Buenos Aires Marathon
Buenos Aires, Argentina
22.Sept. 2019
http://www.maratondebuenosaires.com/
Það er ótrúlega langt flug hingað, fyrst 6 tímar, síðan bið, og svo 11 tíma flug.
Við sóttum gögnin daginn fyrir hlaupið, expo-ið var ágætt, ca 10 km frá okkar hóteli sem var nálægt startinu.
Ég stillti klukkuna á 4:00, græjaði mig, áætlaði um klst til að ganga á start og taka eina klósettröð. Hlaupið var ræst kl 7, leiðin var ágæt en samt tókst þeimm að finna amk 3 brekkur fyrir okkur. Fyrsta drykkjarstöð var eftir 5 km en síðan á 2,5 km fresti. Hitinn var þolanlegur og nokkrum sinnum fengum við smá golu.
Mér gekk ágætlega að halda áfram, fór að vísu aðeins of hratt í upphafi en ekkert sem kom að sök. Á leiðinni tók ég nokkrar selfie með Globetrotturum sem ég hitti.
Marathon Globetrotter klúbburinn hefur alltaf samband við hlauphaldara og fær lengri tímamörk og í þessu maraþoni lofuðu þeir 7 klst... sem þeir svo sviku, þeir lokuðu markinu eftir 6:12... og amk einn Globetrotter fékk ekki skráðan tíma og verðlaunapening.
Þetta er maraþon nr 251
Garmin mældi leiðina ... 44,01 km
og tímann ... 6:04:30
Þetta maraþon færði mér nýja heimsálfu S-Ameríku og á ég þá 2 eftir, Ástralíu og Suðurskautið.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, MARAÞON | 3.10.2019 | 10:30 (breytt kl. 10:58) | Facebook
Athugasemdir
Samkvæmt úrslitum hlaupsins er net-tíminn: 6:04:35
Bryndís Svavarsdóttir, Marathon Maniac # 3942, 8.10.2019 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.