Íþróttir | 17.7.2012 | 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það æxlaðist þannig að ég fór aftur lengra en ég ætlaði... og var því ekki með nóg af vatni með mér. Ég fór upp Krísuvíkurveginn og fór alltaf lengra og lengra, endaði við skiltið rétt hjá þar sem malbikið endar... Veðrið var gott, skýjað og gola.
Þegar ég sneri við kom sterkur vindur í fangið og þá sagði vatnsleysið til sín. Lúlli hjólaði á móti mér með vatn - gott að vera með gsm ;)
Hlaup 20,1 km
ganga í hrauni (ótengt ratleik) 3,13 km
Íþróttir | 13.7.2012 | 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vala afboðaði sig í gær, þegar ég var í ratleiknum með systrunum, svo það var ekkert mál að teygja tímann og bæta við spjaldi og hjóla meira á eftir...
hjólaði 15,4 km og gekk 9,1 km í gær
Þess vegna var nauðsynlegt að hlaupa í dag... veðrið var dásamlegt og ég lagði að stað suður fyrir Straum... ég var með eitthvað smávegis af vatni með mér... en svo teygðist úr hlaupinu og áður en ég vissi af var ég komin að Hvassahrauns-brúnni... Snéri við og þá var þónokkur vindur í fangið og vatnið hvarf fljótt ofaní mig... vindurinn þurrkaði mig niður í maga og var ég farin að finna fyrir vatnsleysinu við Straumsvík. En heim komst ég í heilu lagi :)
19 km í dag :)
Íþróttir | 10.7.2012 | 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég byrjaði á að hlaupa Hrafnistuhringinn minn í yndælis veðri... og skellti mér síðan beint á hjólið.
Við vorum búnar að ákveða að hittast, systurnar í Heiðmörkinni. Það komu smá dropar á okkur en ekkert til að tala um. Við fundum spjaldið sem við Berghildur fundum ekki síðast... í hellinum sem við vorum alltaf vissar um að væri rétti hellirinn... Eftir að hafa skjögrast kengbogin inn, sást spjaldið í felum... fuss og svei...
Ég lengdi heimleiðina, fór yfir á Vellina í gegnum Hvaleyrarvatnssvæðið og sá að þar var verið að betrumbæta alla aðstöðu...
Hrafnista 12,5 km,
Hjólað 27,2 km
Gengið 1,2 km
Íþróttir | 6.7.2012 | 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Það er ferlega gaman að hjóla... ég hef virkilega saknað þess í vetur... í gær hjólaði ég í Reykjavík og svo útí iðnaðarhverfi samtals 37,6 km og mig langaði ekki inn, vildi bara vera úti.
í dag var ég komin á hjólið kl 11 því ég ætlaði að hitta Berghildi, Eddu og Ingu Bjarteyju á Bláfjallaveginum einhversstaðar nærri spjaldi nr 27...
Við skoðuðum 3 helli í dag... Leiðarenda, Hjartartröð og Óbrinnishólahelli... og fundum þessi tvö spjöld sem við leituðum að...

þá var kl 4 og ég flýtti mér að hjóla heim og svo að hitta Völu við kirkjugarðinn. Við hjóluðum upp í Kaldársel og gengum (með hjálmana á hausnum) á Helgafellið í frábæru veðri. ég get ekki neitað því að hafa hreyft mig í dag.
Hjólaði 42,1 km og gekk 8,71 km :)
Íþróttir | 4.7.2012 | 21:06 (breytt kl. 21:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú átti ekki að klikka... þ.e. gleyma sér og missa af Völu. ég var tilbúin hálf 5 þegar hún hringdi og sagðist vera laus. Við hittumst síðan á hlaupum fyrir framan Suðurbæjarlaug. Veðrið var dásamlegt í dag... við vorum ofklæddar... betra en að vera of lítið klæddur :)
Við fórum Hrafnistuna 12,5 km og ákváðum að fara á Helgafellið á miðvikudag :)
Íþróttir | 2.7.2012 | 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kom við í kirkju, á kjörstað í Víðistaðaskóla og í Hafnarborg... allt var þetta út frá Hrafnistuhringnum. Sólin var heit... of heit ef eitthvað var... en á maður ekki að vera þakklátur fyrir dýrðlegt veður :)
Hrafnistan var aðalatriðið en útúrdúrarnir voru um km samtals... 13,5 km í dag
Íþróttir | 30.6.2012 | 21:58 (breytt kl. 21:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í þessu yndislega veðri er mín komin í gang aftur, búin að söðla reiðhestinn... í gær gleymdi ég mér alveg á hjólinu, hjólaði suður Reykjanesbrautina og kom heim kl 5... hélt ég hefði misst af Völu... ég er venjulega fyrir utan vinnuna hjá henni 4:45... en við náðum saman... og breyttum til, hlupum kringum Ástjörnina. ég man ekki hvenær ég gerði það síðast. En þetta var kærkomin tilbreyting.
Hjólaði 20,3 km og hljóp með Völu... 7,2 km
Í dag hjólaði ég í Reykjavík, þurfti að ná í pappíra inn í Háskóla og heimsótti pabba á Landspítalann í leiðinni. Veðrið var frábært, glampandi sól og blíða.
Hjólaði 33,1 km í dag :)
Íþróttir | 26.6.2012 | 19:15 (breytt 27.6.2012 kl. 00:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég kom heim í fyrradag, lét mér nægja að hjóla um 15 km í gær, en druslaðist út að hlaupa í dag. Fór gamla góða Hrafnistuhringinn... ein og það þurfti endilega að byrja að rigna þegar ég steig út fyrir dyrnar... Það var ausandi úrhelli... en maður er ennþá vatnsheldur ;)
Ég var alltaf komin of hratt og stoppaði nokkrum sinnum til að hægja á mér... Nú er bara málið að koma sér á rétt ról...
Hrafnistan með útúrdúr til Völu 12,8 km
Íþróttir | 21.6.2012 | 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Zions Bank Utah Valley Marathon & Half Marathon, 10K, Kids 1K, Provo, UT USA 9.júní 2012
http://www.utahvalleymarathon.com

Klukkan hringdi 2:30 am... ég hafði sofið eins og steinn, enda þreytt eftir að hafa sofið illa nóttina áður. Í þessu hlaupi eru forréttindi að vera Maniac, við höfum sér rútur og klósett á starti. Það var hins vegar frekar langt á startið svo ég ákvað að eyða ekki tíma í morgunmatinn áður en ég færi, heldur borða hann í rútunni. Fékk mér kaffi, teypaði tærnar, dótið var tilbúið og svo lögðum við af stað...

Það tók okkur smá tíma að finna réttu rúturnar... ég rétt náði síðustu rútunni kl 3:45... ekkert nema Maniac-ar þar :D
Startið var uppi í fjöllum og búist við frosti þar... þar voru eldar til að halda hita á fólki. Hvar sem ég leit voru Maniac-ar takandi myndir og auðvitað skellti ég mér inná þær enda ekki með vél... svo voru allir símarnir og allt sent beint á Maniac-síðuna á Facebook. Snilld að hafa merkt klósett.

Það var hlýrra en undanfarin ár... og ég í síðum buxum og hafði ætlað að byrja í langermabol og binda hann síðan utan um mig... en ég setti hann í gear-check... ég hljóp í nýjum MM hlýrabol :)
Það var tekin hópmynd fyrir framan startið, 5 mín. fyrir start kl 6 am.

Við hlaupum niður... og upp og niður risastórt gil... byrjuðum í ca 6.250 feta hæð og enduðum í um 4.500... Maður fann fyrir þunna loftinu. og hvílíkur mótvindur sem við fengum og glampandi sól. Vegna hitans og vindsins var ég hrædd um að drekka ekki nóg... en drakk síðan allt of mikið því ég fór 3svar á klósett á leiðinni.
http://www.utahvalleymarathon.com/utah-valley-marathon-map.php

Síðustu 4 mílurnar voru í Provo og þá lyngdi og hitnaði verulega, sennilega um 30°c... ég gekk meirihlutann af þeim mílum.
Sólarvörnin (30) dugði svo ég brynni ekki og ég slapp við bruna-nudd-sár. Verðlaunapeningurinn er æðislegur og peningurinn frá MM, geggjaður :)
Garmurinn minn mældi tímann 5:52:34 og vegalengdina 42,55 km
Maraþonið er nr 145
http://www.youtube.com/watch?v=_I0mtzC0iaI
myndband frá Joe (The Marathon Show)
Íþróttir | 9.6.2012 | 22:00 (breytt 6.5.2013 kl. 00:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)