Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Mæting í pasta...

Við Soffía hlupum bara tvær, bæði í dag og í gær.  Fórum samviskusamlega eftir hlaupaplaninu.  Það þýðir ekki að skreppa saman þó það sé aðeins farið að kólna.  Ég veit að Rannveig hljóp frjáls og óháð, Þóra Hrönn fór út úr bænum og Þórdís er í útlöndum.  Magga og Anna Rós.... sisters where are thou?........ Nú er Reykjavíkurmaraþon í uppsiglingu og menningarnótt kemur í kjölfarið.  Wink

Ég afritaði þetta á netinu, stelpur....

Afhending keppnisgagna og stuttermabola
Þátttakendur sæki keppnisgögn og boli í Laugardalshöllina, föstudaginn 17. ágúst kl. 12:00 - 21:00.

Pastaveisla

Þátttakendum í hlaupum 3-42 km er boðið til pastaveislu, í boði Barilla, föstudaginn 17. ágúst kl. 16:00-21:00 í Laugardalshöllinni. Þeir sem áhuga hafa á að kaupa sérstaklega pastamáltíð (til dæmis fyrir gesti) þá kostar máltíðin 500 krónur. Frítt er fyrir þátttakendur.

Smile  Stelpur.... Mér finnst alveg tilvalið að við hittumst kl. 17:00 til að sækja gögnin og borða saman pasta.  Hvað finnst ykkur?


Einn búinn að gera áheit....

Ég er mjög stolt að tilkynna að maðurinn minn fór inn á Glitni.is og gerði áheit á mig.  Þetta gerði migDCP01313 auðvitað mjög stolta af honum.   Það eru margir sem halda að Glitnir borgi fyrir alla keppendur...... NEI, Glitnir borgar bara fyrir viðskiptavini sína, aðrir ....fólk úti í bæ, verður að gera áheit á okkur hin,  svo að við hlaupum til góðs.    Smile  Fara á Glitnir.is !

Maðurinn minn gerði áheit.  Hann hefur mikla og góða reynslu af að bíða eftir mér, því frá upphafi hefur hann......beðið og beðið.... og beðið.... þegar ég er í hlaupum.    Fyrir nokkrum árum vildi hann stofna félag fyrir ,,Bíðara".   Undirtektir voru ágætar, stungið upp á æfingaferðum til útlanda, æfingabið á pöbbum og fyrir framan verslanir fyrir jólin.  Einnig var rætt um að félagar væru númeraðir eftir inntöku í félagið og svo auðvitað að verðlauna góða bíðara.  En ekkert varð úr stofnun Bíðarafélagsins. 

óskarinnÉg ákvað því að taka málið í mínar hendur og verðlauna hann sem Bíðara nr. 1... þegar hann var búinn að bíða í ca 50 maraþonum eftir mér.  HeartÓskarsverðlaunahafi

Við hátíðlega athöfn var ,,Bíðara nr.1" afhentur Óskarinn þegar ég kom í mark í Reykjavíkurmaraþoni 2004.... og kom honum þetta gjörsamlega á óvart, en áttaði sig svo og .... þakkaði mömmu og pabba og þeim sem hafa stutt hann gegnum allt.... eins og Óskars-verðlaunahafar gera yfirleitt með tárin í augunum. 

En nú eftir að Byltur hafa dottið saman, er kominn grundvöllur fyrir Bíðarafélag.... Bíðari nr. 2 er auðvitað sá sem beið með vatn, klaka og sítrónusneiðar um daginn. Smile   Strákar ...... gangið í félagið !


Komin aftur,

Gleði gleði, komin aftur í menninguna.... ég skrapp í Selvoginn með manninum, hann var eitthvað að dunda við hjólhýsi systur sinnar.  nafn STRAND

Vorum sambandslaus við umheiminn, því þar næst ekki sími, engin blöð borin út, snjór í sjónvarpinu og krían sér um land og loftvarnir landsins.  Þeir segja að það virki mjög vel að heita á Strandakirkju... en ég minni fólk enn og aftur á, að heita á mig í Reykjavíkurmaraþoni. 

Hvað á maður að gera þegar maður bregður sér aftur í fornöld, nema að opna bjórdós og hvítvín og grilla..... eins og útilegumenn gerðu forðum.  ALVEG RÉTT, sagði maðurinn yfir öxlina á mér, svona á þetta að vera.  Hann er ekki vel að sér í sögu, ef hann heldur að þeir hafi farið í ríkið.... ég var að hugsa um lambakjötið eldað út í náttúrunni.

En við erum komin aftur og hlaupaplanið segir að í dag verði teknir 10 km. með bros á vör.


Höfðinglegar móttökur

Mættar: Rannveig, Þóra Hrönn og Bryndís.  Hlaupadrottningar eftir 12,3 km 12.8.2007

Við fengum frábært hlaupaveður í dag.  Við hlupum samviskusamlega eins og áætlað var til Bessastaða í heimsókn til Óla og Dorritar.  Vorum ákveðnar að klukka tröppurnar og hafa þar löggilta drykkjarstöð.  Þegar við hlupum heimreiðina fór rúta með útlendingum fram úr okkur.  

