Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Öðruvísi dagar

Ég hef lítið hlaupið síðan ég kom heim úr síðustu ferð, 15.okt . Sama dag og ég kom heim hné pabbi minn niður og var dáinn fyrir hádegi daginn eftir. Blessuð sé minning hans.

Þessi mánuður síðan hefur verið mjög óraunverulegur og annasamur. Þrátt fyrir það hefur mér tekist að hlaupa nokkrum sinnum.

21.okt hljóp ég með Völu, Hrafnistuhringur 12,5 km

23.okt hljóp ég upp Krísuvíkurveginn 12,0 km

28.okt hljóp ég aftur með Völu, Hrafnistuhring 12,5 km

8.nóv hljóp ég ein upp Krísuvíkurveginn, 12,2 km

15.nóv var ég enn ein á Krísuvíkurveginum, 12 km  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband