Við keyrðum hingað frá Manchester NH í dag... 7 tíma keyrsla til Lubec sem er við landamæri Kanada, alveg niður við sjó - Atlandshafið. Ég fékk bolinn í grunnskóla Lubec en varð að fara yfir landamærin, til Kanada að sækja númerið.
Á landamærunum varð ég að tilkynna mig sem hlaupara... Það var svolítið fyndið að Garmurinn datt algerlega út á landamærunum... sýndi ekki einu sinni vegakerfið.
Í Herring Park í Kanada fengum við númerið, biðum eftir maraþon-máltíð og svo snérum við til baka, alla leið niður í Machias, 30 mín í suður af Lubec... því það varð breyting á gistingu á síðustu stundu.
Þá er bara að koma sér fyrir, stilla klukkuna og stilla upp hlaupadótinu. Veðurútlitið átti að vera hagstætt.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll | 14.6.2014 | 23:06 (breytt 30.6.2014 kl. 23:46) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.