Eins og kurteisir Íslendingar heilsuðum við fólkinu við kirkjuna og hlupum að forsetabústaðnum.  Þar kom enginn út, heppni að við vorum með vatn í drykkjarbeltum.  Síðan snérum við til baka, hlupum sömu leið.  Þegar við komum að A-Hansen var rútan þar.... aumingja fólkið hafði hvorki fengið vott né þurrt hjá Óla og Dorrit, frekar en við.  Við ákváðum að gleðja það aðeins og sungum um leið og við hlupum framhjá..... We are the champions my friend....  Ég er alveg viss um að við redduðum deginum hjá blessuðum útlendingunum. 

Lokaspretturinn er eftir Austurgötunni og þar býr Þóra Hrönn.  Hún stakk upp á að hún bæði manninn sinn að taka afreksmynd af okkur bak við húsið og viti menn .... þar var höfðingjamóttakan sem við væntum á Bessastöðum.  Bakki með vatni, klaka og sítrónusneiðum.


Forsetaheimsókn

Við mættum þrjár, sannkallaðar hetjur.  Það var þoka en betra hlaupaveður varla hægt að fá. Við höfum aldrei mætt eins mörgum hlaupandi á leiðinni, ég vona að Það sé ekki vegna þess að þau rati ekki heim til sín..... nei, það var ekki svo mikil þoka og svo hleypur enginn lengur nema vera með GPS.  Það er nú þvílík snilld..... maður varð frjáls frá sínum föstu mældu hringjum.

Á morgun kl. 10 förum við frá Lækjarskóla og í heimsókn til Óla og Dorritar.  Við höfum ekki boðað komu okkar formlega, enda eru Íslendingar ekki þekktir fyrir að hringja á undan sér, við erum vön að birtast bara á tröppunum og láta það ráðast hvort fólk á eitthvað fitandi með kaffinu.


Hlaupaplan næstu viku

sunnudagur = 12 km

mánudagur = 8 km.

miðvikudagur = 10 km.

fimmtudagur = 6 km. 

laugardagur = 7 km. 

 


Áheitahlaup...

Ég fékk póst frá Reykjavíkurmaraþoni, þeir eru búnir að breyta, nú geta allir valið að hlaupa til styrktar einhverju félagi.  Það er gert með því að heita á hlaupara.  Þess vegna hvet ég alla sem hafa áhuga á að heita á einhvern að heita á mig, það er gert í gegnum glitnir.is.  Mun það gera mig mjög stolta.

Það var ekki æfing í dag...... en kl. 10 í fyrramálið, verða hetjur mættar við gamla Lækjarskóla til að skokka 7.km 


Aldeilis frábært....

Á fimmtudögum tökum við brekkur.  Þá er hlaupið upp í Áslandið og svo hring um miðbæinn á eftir.  Mjög skemmtilegur hringur, tekur á.  Ekki skemmir þetta flotta útsýni þegar við erum komnar upp á toppinn.  Auðvitað var þetta bara hetjuskapur að klæða sig í gallann á meðan rigningin steyptist á götuna og minnti á hitaskúr í útlöndum. 

Við vorum fjögur sem hlupum, og þetta er aldeilis frábært, við erum svo blessuð að það styttir alltaf upp og léttir til þegar við hlaupum.  Við áttum að hlaupa 6 km. en hringurinn var 7 km.   Sumir myndu þá segja að við ættum inni 1 km. en við viljum ekki fá þessar kaloríur aftur, þær voru bara gefnar í bónus....


Veðrið !

...... spilar stóra rullu hjá fólki sem þarf að fara út úr húsi. 

Ég hef alltaf sagt að það sé ellimerki hjá mér að þurfa að vita fyrirfram hvernig veður er.... þegar ég fer út að hlaupa. Hér áður var nóg að vita að það var hlaupadagur.  En nú skiptir veðrið meira máli, skrítið.... því ég er þyngri og þar af leiðandi minni líkur á að ég fjúki, ég er enn vatnsheld ef það skildi rigna, og nú þegar ég er komin með GPS er engin hætta á að ég villist.  Sennilegasta niðurstaðan er þá að..... ég hlýt að vera farin að hugsa meira um sjálfa mig.....  eins og gamla konan sem kom í búðina á Hrafnistu til að kaupa kex.....og þegar ég svaraði... þetta hérna er rosalega gott en það er ógurleg fita í því.   Þá sagði sú gamla..... Það skiptir engu máli, ég er nú komin á þann aldur, að ég borða bara það sem mér þykir gott.  

Í dag eru 6 km. á dagskrá og það er nú ekkert til að væla yfir.... það þýðir ekki að hlaupa í spik.  

 


Byltur- hlaupavinkonur

Hlaupadagskráin þessa viku sem er fimmta vikan í prógramminu okkar er

sunnudagur = 12 kmByltustuð

mánudagur = 6 km.

miðvikudagur = 8 km.

fimmtudagur = 6 km. 

laugardagur = 7 km. 


Núna vorum við að hlaupa 8.km í léttu veðri, rigndi aðeins en 13.stiga hiti.

það var eiginlega óvart sem hópurinn fékk þetta nafn.  En það kom vegna þess að allar hafa þær nýju þurft að detta rétt eftir að þær bættust í hópinn.  Við vorum svei mér farnar að halda að þetta væru álög. 

Sumar eru búnar að detta tvisvar..... taka allt með stæl.... og hafa endað á heilsugæslunni og Sigga er ekki farin að hlaupa aftur og heilt ár er liðið.  Það var auðvitað ekki byltuvesen ... því Sigga var í þrautakóng í hestaferð. Þess vegna verðum við að telja að það sé stórhættulegt að ætla að skemmta sér fyrir utan hópinn.
 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband