta mér birtu frá öðrum með höfuðljós.. um kl 7 birti. Það var sama leið alla dagana í seríunni. Mér gekk ágætlega en var orðin sárfætt í miðju hlaupi og skipti um skó.. og bætti svo við innleggjum. Þjónustan var ágæt í hlaupinu. Ég var fegnust því að maginn á mér var í lagi.. Skipuleggjandi er Bettie Wailes.
Þetta maraþon er nr 278
Strava mældi maraþonið 43,8 Km
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 31.12.2023 | 21:50 (breytt 1.1.2024 kl. 02:44) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.