Aldeilis frábært....

Á fimmtudögum tökum við brekkur.  Þá er hlaupið upp í Áslandið og svo hring um miðbæinn á eftir.  Mjög skemmtilegur hringur, tekur á.  Ekki skemmir þetta flotta útsýni þegar við erum komnar upp á toppinn.  Auðvitað var þetta bara hetjuskapur að klæða sig í gallann á meðan rigningin steyptist á götuna og minnti á hitaskúr í útlöndum. 

Við vorum fjögur sem hlupum, og þetta er aldeilis frábært, við erum svo blessuð að það styttir alltaf upp og léttir til þegar við hlaupum.  Við áttum að hlaupa 6 km. en hringurinn var 7 km.   Sumir myndu þá segja að við ættum inni 1 km. en við viljum ekki fá þessar kaloríur aftur, þær voru bara gefnar í bónus....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband